Vinicius Jr orðaður við Man City - Bayern vill Gordon - Arsenal, Liverpool og Barcelona hafa áhuga á Barcola
Lengjudeild karla
ÍR
LL 2
2
Grindavík
Lengjudeild karla
Leiknir R.
LL 0
3
Afturelding
Besta karla
Stjarnan
LL 2
3
KR
Besta karla
Breiðablik
LL 3
3
FH
Besta karla
ÍA
LL 1
3
Keflavík
Besta karla
Fram
LL 3
2
Valur
Lengjudeild karla
Njarðvík
LL 2
0
Fylkir
Besta karla
Víkingur R.
LL 6
0
Þór
Leiknir R.
0
3
Afturelding
0-1 Joacim Holtan '72
0-2 Róbert Agnar Daðason '82
0-3 Bart Kooistra '87
08.05.2026  -  19:15
Domusnovavöllurinn
Lengjudeild karla
Dómari: Gunnar Freyr Róbertsson
Byrjunarlið:
1. Ólafur Íshólm Ólafsson (m)
5. Daði Bærings Halldórsson (f)
10. Shkelzen Veseli
19. Axel Freyr Harðarson ('79)
20. Dagur Ingi Hammer Gunnarsson ('79)
27. Rúrik Gunnarsson ('89)
45. Djorde Vladisavljevic
55. Anton Fannar Kjartansson
66. Viktor Andri Pétursson
70. Marko Veselinovic ('70)
92. Eiríkur Örn Beck ('79)
- Meðalaldur 24 ár

Varamenn:
12. Jakub Górski (m)
7. Birnir Breki Burknason ('79)
9. Jóhann Kanfory Tjörvason ('79)
11. Gísli Alexander Ágústsson ('70)
21. Egill Ingi Benediktsson
23. Aron Skúli Brynjarsson ('89)
71. Arnór Valur Ágústsson ('79)
- Meðalaldur 21 ár

Liðsstjórn:
Brynjar Björn Gunnarsson (Þ)
Gísli Friðrik Hauksson
Loftur Páll Eiríksson
Nemanja Pjevic
Ari Þór Kristinsson
Arion Aron Veselaj
Patrekur Andrés Axelsson

Gul spjöld:
Marko Veselinovic ('65)

Rauð spjöld:
Leik lokið!
Skýrsla og viðtöl á leiðinni, takk fyrir mig.
92. mín
Bjartur Bjarmi fær boltann inn í teignum, skotið er beint á Óla.
92. mín Gult spjald: Aron Elí Sævarsson (Afturelding)
90. mín
+3
89. mín
Inn:Aron Skúli Brynjarsson (Leiknir R.) Út:Rúrik Gunnarsson (Leiknir R.)
89. mín
Inn:Ari Hrafn Haraldsson (Afturelding) Út:Bart Kooistra (Afturelding)
87. mín MARK!
Bart Kooistra (Afturelding)
Stoðsending: Trausti Þráinsson
Sending í gegnum vörn Leiknis sem er galopin, Kooistra vippar honum svo yfir markmannin.
87. mín
Cogic með ótrúlega takta á kantinum með svaka snertingu og leikur á varnarmenn Leikni.
86. mín
Hornið fer ekki neitt.
85. mín
Cogic keyrir á vörn Leiknis á hægri kantinum, tekur skotið í þröngu færi en Óli þarf að verja hann samt fyrir horn.
82. mín MARK!
Róbert Agnar Daðason (Afturelding)
Stoðsending: Bart Kooistra
Kooistra kemst í gegnum vörn Leiknis sendir svo á Róbert sem er fyrir framan markvörðinn nær að snúa sér fyrir framan hann og skorar framhjá honum.
80. mín
Inn:Róbert Agnar Daðason (Afturelding) Út:Joacim Holtan (Afturelding)
80. mín
Inn:Gunnar Bergmann Sigmarsson (Afturelding) Út:Birkir Már Sævarsson (Afturelding)
80. mín
Inn:Trausti Þráinsson (Afturelding) Út:Jón Vignir Pétursson (Afturelding)
79. mín
Inn:Arnór Valur Ágústsson (Leiknir R.) Út:Axel Freyr Harðarson (Leiknir R.)
79. mín
Inn:Jóhann Kanfory Tjörvason (Leiknir R.) Út:Eiríkur Örn Beck (Leiknir R.)
79. mín
Inn:Birnir Breki Burknason (Leiknir R.) Út:Dagur Ingi Hammer Gunnarsson (Leiknir R.)
77. mín
Skyndisókn hjá Aftureldingu, Kooistra kemur með fyrirgjöf sem fer í varnarmann og fyrir horn.

