Leik lokið!
ÍBV vinnur 3-2!
Eyjakonur vinna sinn annan leik í röð í deildinni í bráðskemmtiegum leik. Víkingskonur sterkari í fyrri hálfleik en Eyjakonur í þeim síðari.
94. mín
Skemmtileg tilraun hjá Olgu
Olga með frábæra tilraun. Vinnur boltann á eigin vallarhelmingi og keyrir upp. Hún sér að Elizabeth er langt út úr markinu og tekur skotið sem fer rétt fram hjá.
93. mín
Emma með fyrirgjöf. Jasmín nær skallanum en hann er frekar soft og Arden gríðpur boltann.
90. mín
+5 í uppbótartíma.
89. mín
Gult spjald
Allison Grace Lowrey
Kemur of seint í tæklingu.89. mín
Víkingar í færi. Jóhanna kemst í skotfæri inn á teignum en auðvelt fyrir Arden sem grípur boltann.
86. mín
Kristín Klara liggur eftir á vellinum eftir að hún fékk boltann í höfuðið.
85. mín
InnAnika Jóna Jónsdóttir
ÚtDagný Rún Pétursdóttir
83. mín
CLARK KEMUR ÍBV Í 3-2!! Þetta lá í loftinu
Allison Patricia Clark
Viktorija þræðis Lowrey í gegn sem nær ekki til boltans. Boltinn dettur fyrir Clark sem tekur skotið fyrir utan teig. Elizabeth ræður ekki við skotið og boltinn í markið. Eyjakonur leiða 3-2!!!82. mín
Olga nálægt því að koma ÍBV yfir
Vel spilað hjá Eyjakonur. Olga fær svo boltann fyrir utan teig og tekur lúmskt skot sem Elizabeth þarf að hafa sig alla við að verja.
80. mín
DAUÐAFÆRI HJÁ LOWREY!!
Anika Jóna missir boltann inn í teig og Allison fær boltann og fer í skotið en það er fram hjá markinu. ALgjört dauðafæri hjá Lowrey þarna sem hefði átt að gera betur.
79. mín
InnMagdalena Jónasdóttir
ÚtFridrikka Marie Clementsen
Fridrikka virist vera hölt eftir samstuðuð við Kristínu Erlu.
79. mín
Olga kemur með flotta sendingu í gegn á Lowrey þar sem hún er ein gegn Emmu. Hún köttar inn og tekur skotið en Emma nær að koma sér fyrir boltann.
77. mín
Sandra með hornið og Clark nær skallanuum en boltinn rétt fram hjá.
76. mín
Clark með fyrirgjöf en Víkingar hreinsa í horn.
75. mín
OLga í færi. Hún og Clark spila vel á milli sín úti hægra megin. Olga keyrir inn á teiginn og tekur skotið úr þröngu færi en skotið er yfir.
70. mín
Clark fær boltann fyrir utan teig og tekur skotið en það er auðvelt fyrir markvörð Víkings sem grípur boltann.
69. mín
InnAnika Jóna Jónsdóttir
ÚtFreyja Stefánsdóttir
Víkingur gerir tvöfalda breytingu
69. mín
InnJóhanna Elín Halldórsdóttir
ÚtBirta Birgisdóttir
Víkingur gerir tvöfalda breytingu
68. mín
Aftur hætta inn á teig Víkings eftir hornspyrnu en Elizabeth nær að handsama boltann að lokum.
67. mín
Olga með spyrnuna og hætta inn á teig Víkinga en þær ná að bjarga í horn.
66. mín
ÍBV fær hornspyrnu eftir fínsta samspil.
64. mín
Gult spjald
Einar Guðnason
64. mín
Rautt spjald
Kristín Erla Ó Johnson
Fær sitt annað gula spjald fyrir brot á Fridrikku.62. mín
FÆRI HJÁ ÍBV!!
Olga keyrir upp vinstra megin og kemur með góðan bolta inn á teiginn. Fridrikka nær snertingu á boltann og kemuur honum á Clark en Víkingar ná að koma boltanum í burtu.
59. mín
Emma gerir vel og kemur með fínustu fyrirgjöf en Arden kemur út og handsamar boltann.
54. mín
Jasmín með fyrirgjöf en Sandra kemur boltanum í burtu.
51. mín
ALLT ORÐIÐ JAFNT!!
Olga Sevcova
ÍBV ekki lengi að þessu. Arden með sendingu fram og Víkingar flikka boltanum í gegn og Olga er sloppin ein í gegn og setur boltann niðri í hornið. Allt jafnt á Hásteinsvelli, 2-2!50. mín
ÍBV minnkar muninn!!
