Jackson, Conte, Robertson, Alisson, Simons, Bernardo Silva og fleiri góðir í slúðri dagsins
Besta karla
Stjarnan
LL 2
4
Valur
Besta karla
Víkingur R.
LL 4
0
ÍA
Besta karla
Breiðablik
LL 4
0
Þór
Besta karla
KR
LL 4
2
FH
Besta karla
Fram
LL 5
1
ÍBV
Breiðablik
4
0
Þór
Kristófer Ingi Kristinsson '20 1-0
Anton Logi Lúðvíksson '64 2-0
Davíð Ingvarsson '86 3-0
Óli Valur Ómarsson '93 4-0
27.04.2026  -  19:15
Kópavogsvöllur
Besta karla
Dómari: Vilhjálmur Alvar Þórarinsson
Byrjunarlið:
1. Anton Ari Einarsson (m)
4. Ásgeir Helgi Orrason
5. Ívar Örn Árnason
8. Viktor Karl Einarsson (f)
9. Óli Valur Ómarsson
10. Kristinn Steindórsson ('57)
15. Ágúst Orri Þorsteinsson ('89)
17. Valgeir Valgeirsson ('46)
18. Davíð Ingvarsson
23. Kristófer Ingi Kristinsson ('82)
30. Andri Rafn Yeoman ('81)
- Meðalaldur 27 ár

Varamenn:
55. Jón Sölvi Símonarson (m)
11. Aron Bjarnason ('46)
13. Anton Logi Lúðvíksson ('57)
16. Dagur Örn Fjeldsted
21. Viktor Örn Margeirsson
24. Bjartur Orri Jónsson
29. Gabríel Snær Hallsson ('81)
32. Kristinn Narfi Björgvinsson ('89)
33. Arnar Bjarki Gunnleifsson ('82)

Liðsstjórn:
Ólafur Ingi Skúlason (Þ)
Særún Jónsdóttir
Haraldur Björnsson
Helgi Jónas Guðfinnsson
Dagur Elís Gíslason
Emil Pálsson
Jón Guðni Fjóluson

Gul spjöld:
Aron Bjarnason ('87)

Rauð spjöld:
93. mín MARK!
Óli Valur Ómarsson (Breiðablik)
Stoðsending: Aron Bjarnason
Klára þetta á einu í viðbót bara!
Leik lokið!
Frábær skemtun á Kópavogsvelli hér í kvöld.

Ég þakka bara fyrir mig!
90. mín
Davíð Ingvars nálægt tvennunni! Skotið hans snúðist frá markinu.
90. mín
4mín í uppbót
89. mín
Inn:Kristinn Narfi Björgvinsson (Breiðablik) Út:Ágúst Orri Þorsteinsson (Breiðablik)
87. mín Gult spjald: Aron Bjarnason (Breiðablik)
87. mín
STÖNGIN ÚT! Ágúst Orri með skot sem rennur í stöngina og út.
86. mín MARK!
Davíð Ingvarsson (Breiðablik)
Stoðsending: Óli Valur Ómarsson
3-0!! Annað virkilega snyrtilegt mark hjá Blikum. Óli Valur með flotta vippu á teig Þórs og Davíð Ingvars með gefins skalla í netið á fær.
85. mín
Góð Tilraun! Óli Valur sem rúllaði boltanum aðeins til hliðar og Davíð Ingvar með þrusu skot úr spyrnunni, en rétt yfir markið.
84. mín Gult spjald: Kristófer Kristjánsson (Þór )
Tekur niður Ágúst Orra á vænlegum stað fyrir skot úr aukaspyrnu.
82. mín
Inn:Arnar Bjarki Gunnleifsson (Breiðablik) Út:Kristófer Ingi Kristinsson (Breiðablik)
81. mín
Inn:Gabríel Snær Hallsson (Breiðablik) Út:Andri Rafn Yeoman (Breiðablik)
79. mín
Aron Bjarna á Óla Val sem senti boltann fyrir markið á Kristófer en Aron Birkir komast á undan í sendinguna.
77. mín
Bullandi skyndisóknarfæri! Aron Bjarna allt í einu sloppinn í gegn en snertingin aðeins of föst, reynir að finna Davíð Ingvars við miðjan teigin en svo var ekki.
75. mín
Jaaa hérna hér! Þetta verður umtalsverður leikur, Þórsarar að mínu mati ranglega haldið frá því að minnka muninn.
73. mín
Inn:Fannar Daði Malmquist Gíslason (Þór ) Út:Sebastian Haugland (Þór )
73. mín
Inn:Kristófer Kató Friðriksson (Þór ) Út:Sverrir Páll Ingason (Þór )
72. mín
Þór að skora eftir horn...Dæmir hendi??! Ég einfaldlega skil ekki hvað hann var að dæma á?? Leit út fyrir að vera frábært mark hjá Sigfúsi Fannar sem snéri bak í markið í algjöru kaósi en náði að koma honum yfir línuna.
71. mín
ERTU AÐ GRÍNAST!!! Ágúst Eðvald gerir vel í að losa boltan til hliðar á Atla Sigurjóns sem á einn á einn skot en Anton Ari ver í slána og svo endar boltinn í horni.
70. mín
Blikar búnir að vera með öll völd á þessum seinni hálfleik hingað til.
65. mín
Inn:Sigfús Fannar Gunnarsson (Þór ) Út:Christian Greko Jakobsen (Þór )
65. mín
Inn:Atli Sigurjónsson (Þór ) Út:Isaac Atanga (Þór )
64. mín MARK!
Anton Logi Lúðvíksson (Breiðablik)
Stoðsending: Aron Bjarnason
ÓTRÚLEGA SNYRTILEGT! Algjörlega fullkomin sending frá Aroni Bjarna sem dettur glæsilega fyrir Anton Loga sem var á hárréttum stað!