Hornið fer svo ekki neitt.
75. mín
Arnar Daði er mjög tæpur í seinni hálfleik með þessar sendingar úr markinu.

Nánast allar fara út af.
74. mín
Inn:Enes Þór Enesson Cogic (Afturelding) Út:Óðinn Bjarkason (Afturelding)
72. mín MARK!
Joacim Holtan (Afturelding)
Birkir á hægri kantinum með fyrirgjöf inn í teig á Óðinn, en skotið hans fer beint í varnarmann, en boltinn dettur svo á Holtan sem slúttar honum inn.
70. mín
Inn:Gísli Alexander Ágústsson (Leiknir R.) Út:Marko Veselinovic (Leiknir R.)
67. mín
Sókn hjá Aftureldingu, Leiknir er að henda sér á boltann í tæklingar. Bjartur Bjarmi fær svo galopið markið en hann endar á að skjóta yfir markið.
66. mín
Jón Vignir með skalla frá aukaspyrnu Cogic en Óli Íshólm ver léttilega.
65. mín Gult spjald: Marko Veselinovic (Leiknir R.)
Holtan var að fara sleppa í gegn. Tekur hann niður en mér fannst Holtan hefði getað haldið áfram að hlaupa. Smá soft.
64. mín
Cogic með skot sem fer í varnarmann. Afturelding vill hendi, ég sá það ekki fara í höndina.
62. mín
Kooistra með skot rétt fram hjá markinu.
60. mín
Sláin Veseli með skot í slána!

Andi Hoti með slaka sendingu á Rúrik sem tekur alltof langan tíma að hugsa, sendir á Veseli sem tekur skotið.
59. mín
Axel Freyr étur Cogic með svaka tæklingu.
59. mín
Flott build up hjá Leikni en Andi Hoti nær að stoppa sóknina.
58. mín
Veselinovic reynir að koma með fyrirgjöf en hún fer út af.
56. mín
Veseli að leika við Aftureldingu, kemst framhjá nokkrum en Leiknir gerir svo ekki neitt við boltann.
55. mín
Cogic keyrir upp hægri kantinn, sendir svo á Holtan sem tekur í fyrsta en Ólafur ver léttilega.
55. mín
Enes Cogic senior er flottur á hliðarlínunni.
51. mín
Ólafur Íshólm grípur boltann frá horninu.
50. mín
Bjartur Bjarmi keyrir inn í teig en finnur ekki skot færi né finnur ekki neinn til þess að senda til og endar að næla sér í horn.
50. mín
Boltinn dettur á Daða rétt fyrir utan teiginn en skotið hans fer yfir.
48. mín
Dauðafæri Axel og Aron eru í klafsi og Dagur Hammer nær boltanum af þeim, kemst í 1v1 en skotið er beint á markmanninn.

Hann á að skora!
47. mín
Þetta ,,Birgisson" merki sem er aftan á búning Aftureldingu er smá villandi.
46. mín
Seinni hálfleikur Vonum eftir betri seinni.

Leiknir byrjar með því að sparka honum fyrir markspyrnu fyrir Afturelding.

Arnar Daði endar svo ap sparka boltanum út fyrir innkast.
45. mín
Hálfleikur
Sjáumst eftir korter.

Bæði liðin hafa fengið færi en það vantar einhvern til þess að pota boltanum inn. Cogic er búin að vera líflegur en flest öll sóknin hjá Leikni hefur gerst þar sem Birkir er á vellinum.

