Fotbolti.net
Besta deildin
@fotboltinetSnæbjört Pálsdóttir
Breiðablik
Breiðablik
Besta kvenna
Kópavogsvöllur
2 - 0
Fram
Fram
Líf Joostdóttir van Bemmel 57'1 - 0Barbára Sól Gísladóttir 67'2 - 0
Dómari: Guðmundur Páll Friðbertsson

SKÝRSLAN: Þolinmæði Blika þrautir vinnur allar

Hvað réði úrslitum?

Það sem réði úrslitum í dag var bara viljinn, gæðin og hungrið að klára leikinn hjá Blikunum. Þær voru þolinmóðar og gáfust ekki upp þrátt fyrir að Fram væri með virkilega þéttan varnarpakka að verja markið.

Bestu leikmenn

1. Agla María Albertsdóttir

Agla María var heiðruð fyrir sinn 250 leik fyrir félagið fyrir leik. Hún heldur síðan bara uppteknum hætti með frábærar fyrirgjafir og sem fyrr átti hún stoðsendingu þegar hún lagði upp fyrsta markið fyrir Líf. Frábær leiðtogi og gaman að sjá hvað hún tengir vel við ungu leikmennina fram á við Líf, Ásu, Edith og Sunnu.

2. Sara Svanhildur Jóhannsdóttir

Uppaldi Blikinn Sara Svanhildur átti góðan leik á miðjunni hjá Fram í dag. Lét mikið fyrir sér fara og átti nokkur frábær færi. Óheppin að hafa ekki náð að skora í allavega 2x skipti. Skemmtilegur leikmaður sem verður gaman að fylgjast með í sumar

Atvikið

Set þetta á fyrsta markið hjá Blikum. Voru búnar að vera að leita og leita og leita að þessu fyrsta marki. Agla María náði að brjóta upp leikinn, fann Líf á fjær í teignum sem stangaði boltann inn. Maður hreinlega sá alla leikmenn Blika anda léttar þegar boltinn fór loksins í netið. Þær þurftu að vera mjög þolinmóðar í dag.

Hvað þýða úrslitin?

Úrslitin þýða það að Breiðablik er ennþá á toppi deildarinnar nú með 6 stig og +4 í markatölu. Fram hins vegar eru enn án stiga.

Vondur dagur

Mér finnst engin hafa átt eitthvað slæman dag, sett þetta kannski bara á Hrafnhildi Ásu en bara fyrir að ná ekki að klára færin sín í dag! Annars átti hún bara fínustu frammistöðu.

Dómarinn - 7

Guðmundur Páll og félagar voru bara fínir í dag. Voru ekkert að flauta of mikið og leyfðu leiknum að fljóta. Hef bara ekkert út á þá að setja
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.