Avery Mae Vanderven (stoðsending: Sandra Voitane)
Frábær sending frá Söndru upp úr aukaspyrnunni sem var við miðlínuna. Avery tekur frábærlega á móti boltanum og klárar svo vel fram hjá Elizubeth í marki Víkings. 1-2!49. mín
Gult spjald
Kristín Erla Ó Johnson
Togar Allison Lowrey niður.48. mín
Bergþóra reynir að þræða Freyju í gegn en Eyjakonur koma boltanum í burtu.
45. mín
Seinni hálfleikur hafinn
Þetta er farið af stað aftur!
45. mín
Hálfleikur
Víkingar leiða í hálfleik
Víkingur leiðir sanngjarnt með tveimur mörkum í hálfleik. Hafa verið sterkari aðilinn í fyrri hálfleik og skapað sér fleiri færi.
Víkingur hefur hins vegar spilað með sterkan vind í bakið og spurning hvort leikurinn verði öðruvísi í síðari hálfleik.
Víkingur hefur hins vegar spilað með sterkan vind í bakið og spurning hvort leikurinn verði öðruvísi í síðari hálfleik.
45. mín
ÍBV með fínasta spil sem endar á Lowrey fær boltann hægra megin á teignum. Hún kemur boltanum á Vikoriju en hún nær ekki góðri snertingu á boltann og missir hann aftur fyrir.
44. mín
Clark með sendingu í gegn á Lowrey en Kristín Erla gerir virkilega vel og Víkingur fær markspyrnu.
43. mín
Allison Lowrey næstum sloppin í gegn en Víkingar bjarga á ögurstundu.
42. mín
Olga fær boltann vinstra megin og gerir virkilega vel gegn Emmu. Kemur með sendingu fyrir markið en Elizabeth nær að slá boltann í burtu.
37. mín
Emma með skot hægra megin úr teignum en Arden í marki ÍBV grípur boltann.
36. mín
Allison Clark með skot utan af velli en það er máttlaust og fer fram hjá markinu.
35. mín
Emma með fínustu fyrirgjöf sem Jasmín nær að skalla. Hún nær ekki nógu vel til boltans og sneiðir hann fram hjá.
32. mín
Emma með fyrirgjöf frá hægri en hún er of löng og fer aftur fyrir markið.
32. mín
Þórdís tók spyrnuna á fjær og Bergís með skallann en hann er framhjá markinu.
31. mín
Víkingur fær aukaspyrnu nánast út við hornfána.
30. mín
Emma keyrir upp að endalínu og kemur með fyrirgjöf en Eyjakonur hreinsa afturfyrir og Víkingar fá enn eitt hornið.
29. mín
Bergdís með hornið en það svífur yfir allt og afturfyrir.
28. mín
Bergdís með skot en það fer af varnarmanni og aftur fyrir. Víkingur fær annað horn.
27. mín
Víkingur fær horn.
25. mín
0-2!!
Jasmín Erla Ingadóttir (stoðsending: Emma Steinsen Jónsdóttir)
Víkingar bruna upp í sókn eftir færið hjá Allison Clark. Emma fær boltann hægri megin og keyrir upp. Hún kemur svo með frábæra sendingu inn á markteig ÍBV og þar er Jasmín mætt og setur boltann yfir línuna. Víkingur leiðir 0-2!25. mín
Frábærlega gert hjá Allison Clark. Vinnur boltann af Þórdísi og kemur sér í skotfæri en skotið er framhjá.
23. mín
Olga reynir að þræða Lowrey í gegn en sendingin of löng.
21. mín
Víkingur er komið í 0-1!
Bergdís Sveinsdóttir
Bergdís setur boltann örugglega framhjá Arden sem stóð algjörlega kyrr.20. mín
VÍTI!!!!
Víkingur fær Víti, Avery tekur Freyju niður inn í teig.
18. mín
DAUÐAFÆRI HJÁ VÍKINGUM
Jasmín með skemmtilega sendingu í gegn á Bergdísi sem er komin ein á móti Arden sem ver frábærlega frá henni. Víkingur fær horn í kjölfarið.
17. mín
Fínt spil hjá Kristín Klöru og Lowrey. Kristín kemur með fyrirgjöf en hún er á engan.
16. mín
Viktorija með góða sendingu í gegn á Allison Lowrey en hún nær ekki valdi á boltanum og Elizabeth í marki Víkinga nær boltanum.
15. mín
Olga með fínsustu fyrirgjöf frá hægri og Allison nær skallanum en Víkingar ná að hreinsa.
11. mín
Þórdís með fyrirgjöf frá vinstri en Kristín Klara kemur boltanum í burtu.
10. mín
Víkingar spila boltanum vel á milli sín sem endar með fyrirgjöf en boltinn fer aftur fyrir.
6. mín
Bæði lið að reyna að spila boltanum á milli en mikill vindur hefur áhrif.
2. mín
Fridrikka kemur með sendingu í gegn á Allison Clark en flaggið fer á loft.
1. mín
Leikur hafinn
Þetta er farið af stað. ÍBV byrjar með boltann og leikur í átt að Týssvelli.