Blikar komnir í 2-0!!!
63. mín
Anton Logi með flottar hreyfingar til að komast í vænlega fyrirgjafa stöðu en sendingin náði ekki á samherji í teignum.
60. mín
VARSLA hjá Aroni! Davíð Ingvars með STURLAÐ SKOT á leiðinni í nær skeytin!
Frábærlega varið í stöngina og í horn!
58. mín
Blikar virkilega hættulegir! Fyrst Aron Bjarna í gegn með skot sem Aron Birkir ver vel.
Svo Anton Logi sem lætur verja frá sér.
Viktor Karl síðan með skot sem fer enn og aftur rétt framhjá.
57. mín
Inn:Anton Logi Lúðvíksson (Breiðablik) Út:Kristinn Steindórsson (Breiðablik)
56. mín
Aron Bjarna nærri búin að stimpla sig inn! Davíð Ingvars kom boltanum á Aron Bjarna sem missti hann þó aðeins of langt frá sér.
56. mín Gult spjald: Ásbjörn Líndal Arnarsson (Þór )
Hangir aftan í Ágústi Orra.
55. mín
Viktor Karl með skot! Boltinn dettur fyrir Viktor Karl rétt fyrir utan miðjan teiginn og skotið nálægt nær stönginni.
53. mín
Ágúst Orri heldur áfram frábæru sóknarframlagi. Átti fínt skot yfir markið og svo sendingu í teiginn sem Aron Birkir skutlaði sér á.
51. mín
Farið að kvessa aðeins í átt að marki Þórs, ofan á blauta gervigrasið. Gæti skapað fjör.
49. mín
Sverrir Páll með góða tæklingu til að stoppa Ágúst Orra sem lendir þó eitthvað illa og meiðir sig aðeins í höfðinu.

Útaf í mínútu.
48. mín
Ágúst Orri með lúmskt skot sem Aron Birkir ver auðveldlega.
46. mín
Keyrum þennan seinni af stað!
46. mín
Inn:Aron Bjarnason (Breiðablik) Út:Valgeir Valgeirsson (Breiðablik)
45. mín
Hálfleikstölfræði Með boltann: 66%-34%
Marktilraunir: 10-8
Skot á mark: 3-3
Horn: 5-3
Heppnaðar sendingar: 242-113
45. mín
XB

Sturluð staðreynd: Framsókn í Kópavogi hefur setið í meirihluta í sveitarfélaginu í 54 ár af síðustu 64 árum og á þ.a.l. ansi stóran þátt í byggju upp framúrskarandi sveitarfélag og íþróttaaðstaða hér í Kópavoginum ber þess merki.

Annars er fjölskylduhátið Framsóknar í Kópavogi haldinn þann 1.maí n.k í Guðmundalundi og nánari upplýsingar að finna hér. Allir velkomnir.

Nánari upplýsingar á fb síðu framboðsins

- Auglýsing -
45. mín
Hálfleikur
Það var alvöru skemmtun í þessum hálfleik, mikill hraði og bæði lið likleg.
Blikar mun sáttari í hálfleik enda yfir, trú ekki öðru en áframhaldandi skemmtun í seinni!

Tölfræði frá Sýn:
Blikar með bolta 66% vs 34% Þór
3skot á mörk hjá báðum í 10skotum Blika vs 8skotum Þórs
Hornspyrnur: Blikar 5 vs 3 Þór
2 rangstæður á Blika
45. mín Gult spjald: Yann Emmanuel Affi (Þór )
Nei nei, þetta var held ég rangt. Kristófer sem fór rosalega seint niður, kannski smá hendi þarna í andlitið á honum en alls ekki mikið.
45. mín Gult spjald: Aron Ingi Magnússon (Þór )
Stoppaði Valgeir í hlaupi, augljóst spjald.
45. mín
3mín í uppbót
43. mín
Andri Rafn með mjög góða tæklingu til að vinna boltann á miðsvæðinu og Viktor Karl síðan fann Ágúst Orra þjóta upp hægri kantinn.
Ekkert sem varð úr sókninni þó.
41. mín
Kristinn Steindórsson með frábæran bolta meðfram markinu og Valgeir ótrúlega nálægt því að tækla boltann inn í netið.
40. mín
Fjörugar fyrstu 40mín en líka erfitt fyrir Vilhjálm að halda leiknum í gangi án þess að einhverjir verða ósáttir.
38. mín
Blika horn sem Aron Birkir gerir vel í að kýla út
35. mín
Þór með færi!!! Atanga sem fann Greko og hann með skot framhjá
34. mín
Kristinn Steindórs með skemmtilegt skot! Tekur hann í loftinu í fyrsta en Aron Birkir ver vel.
Er kominn tími á pizzu? Nú er stutt í hálfleik og fullkominn tími til að panta pizzu til að njóta með seinni hálfleiknum! Kíktu á Dominos.is
32. mín
Atanga aðeins búin að vera ýttast í mönnum og Valgeir Valgeirs sem liggur eftir.

Mínu mati hefði þetta auðveldlega geta verið spjald á Atanga
29. mín
VARSLA HJÁ ANTONI! Mistök í uppspili Blika og Ágúst Eðvald fær boltann sprettir af stað og nær skot sem fór í varnarmann og nærri því búin að skóflast yfir Anton Ara en hann náði fingrum í þetta og hornspyrna niðurstaða.
27. mín
Kristófer Kristjánsson fékk að rölta bara með boltann að teig Blika og náði ágætis skoti sem fór rétt framhjá.
26. mín
NEEIII!! Frábær sókn sem endar á góðum bolta frá Óla Val sem fann Davíð Ingvars í stórhættulega færi en hann hitti ekki boltann!
23. mín
Ásbjörn Líndal að bjarga?!!! Davíð Ingvars í rosalegu færi en Ásbjörn með sturlaða tæklingu til að bjarga mjög líklega marki!
Smá séns að Aron Birkir væri með þetta en frábærlega gert hjá Ásbirni.
22. mín
Stúkan vill spjald á Aron Inga, virtist stoppa Óla Val í upphlaupi með bolta.
20. mín MARK!
Kristófer Ingi Kristinsson (Breiðablik)
Stoðsending: Ágúst Orri Þorsteinsson
Það var búið að vera hætta á þessu!

Þægilegur bolti frá Ágústi sem er allt í öllu um þessar mundir, fann Kristófer og hann kláraði vel í fjær. Aron Birkir í markinu náði aðeins snertingu í boltann með úthlaupinu sínu en dugði ekki til.
19. mín
Inn:Aron Ingi Magnússon (Þór ) Út:Bjarni Guðjón Brynjólfsson (Þór )
Ekkert spes að missa Bjarna af velli svona snemma
17. mín
Blikar að spila vel hér í byrjun, Óli Valur nærri því með frábæra sendingu í gegn á Kristófer en hann náði ekki að halda boltanum.

Bjarni Guðjón að fá aðhlynningu
16. mín
Blikar skora en flaggað! Fjórða hornið í röð og þá fór boltinn loksins inn, dómarinn öruggur á rangstöðunni.
14. mín
Þriðja hornið í röð hjá Blikum.
12. mín
Kristófer Ingi skot! Munaði litlu þarna, fékk nægan tíma til að móta sig og tók fínasta skot í átt að markinu en rétt framhjá.
9. mín
Ágúst Orri með skot! Þeytist gegnum miðjuna og finnur fínt skotfæri en boltinn vel yfir.
7. mín
Horn núna fyrir Þór.
Fyrsta í leiknum, fín spyrna í þéttan teigin en enginn náði til og brot dæmt á Þór.
6. mín
Fyrsta auka er Þórsara, Kristinn Steindórs sem nartaði í hælana á Þórsara.

Myndaðist smá hætta í teignum eftir aukaspyrnuna.
5. mín
Blikar að spila vel í gegn, Valgeir Valgeirs sem fann Ágúst Orra í hlaupinu en hann var því miður rangstæður.
3. mín
Aftur Ágúst Eðvald! Fær þægilega sendingu frá Haugland og hleður í skot sem fer rétt framhjá fjær stönginni.

Erfitt skotfæri og mögulega meiri hætta hefði hann fundið Atanga sem var að taka hlaupið á fjær.
1. mín
Anton byrjar á VÖRSLU! Ágúst Eðvald sloppinn strax einn í gegn en Anton Ari ekki í vandræðum að verja þetta.

Strax ÞVÍLÍKT FÆRI fyrir gestina!
1. mín
Leikur hafinn
Blikar sparka af stað! Miðað við mörkin sem við erum að fá í öðrum leikjum í dag, er þá við öðru að búast en veislu einnig hér í fínustu aðstæðum á Kópavogsvelli.
Fyrir leik
Enginn Höskuldur! Bandið er því á Viktori Karl í þessum leik.
Andri Rafn Yeoman sem verður þá með Viktori á miðjunni og Kristinn Steindórs mögulega fyrir framan þá í holunni.
Fyrir leik
Þórsarar Það er stuð Þórsara megin á Akureyri. Liðið spilaði á nýja heimavelli sínum í síðustu umferð og tóku þrjú stig í frábærum leik gegn Fram.
Tveir flottir sigrar komnir á tímabilinu en eitt tap gegn toppsætis liði KR.
(5-6) Markatala en fimm af mörkunum sem þeir hafa fengið á sig komu gegn KR-ingum.
Virkilega spennandi og skemmtilegt lið sem er mikið byggt á uppöldum leikmönnum, ungum sem öldnum.

Fyrir leik
Blika liðið Ef við lítum aðeins á byrjun Breiðabliks er hægt að sjá liðið er öruggasta varnarliðið en á sama tíma nokkuð bitlaust fram á við.
Markatala eftir þrjá leiki aðeins tvo mörk gegn einu á sig (2-1).
Einn sigur gegn ÍA síðan með tvo jafntefli gegn Víking í fyrsta leik og nú síðast 0-0 við Keflavík.
Stigasöfnunin stendur því í 5stigum fyrir þennan leik og Blikar í því 6.sæti, einmitt einu stigi og einu sæti fyrir neðan Þór.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Helsta gagnrýni Blika hefur verið þetta bitleysi sóknarlega og einn af leikmönnum liðsins Óli Valur til dæmis aðeins fengið að heyra það.
Fyrir leik
Dómarateymið Vilhjálmur Alvar Þórarinsson dæmir leikinn í kvöld.
Gylfi Már Sigurðsson og Guðmundur Ingi Bjarnason eru aðstoðardómarar.
Þórður Þorsteinsson Þórðarson er fjórði dómari og Jóhann Gunnarsson er eftirlitsmaður.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Verið velkomin Nóg um að vera í Bestu Deild Karla í dag en hér verðum við með beina textalýsingu frá leik Breiðabliks og Þórs.

Þetta er leikur í 4.umferðinni og rúllum við af stað klukkan 19:15 hér á Kópavogsvellinum.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

mánudagur 27. apríl

Besta karla
17:30 Fram-ÍBV (Lambhagavöllurinn)
18:00 KR-FH (Meistaravellir)
19:15 Breiðablik-Þór (Kópavogsvöllur)
19:15 Víkingur R.-ÍA (Víkingsvöllur)
19:15 Stjarnan-Valur (Samsungvöllurinn)
Byrjunarlið:
1. Aron Birkir Stefánsson (m) (f)
2. Ásbjörn Líndal Arnarsson
5. Yann Emmanuel Affi
8. Einar Freyr Halldórsson
9. Sebastian Haugland ('73)
11. Isaac Atanga ('65)
15. Kristófer Kristjánsson
16. Bjarni Guðjón Brynjólfsson ('19)
18. Sverrir Páll Ingason ('73)
22. Ágúst Eðvald Hlynsson
25. Christian Greko Jakobsen ('65)
- Meðalaldur 24 ár

Varamenn:
28. Franko Lalic (m)
4. Hermann Helgi Rúnarsson
7. Atli Sigurjónsson ('65)
10. Aron Ingi Magnússon ('19)
17. Fannar Daði Malmquist Gíslason ('73)
21. Elvar Baldvinsson
31. Kristófer Kató Friðriksson ('73)
37. Sigfús Fannar Gunnarsson ('65)

Liðsstjórn:
Sigurður Heiðar Höskuldsson (Þ)
Arnar Geir Halldórsson
Stefán Ingi Jóhannsson
Davíð Örn Aðalsteinsson
Konráð Grétar Ómarsson
Eiður Benedikt Eiríksson

Gul spjöld:
Aron Ingi Magnússon ('45)
Yann Emmanuel Affi ('45)
Ásbjörn Líndal Arnarsson ('56)
Kristófer Kristjánsson ('84)

Rauð spjöld: