Vinicius Jr orðaður við Man City - Bayern vill Gordon - Arsenal, Liverpool og Barcelona hafa áhuga á Barcola
Lengjudeild karla
ÍR
45' 2
0
Grindavík
Lengjudeild karla
Leiknir R.
87' 0
3
Afturelding
Besta karla
Stjarnan
87' 2
3
KR
Besta karla
Breiðablik
88' 3
3
FH
Besta karla
ÍA
85' 1
3
Keflavík
Besta karla
Fram
87' 2
2
Valur
Lengjudeild karla
Njarðvík
87' 2
0
Fylkir
Besta karla
Víkingur R.
LL 6
0
Þór
Fram
2
2
Valur
0-1 Tryggvi Hrafn Haraldsson '2
Kennie Chopart '10 1-1
1-2 Adam Ægir Pálsson '14
Simon Tibbling '45 , víti 2-2
08.05.2026  -  19:15
Lambhagavöllurinn
Besta karla
Dómari: Helgi Mikael Jónasson
Byrjunarlið:
22. Viktor Freyr Sigurðsson (m)
3. Þorri Stefán Þorbjörnsson
5. Kyle McLagan
8. Haraldur Einar Ásgrímsson
10. Fred Saraiva ('82)
12. Simon Tibbling
17. Atli Þór Jónasson ('70)
18. Ægir Jarl Jónasson
19. Kennie Chopart (f)
26. Sigurjón Rúnarsson
29. Vuk Oskar Dimitrijevic
- Meðalaldur 27 ár

Varamenn:
1. Sigurjón Daði Harðarson (m)
7. Kristófer Konráðsson
14. Bjarni Páll Linnet Runólfsson
15. Jakob Byström ('82)
16. Israel Garcia
23. Már Ægisson
25. Freyr Sigurðsson ('70)
- Meðalaldur 25 ár

Liðsstjórn:
Rúnar Kristinsson (Þ)
Helgi Sigurðsson
Magnús Þorsteinsson
Einar Haraldsson
Friðgeir Bergsteinsson
Sævar Halldórsson
Guðmundur Gígjar Sigurbjörnsson
Kristján Finnbogi Finnbogason

Gul spjöld:
Sigurjón Rúnarsson ('39)

Rauð spjöld:
87. mín
Það styttist í loka flautið og mark hér gæti orðið mjög dýrmætt.
82. mín
Haraldur Einar aftur með hornspyrnu sem endar í fjær horninu en þarna þurfti Schram heldur betur að hafa fyrir þessari vörslu.
82. mín
Inn:Jakob Byström (Fram) Út:Fred Saraiva (Fram)
79. mín
Inn:Ingimar Torbjörnsson Stöle (Valur) Út:Adam Ægir Pálsson (Valur)
79. mín
Inn:Birkir Heimisson (Valur) Út:Lúkas Logi Heimisson (Valur)
77. mín
Adam Ægir og Tryggvi í hættulegri sókn en fá hornspyrnu.
74. mín
Chopart skorar aftur! Helgi Mikael dæmir brot á Frederik Schram sem náði ekki að mynda sig fyrir að verja skotið frá Chopart.

Mögulega einhver snerting þarna frá Ægir Jarl sem lá þarna í einhverri þvögu. Framarar skiljanlega fúlir út í þessa ákvörðun.
73. mín
Kennie Chopart reynir lúmskt skot en Schram heldur áfram að verja.

Valsmenn bruna í sókn og Skoglund nær ekki að hæla boltann bakvið sig í fjær.
70. mín
Inn:Orri Sigurður Ómarsson (Valur) Út:Ólafur Flóki Stephensen (Valur)
70. mín
Inn:Freyr Sigurðsson (Fram) Út:Atli Þór Jónasson (Fram)
70. mín
Tryllt varsla hjá Schram! Boltinn var hjá Fred í teignum og hann er beint fyrir framan markið en Frederik gerir sig stóran og ver þetta frábærlega.