Birkir Már með alvöru takta í sókninni samt!
45. mín
+1
44. mín
Kooistra með sendingu fram hjá markinu en það er enginn þarna til þess að pota boltanum inn.
44. mín
Dauðafæri Hár bolti á Viktor Andra sem er komin í gegnum vörnina en hann tekur volley og skýtur yfir.
44. mín
Bjartu Bjarmi með skotið fyrir utan teig en Ólafur Íshólm ver léttilega.
42. mín
Það er nú lítið að gerast.
40. mín
Leiknismenn hafa herjað á Mosfellinga síðustu 5 mínútur.
40. mín
Rúrik með horn sem fer fyrir markspyrnu.
39. mín
Beck með sendingu inn í teig á Hammer en skotið hans fer í varnarmann og fyrir horn.
37. mín
Veseli er í veseni með sendingarnar.
35. mín
Viktor Andri keyrir upp vinstri kantinn og leikur Andi Hoti grátt, en Andi nær svo tæklingunni rétt þegar Viktor er að taka skotið og Arnar Daði pikkar upp boltann.
33. mín
Birkir með frábæra sendingu í gegnum vörn Leiknis á Holtan sem er svo dæmdur rangstæður.

Leit út fyrir að vera fyrir innan.
32. mín
Veseli er að reyna of mikið með þessar háu sendingar og hefur þá Dagur Hammer ekki gert mikið í leiknum.
Er kominn tími á pizzu? Nú er stutt í hálfleik og fullkominn tími til að panta pizzu til að njóta með seinni hálfleiknum! Kíktu á Dominos.is
30. mín
Leiknir eru að reyna á háu boltana, Axel Óskar hefur étið allar þessar sendingar.
26. mín
Kooistra með hjólhesta spyrnu sem fer yfir markið.
25. mín
Cogic er niðri eftir baráttu við Axel Frey, fékk í andlitið.
24. mín
Axel Freyr reynir að senda í gegnum vörn Aftureldingu en það er engin þarna til þess að taka á mót boltanum.
23. mín
Andi Hoti með skalla á markið en skallinn er skallaður burt.
21. mín
Dauðafæri Axel Freyr keyrir upp vinstri kantinn og cuttar inn en skotið fer rétt framhjá markinu.
17. mín
Ólafur Íshólm ver aftur eftir skalla beint á markið.
17. mín
Beck fær tiltal eftir að hafa togað í Birki í skyndisókn.

Enes Cogic aðstoðarþjálfari er ekki ánægður og vill spjald og ég er sammála honum.
14. mín
Varsla! Skot langt frá sem Ólafur Íshólm ver, boltinn dettur á Cogic inn í teig en Ólafur Íshólm ver frá honum aftur.

Þetta átti að vera 1-0.
13. mín
Axel Óskar eð neglu fyrir aftan teig.

Ólafur Íshólm ýtir boltanum yfir slána.
11. mín
Dauðafæri Birkir kemur með sendingu fram fyrir markið, það eru þrír Aftureldings leikmenn í kjörstöðu til þess að skora en boltinn rennur samt framhjá þeim.
Lengjudeildin er á Livey - Með kóðanum fotboltinet fæst 30% afsláttur af fyrsta mánuðinum! Livey
10. mín
Birkir er enn með þetta Birkir nær annari fyrirgjöf en Leiknis menn ná að skalla burt.
9. mín
Birkir kemst framhjá vörn Leiknis og kemur með sendingu fram fyrir markið en það er engin leikmaður til þess að pota boltanum inn.
7. mín
Arnar Daði er að leika sér að eldinum, reynir að sóla leikmenn Leiknis. Sendingin fer beint á Daða Bærings sem tekur skotið en það er slakt og Arnar Daði grípur upp boltann.
5. mín
Cogic með skalla en það er sparkað af línunni.

Dómarinn dæmir svo rangstöðu.
4. mín
Axel Óskar með langt innkast inn í teig Leiknis, þetta var eins og eldflaug.

Leiknismenn skalla hann burt samt.
1. mín
Birkir að næla í horn.

