Fotbolti.net
Einar Már Þórólfsson
Lengjudeild karla
GPG völlurinn
Völsungur
Völsungur
0 - 3
Þróttur R.
Þróttur R.
0 - 12' Aron Snær Ingason0 - 228' Örn Bragi Hinriksson0 - 331' Magnús Þórðarson
Dómari: Sveinn Arnarsson
Leik lokið!
Svenni flautar af. Þægilegur sigur Þróttar hér í dag. Það hefði vel mátt sleppa þessum síðari hálfleik.
91. mín
Jakob Ocares liggur meiddur á miðjum vellinum og virðist vera illa þjáður. Verður sennilega uppbót útaf þessu.
Þróttur R.
87. mín
InnMikhael Kári Olamide Banjoko
ÚtBrynjar Gautur Harðarson
Völsungur
87. mín
InnTómas Bjarni Baldursson
ÚtBjarki Fannar Helgason
Völsungur
87. mín
InnTryggvi Grani Jóhannsson
ÚtFernando Jimenez Arranz
80. mín
Lítið búið að gerast þannig séð í seinni hálfleik. Þróttur eru með algera stjórn á þessu.
Þróttur R.
77. mín
InnViktor Steinarsson
ÚtSigurður Egill Lárusson
Þróttur R.
77. mín
InnJakob Ocares Kristjánsson
ÚtNjörður Þórhallsson
Þróttur R.
77. mín
InnKolbeinn Nói Guðbergsson
ÚtEiríkur Þorsteinsson Blöndal
Völsungur
77. mín
Gult spjald

Indriði Ketilsson

Völsungur
73. mín
InnIndriði Ketilsson
ÚtJuan Guardia Hermida
Juan fer meiddur útaf.
69. mín
Dauðafæri hjá grænum
Völsungur fær aukaspyrnu úti vinstra megin sem Dagbjartur tekur. Á frábæra fyrirgjöf á Mbye sem skallar yfir úr dauðafæri.
68. mín
Völsungar eiga marktilraun. Bjarki Fannar á fyrirgjöf frá hægri á Dagbjart sem skallar yfir. Hinum megin á Sigurður Egill hættulega fyrirgjöf sem enginn nær til.
Völsungur
65. mín
InnAron Bjarki Kristjánsson
ÚtSteinþór Freyr Þorsteinsson
Völsungur
65. mín
InnDagbjartur Búi Davíðsson
ÚtAndri V. Bergmann Steingrímsson
59. mín
Heimamenn fá færi! Eftir góða pressu Mbye fær Steinþór boltann rétt utan teigs og lætur vaða. Boltinn fer í varnarmann og afturfyrir. Ekkert kemur þó úr hornspyrnunni.
Þróttur R.
57. mín
InnStefán Þórður Stefánsson
ÚtBaldur Hannes Stefánsson
56. mín
En annars eru Þróttarar heilt yfir með algera stjórn á leiknum og það þarf eitthvað mikið að gerast til að heimamenn geti ógnað því að koma til baka
54. mín
Bjarki Fannar á fínan sprett upp hægri kantinn og Baldur brýtur á honum. Heimamenn vilja seinna gula en Sveinn er ekki sammála
Völsungur
51. mín
Gult spjald

Davíð Leó Lund

46. mín
Leikur hafinn
Sveinn flautar seinni hálfleikinn í gang.
45. mín
Hálfleikur
Eina jákvæða fyrir heimamenn er að veðrið er frábært og hamborgarnir eru góðir. Inni á vellinum eru þeir röndóttu miklu miklu betri!
44. mín
Aron Snær nálægt því að bæta við. Er kominn upp hægri kantinn og reynir að þvera boltann en Elmar nær að stoppa það. Aron fær boltann aftur og á hörkuskot rétt framhjá fjærstönginni.
Þróttur R.
43. mín
Gult spjald

Baldur Hannes Stefánsson

Baldur fær gult fyrir að stoppa "skyndisókn".
42. mín
Þróttarar eru algerlega á cruise control og það er töluvert líklegra að þeir skori næsta mark.
Völsungur
36. mín
Gult spjald

Elmar Örn Guðmundsson

Þróttur R.
31. mín
Þeir eru að ganga frá þessu

Magnús Þórðarson

Það átti sér stað einhver atburðarás og ég þarf bara að hreinlega að kíkja á Livey til að sjá hvað gerðist. Magnús skoraði eftir nánari skoðun. Þróttarar þurfa ekkert að hafa fyrir því að skora mörk hér.
Þróttur R.
28. mín
Þróttur bætir við

Örn Bragi Hinriksson

Þróttarar eiga bylmingsskot sem Jochum ver með brjóstkassanum. Frákastið fær Örn Bragi vinstra megin í teignum og neglir skoti sínu í nærhornið:
21. mín
Kári Kristjánsson tekur spyrnuna en hún er slök og fer beint í varnarvegginn
Völsungur
20. mín
Gult spjald

Juan Guardia Hermida

Juan brýtur af sér við vítateigslínuna og Þróttur á aukaspyrnu á stórhættulegum stað
13. mín
Þróttarar svo nálægt því
Völsungur á fínasta færi en augnabliki síðar er Magnús Þórðarson sloppinn í gegn hinum megin á vellinum. Davíð Leó Lund á svo ævintýralega björgun þegar einn þróttarinn er að svo til einn gegn opnu marki. Þvílík tækling hjá Davíð!
12. mín
Sigurður Egill í ágætisfæri vinstra megin í teignum en Jochum ver vel frá honum. Þróttarar fá þó hornspyrnu og reyna sömu uppskrift og í markinu en gengur ekki í þetta skiptið.
10. mín
Völsungar vilja víti!
Andri Valur fær boltann í miðjum teignum og á klárlega fyrstu snertinguna áður en hann er tekinn niður. Heimamenn vilja víti en Sveinn dæmir ekkert. Þetta hefði vel getað verið eitthvað
6. mín
Gestirnir nálægt því að bæta við. Örn Bragi keyrir upp hægri kantinn og á fína fyrirgjöf en heimamenn ná á síðustu stundu að bægja hættunni frá.
Þróttur R.
2. mín
Þróttur skorar strax!

Aron Snær Ingason (stoðsending: Sigurður Egill Lárusson)

Þetta tók ekki langan tíma! Þróttarar fá hornspyrnu strax í byrjun. Þeir taka hana stutt á Sigurð Egil sem sendir fyrir á fjærstöngina þar sem Aron Snær skallar í slánna og inn! Þvílík byrjun
1. mín
Leikur hafinn
Leikurinn er hafinn hér á Húsavík. Rjómablíða að sjálfsögðu
Fyrir leik
Byrjunarliðin klár
Byrjunarliðin eru klár og má sjá þau hér til hliðar. Það sem vekur athygli er að Jochum Magnússon er að spila sinn fyrsta leik fyrir Völsung eftir að hafa komið frá Víkingi. Einnig er Fernando Jimenez Arranz, spænski framherjinn, í fyrsta sinn í byrjunarliði Völsungs.

Hjá Þrótti er Kári Kristjánsson mættur í byrjunarliðið eftir að hafa komið til baka frá FH í vikunni. Kaldar kveðjur sem hann fékk þaðan.
Í markinu hjá Þrótti er Aron Dagur Birnuson en hann lék með Völsungi áður fyrr.
Fyrir leik
Þjálfarar Völsungs - Elfar Árni og Bjarki
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Þjálfari Þróttar
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Gengi liðaðana
Þróttur hefur átt tvo heimaleiki og unnið þá báða. 2-0 sigur gegn Njarðvík í 1.umferð og 3-1 sigur á ÍR í síðustu umferð og eru því með 6 stig.

Heimamenn hafa gert tvö jafntefli. 1-1 gegn Leikni á Húsavík í 1.umferð og svo markalaust jafntefli gegn Aftureldingu í Mosfellsbæ í síðustu umferð.
Fyrir leik
Góðan daginn og velkomin í beina textalýsingu frá GPG-vellinum á Húsavík þar sem að Þróttur frá Reykjavík sækir Völsung heim. Leikurinn er liður í 3. umferð Lengjudeildar karla.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.