Kannski bara of nálægt markinu þarna hann Fred.
69. mín
Fred orðinn óþolinmóður á drollinu á boltanum hjá hafsentunum sínum í uppspilinu.
65. mín
Valsarar virðast búnir að standa af sér smá storm frá heimamönnum í byrjun þessara seinni hálfleiks.
64. mín
Inn:Albin Skoglund (Valur) Út:Dagur Orri Garðarsson (Valur)
Dagur skilar ágætis frammistöðu hér í dag en pottþétt ósáttur að hafa ekki náð marki inn.
62. mín Gult spjald: Ólafur Flóki Stephensen (Valur)
Hann er nú bara í einhverjum hrikalegum brota gír Brunar upp völlinn á Fred og sparkar hann niður rétt eftir að hann losar boltann.
61. mín
Kennie Chopart virðist alveg búin, leggst hér niður og heldur um magann eða rifbeinið.

Eflaust eitthvað að eftir þetta samstuð áðan.
58. mín
Þetta var alvöru samstuð, Ólafur Flóki sem óð í Kennie Chopart við hliðarlínuna. Tók eflaust vel á báða en Ólafur Flóki heppin að vera ekki kominn með spjald.

Stúkan skiljanlega ósátt.
57. mín
Adam Ægir, Tryggvi og Dagur Orri er að tengja ágætlega. Spiluðu vel upp en sendingin frá Tryggva til Dags aðeins of slök þannig Framarar sáu um þetta.
54. mín
Atli Þór með alvöru dýfu, reynir að sækja aðra vítaspyrnu.

Helgi Mikael ekki lengi að segja honum að standa upp.
51. mín
Bjarni Mark með flottan bolta sem rúllar gegnum teiginn, Tryggvi aðeins of seinn og náði ekki til boltans á fjær.
49. mín
Tryggvi Hrafn er allt í öllu frammi hjá Val, átti í smá brasi með móttökuna sína en náði síðan döpru skoti á markið.
47. mín
Frederik með vörslu! Vuk Oskar gerði vel að halda Samúel Kára frá sér og fann síðan Atla sem tók skot en Frederik Schram varði vel.

Það hefur verið nóg að gera hjá báðum markvörðum.
46. mín
Tryggvi slapp strax einn í gegn og reyndi aftur að vippa yfir Viktor Freyr en auðvelt þarna fyrir markvörð Fram.
46. mín
Seinni Hálfleikur kominn í gang! Engar breytingar, Valsmenn sem byrja seinni hálfleikinn.
45. mín
Hálfleikstölfræði af Sýn Sport Með boltann: 51% - 49%
Marktilraunir: 15-3
Á mark: 5-3
Heppnaðar sendingar: 178-183
45. mín
XB

Í hálfleik á þessum Reykjavíkurslag er rétt að rifja upp að þegar Einar Þorsteins, oddviti Framsóknar, var borgarstjóri þá tók hann í hornin á rekstri borgarinnar og fór úr 16 milljarða halla yfir í 5 milljarða kr afgang. Á aðeins einu ári hefur núverandi meirihluti undir stjórn Samfylkingar, steypt borginni aftur í skuldir og hallinn er nú 5,3 milljarðar. XB

- Auglýsing -
45. mín
Hálfleikur
Við kvörtum ekki yfir þessum fyrri hálfleik!

2-2 og vonandi meiri skemmtun í seinni.
45. mín
Fred með flottan bolta á Chopart en hann náði ekki alveg nógu kröftugu skoti, þannig Schram ver þægilega
45. mín Mark úr víti!
Simon Tibbling (Fram)
AFTUR JAFNT! Öruggt víti og Schram sem fór í vitlausa átt.
45. mín
VÍTI FYRIR FRAM! Atli Þór tekinn niður í teignum, Ólafur Flóki sem tekur hann niður.