Hornið var nú samt frekar lélegt.
1. mín
Leikur hafinn
Afturelding byrja leikinn.
Fyrir leik
Korter í leik Byrjunarliðin eru mætt, samkvæmt skýrslum KSÍ eru það treyju númera breytingar hjá Leikni, Dagur Hammer var í nr. 88 og er núna í nr. 20. Vladisavljevic var í nr. 4 en er núna í nr. 45 og Eiríkur Örn Beck í nr. 92 eftir að hafa verið í nr. 2. í síðasta leik.

Annars eru Cogic, Birkir og Axel Óskar allir á sínum stað hjá Aftureldingu. Enes Cogic fer á bekkinn fyrir Kooistra.
Fyrir leik
Markús Páll Ellertsson er spámaður umferðarinnar Leiknir R. 3 - 0 Afturelding

,,BBB masterclass."


Fyrir leik
Dómarateymið Gunnar Freyr Róbertsson er dómari kvöldsins. Honum til aðstoðar eru þeir Guðni Freyr Ingvarsson og Kristófer Bergmann.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Sagan Leiknir og Afturelding hafa ekki spilað gegn hvor öðrum síðan sumarið 2024.

Þegar Leiknir tók á móti Aftureldingu sumarið 2024 þá tóku Mosfellingar stigin þrjú heim. Oliver Jensen danskur leikmaður sem spilar núna fyrir Thisted í heimalandinu skoraði eina mark leiksins.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Þegar Afturelding tók á móti Leikni þá þurftu liðin tvö að deila stigunum. Elmar Cogic skoraði fyrir Mosfellinga en núverandi leikmaður ÍBV Omar Sowe skoraði fyrir Leikni.
Fyrir leik
Afturelding Mosfellingar hafa ekki byrjað sumarið vel. Afturelding töpuðu í fyrstu umferð gegn ÍR 4-7 á heimavelli. Eftir markaleik þá kom Völsungur í heimsókn og gerðu bragðdauft 0-0 jafntefli. Afturelding situr þá í 10. sæti með 1 stig og markatöluna -3.

Spurning hvort að Afturelding getur gert betur á úti vellinum?

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Leiknir Leiknir eru taplausir hingað til, jafntefli gegn Völsungi á Húsavík og 2-1 sigur gegn Gróttu á Seltjarnarnesinu.

Leiknir situr í fjórða sæti með 4 stig og markatöluna +1.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Dagur Ingi Hammer er markahæstur liðsins og í deildinni. Hann hefur skorað þrjú mörk.

Hammer skoraði tvö mörk gegn Gróttu í síðustu umferð.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Fyrir leik
Lengjudeildin kallar Heil og sæl kæru lesendur og verið velkomin í beina textalýsingu frá Breiðholtinu þar sem Leiknir fær Aftureldingu í heimsókn.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Byrjunarlið:
1. Arnar Daði Jóhannesson (m)
2. Birkir Már Sævarsson ('80)
3. Axel Óskar Andrésson
5. Jón Vignir Pétursson ('80)
6. Aron Elí Sævarsson (f)
8. Bart Kooistra ('89)
9. Joacim Holtan ('80)
10. Elmar Kári Enesson Cogic
11. Óðinn Bjarkason ('74)
16. Bjartur Bjarmi Barkarson
33. Andi Hoti
- Meðalaldur 25 ár

Varamenn:
85. Kristján Hjörvar Sigurkarlsson (m)
4. Gunnar Bergmann Sigmarsson ('80)
23. Ari Hrafn Haraldsson ('89)
24. Trausti Þráinsson ('80)
27. Enes Þór Enesson Cogic ('74)
29. Þórður Ingason
79. Róbert Agnar Daðason ('80)
- Meðalaldur 22 ár

Liðsstjórn:
Magnús Már Einarsson (Þ)
Baldvin Jón Hallgrímsson
Þorgeir Leó Gunnarsson
Heiðar Númi Hrafnsson
Enes Cogic
Gunnar Ingi Garðarsson
Garðar Guðnason

Gul spjöld:
Aron Elí Sævarsson ('92)

Rauð spjöld: