Fotbolti.net
Besta deildin
@brynjar_oliBrynjar Óli Ágústsson
Brynjar Óli Ágústsson
Stjarnan
Stjarnan
Besta kvenna
Samsungvöllurinn
2 - 0
Valur
Valur
Birna Jóhannsdóttir 61'1 - 0Jana Sól Valdimarsdóttir 90'2 - 0
Dómari: Atli Björn E Levy

SKÝRSLAN: Verðskuldaður sigur hjá Stjörnunni

Hvað réði úrslitum?

Stjarnan byrjuðu leikinn með krafti og það virðist hafa sjokkeraði Vals stelpunum, því í fyrri hálfleik sást ekki mikið í þær. Valur byrjaði seinni hálfleikinn vel, en Stjarnan hélt sinu striki og áttu vel skilið að sigra þennan leik.

Bestu leikmenn

1. Birna Jóhannsdóttir

Var mjög flott að skapa fullt af sóknum fyrir Stjörnuna og átti flott færi í leiknum. Hún skoraði líka fyrsta mark leiksins.

2. Andrea Mist Pálsdóttir

Skapaði mikið af hættu þegar Stjarnan fór upp, var góð í vörninni og átti hættulegar hornspyrnur.

Atvikið

Það var lítið af atvikum í þessum leik, en það var gaman að sjá Stjörnuna loksins brjóta ísinn í leiknum og það var langt bið eftir marki. Það var vel mætt í stúkuna hjá Stjörnunni og voru stuðningsfólk ánægt þegar boltinn fór loks inn.

Hvað þýða úrslitin?

Stjarnan hoppar í 3. sæti í bili og Valur liggur í 5. sæti eftir úrslit dagsins. Það eru þó aðeins tveir leikir búnir af þessari umferð.

Vondur dagur

Það var töluvert andleysi hjá leikmönnum Val, sértsaklega í fyrri hálfleik. Það er þó erfitt að nefna einhvern einn leikmann í þessum leik.

Dómarinn - 8

Lítið hægt að segja um dómarateymið í þessum leik. Fannst þau brjóta stundum flæðið á litlum brotum eða færa boltann um nokkra millimetra til að taka auakspyrnur smá aftar. Annars voru engar erfiðar ákvarðanir teknar og fínn dæmdur leikur.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.