Að mínu mati mjög klaufalegt, Hólmar Örn virtist vera með fín völd á Atla en Ólafur Flóki mætti seint og sparkaði í Atla og þá fara sniðugir sóknarmenn bara niður.
45. mín
3mín í uppbót Fred heldur áfram að reyna að skapa og skjóta.
43. mín
VIKTOR FREYR!!!!! Tryggvi sem er með boltann á hlaupinu og gerir vel í að finna Dag Orra en á einhvern magnaðan hátt er Viktor Freyr bara tilbúin fyrir þetta og breiðir vel úr sér og étur þennan bolta bara.

GEGGJUÐ VARSLA og MIKILVÆG!
42. mín
Fred með skot Valsmenn gera vel að verja markið og blokka skotin
39. mín Gult spjald: Sigurjón Rúnarsson (Fram)
Tekur utan um Dag Orra.

Réttilega dæmt gult.
38. mín
Auka fyrir Fram á hættilegum fyrirgjafar stað.

Haraldur sem tekur spyrnuna og boltinn svífur í átt að fjær horninu en Frederik Schram kýlir í hornspyrnu.
37. mín
Nokkuð um svona næstum því hættur, Valsmenn voru að búa til fína sókn en Ægir Jarl átti góða tæklingu til að stoppa það.
35. mín
Fram að stoppa uppspil Vals virkilega vel en Vuk og Ægir smá að þvælast fyrir hvort öðrum og skot sem endar en og aftur yfir.
34. mín
Fred Saraiva reynir erfitt skot sem fer yfir.
33. mín
Adam Ægir sem reynir fyrirgjöf í teiginn en náð að skalla burtu rétt áður en Hólmar Örn hefði getað komist í boltann rétt fyrir framan markið.
Er kominn tími á pizzu? Nú er stutt í hálfleik og fullkominn tími til að panta pizzu til að njóta með seinni hálfleiknum! Kíktu á Dominos.is
32. mín
Valsmenn að færast aðeins ofar á völlinn.
29. mín
Haraldur Einar sem liggur núna eftir.

Dagur Orri sem tók þarna tæklingu, virtist í fyrstu nokkuð góð tækling bara en eflaust farið illa í Harald.

Heldur leik áfram en eitthvað smá særður á mjöðminni.
28. mín
Haraldur Einar með bolta meðfram marki Vals en einhvern veginn náði enginn til boltans, auðvelt pot sem hefði getað skilað marki þarna.
25. mín
Helgi Mikael meiddur? Eitthvað sem hefur verið vont fyrir Helga þarna, vonandi að hann geti nú haldið áfram sínum leik á flautunni
23. mín
Viktor Freyr að hreinsa bolta frá Adam Ægir sem reyndi að hitta á Tryggva í hlaupinu.

Vel skallað í burtu fyrir utan teig þarna hjá Viktori.
21. mín
Chopart að reyna finna einhvern samherji í teignum en Hólmar Örn hreinsar í annað horn.
20. mín
Framliðið er virkilega djarft um þessar mundir, fylla teigin vel og halda sér vel ofarlega þegar þeir hafa boltann.
16. mín
Ægir Jarl aftur! Núna inn í teignum en Bjarni Mark kemur sér fyrir skotið og horn.
14. mín MARK!
Adam Ægir Pálsson (Valur)
Stoðsending: Tryggvi Hrafn Haraldsson
JÁ FÍNT JÁ SÆLL!!! ÓTRÚLEGA góð sending frá Tryggva lengst frá markinu sem finnur Adam Ægir á fjær og hann treður þessum bolta inn!

2-1! MARK Á FIMM mín fresti!
12. mín
Langt innkast sem Chopart tekur, McLagan reynir að framlengja fyrir markið en Valsmenn ná að hreinsa.
10. mín MARK!
Kennie Chopart (Fram)
Stoðsending: Atli Þór Jónasson
ALLT JAFNT! Vinna boltann vel mjög framarlega og Atli Þór finnur Kennie Chopart á hægri horni teigsins og hann klárar virkilega vel.

Hann er markasjúkur!

1-1!!!
9. mín
Ægir Jarl lætur vaða! Fær fínt pláss og tekur fast skot en rétt yfir, góð tilraun!
8. mín
Fred með fínan bolta úr aukaspyrnu en Kyle McLagan skallar yfir.
6. mín
Stilling liðanna Fram er bara í sínu 5-3-2

Valur stillir Tryggva fremstan við hlið Dag Orra sem sér um hlaupin og pressuna. Sýnist smá 4-4-2 bragur yfir þeim hér.
5. mín
Adam Ægir tekinn nokkuð hressilega niður af Fred á miðjunni
2. mín MARK!
Tryggvi Hrafn Haraldsson (Valur)
úúúff! Þetta er ekki góð byrjun fyrir Fram. Aukaspyrna sem er hreinsað frá og Tibbling klúðrar agalega sendingu.

Tryggvi nýtur ægileg mistök frá Tibbling og fær þægilegt hlaup upp völlinn einn á einn og klárar snyrtilega með "chippi" gegn Viktori Frey sem var gert erfitt fyrir.

1-0 Valur!
1. mín
Leikur hafinn
Það eru heimamenn sem keyra þetta af stað!

Skemmtilegt veður til að byrja með, vonandi að við fáum góða skemmtun hér í kvöld!
Fyrir leik
Fram og Valur í fyrra Þessi lið mættust síðast í efri hluta Bestu Deildarinnar í fyrra,
þar fór Fram með 2-0 sigur af velli og bæði mörkin komu frá Fred.

Það styttist í upphafssparkið!
Fyrir leik
Kristalkúlan
Fyrir leik
Byrjunarliðin komin! Smá breytt lið Vals en Fram liðið er skipað sömu mönnum og byrjuðu í síðasta leik og sóttu glæsilegan endurkomu sigur gegn FH.

Fyrir leik
Verið að græja alvöru stemningu hjá Fram í kvöld!

Fyrir leik
Valur Valur kemur í þennan slag á öðrum nótum, þeir áttu stórskemmtilegan leik gegn KR í síðustu umferð sem endaði með 4-1 KR sigri. Eina mark Vals skoraði Dagur Orri Garðars á 90mín.
Markmannsþjálfari Vals Emil Alexander Larsen fékk að líta rauða spjaldið í hálfleik gegn KR.

Valsmenn eru hinsvegar á fínasta stað í töflunni og það er mikið til að berjast um hér í kvöld. Valur situr nefninlega í 5.sæti aðeins einu stigi eftir mótherja kvöldsins.
Þrír sigrar og tvö töp skila 9 stigum á töfluna. Eini útileikur þeirra af því sem er búið var 2-4 sigur á Stjörnunni í þar síðustu umferð.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Fram Í síðasta leik Frams var heldur betur sóttur góður sigur á FH í Kaplakrikanum. Þeir komu til baka úr 3-1 stöðu í hálfleik og sóttu stigin þrjú með 3-4 sigri þar sem Kennie Chopart setti 2 síðustu mörk leiksins. Þorri Þorbjörnsson og Ægir Jarl skoruðu báðir eitt.

Það er ekki við öðru að búast en að Fram liðið sé nokkuð bratt eftir fínustu byrjun á mótinu.
Þeir sitja í 4.sæti fyrir þessa umferð með 10 stig úr þrem sigrum, einu jafntefli og einu tapi.
Ennþá taplausir hér á Lambhagavellinum og það er eflaust eitthvað sem menn vilja halda í.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Leikmanna glugginn lokaður Framarar
Komnir
Ægir Jarl Jónasson frá Danmörku
Atli Þór Jónasson frá Víkingi á láni
Sigurjón Daði Harðarson frá Fjölni
Bjarni Páll Linnet Runólfsson frá Aftureldingu
Sigfús Árni Guðmundsson frá Þrótti (var á láni)

Farnir
Tryggvi Snær Geirsson í Þrótt R
Alex Freyr Elísson í Njarðvík og svo NSÍ Runavík
Bjarki Arnaldarson í KFG (var á láni frá Leikni)
Guðmundur Magnússon í Njarðvík (var á láni hjá Breiðabliki)

Vals-liðið
Komnir
Samúel Kári Friðjónsson frá Stjörnunni
Ingimar Torbjörnsson Stöle frá KA
Dagur Orri Garðarsson frá HK
Kristófer Dagur Arnarsson frá Fjölni
Myles Veldman frá Litháen

Farnir
Sigurður Egill Lárusson í Þrótt R.
Daði Kárason í Víking Ó. (var á láni hjá Selfossi)
Marius Lundemo til Noregs
Stefán Gísli Stefánsson í Njarðvík á láni
Sveinn Sigurður Jóhannesson í Stjörnuna
Mattías Kjeld í Gróttu
Andi Hoti í Aftureldingu á láni

Fyrir leik
Spámaður 6.umferðar Júlíus Mar Júlíusson var fenginn til að spá fyrir úrslitum í þessari umferð.

Fram 2 - 2 Valur (19:15 í kvöld)
Stál í stál dæmi. Nammi leikur á Lambhagavelli þar sem bæði lið sækja til sigurs. Ægir Jarl brýtur ísinn fyrir Framara en Ólafur Flóki jafnar leikinn með skalla. Adam Páls kemur síðan Völsurum yfir og heldur að hann sé búinn að tryggja þeim sigur en Íslenski Fadearinn (Arnar Daníel) er ekki á sama máli og jafnar leikinn með hjólhestaspyrnu í uppbótartíma og allt tryllist.

Fyrir leik
Dómarateymið Í þessum leik er Helgi Mikael Jónasson á flautunni.

Aðstoðardómari 1 og 2 eru Þórður Arnar Árnason og Tomasz Piotr Zietal.

Fjórði dómari er Róbert Þór Guðmundsson og Dómaraeftirlitsmaður
er Gunnar Helgason.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Föstudags Fótbolti! Verið velkomin kæru lesendur. Það er nógu um að vera í kvöld og hér verður leik Fram og Vals textalýst í þráð beinni frá Lambhagavellinum.

6.umferðin fer í gang með heilum 5 leikjum í kvöld!

Leiknum verður sparkað af stað 19:15
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Byrjunarlið:
18. Frederik Schram (m)
3. Hörður Ingi Gunnarsson
6. Bjarni Mark Duffield
12. Tryggvi Hrafn Haraldsson
15. Hólmar Örn Eyjólfsson (f)
17. Lúkas Logi Heimisson ('79)
19. Dagur Orri Garðarsson ('64)
21. Jakob Franz Pálsson
23. Adam Ægir Pálsson ('79)
28. Samúel Kári Friðjónsson
66. Ólafur Flóki Stephensen ('70)
- Meðalaldur 27 ár

Varamenn:
25. Stefán Þór Ágústsson (m)
11. Ingimar Torbjörnsson Stöle ('79)
13. Kristján Oddur Kristjánsson
14. Albin Skoglund ('64)
16. Loki Kristjánsson
20. Orri Sigurður Ómarsson ('70)
22. Birkir Heimisson ('79)
24. Myles A Veldman
30. Gunnar Karl Heiðdal
- Meðalaldur 23 ár

Liðsstjórn:
Hermann Hreiðarsson (Þ)
Halldór Eyþórsson
Einar Óli Þorvarðarson
Örn Erlingsson
Chris Brazell
Baldvin Orri Friðriksson
Kirian Elvira Acosta
Vignir Snær Stefánsson

Gul spjöld:
Ólafur Flóki Stephensen ('62)

Rauð spjöld: