Fotbolti.net
Kristján Hrafn Kristjánsson
Lengjudeild karla
Kerecisvöllurinn
Sól og blíða framan af en varð skýjað þegar leið á leikinn
Vestri
Vestri
4 - 3
HK
HK
0 - 116' Jóhann Þór Arnarsson (víti)Ibrahima Balde 34'1 - 1Chriss-Albin Mörfelt 44'2 - 1Ibrahima Balde 72'3 - 13 - 280' Jóhann Þór ArnarssonPétur Bjarnason 80'4 - 24 - 387' Dominik Radic
Dómari: Hreinn Magnússon
Áhorfendur: 170 manns hér í dag
Leik lokið!
Ótrúlegur leikur að baki
Leik lokið. Lokatölur 4:3 sigur Vestra og þeirra fyrsti.

Takk fyrir mig skýrsla og viðtöl væntanleg
91. mín
HK búnir að fá þrjár hornspyrnur í þeirri þriðju náði Atli Þór skalla í átt að marki sem fór í slánna og yfir
90. mín
5 mínútum bætt við
Vestri
89. mín
InnGuðmundur Páll Einarsson
ÚtIbrahima Balde
Balde frábær í dag
Vestri
87. mín
Gult spjald

Daniel Osafo-Badu

Fékk einnig gult eftir markið hjá Radic
Vestri
87. mín
Gult spjald

Gunnar Jónas Hauksson

Fær gult í kjölfar marksins, honum fannst vera brotið á sér.
Hann hefur mikið til síns máls
HK
87. mín
Frábærlega gert

Dominik Radic

Radic tekur frábæran snúning rétt fyrir utan teig Vestramanna og klárar svo vel framhjá Marvin.

Vestramenn brjálaðir vegna þess að þeir vildu fá brot rétt fyrir mark HK
83. mín
HK fá horn
Boltin fyrir frá Atla sem Balde skallar frá
82. mín
Hér Fall og Jóhann báðir eftir samstuð, en standa báðir upp og eru í lagi
Vestri
80. mín
Hvað er að gerast hérna

Pétur Bjarnason (stoðsending: Sergine Modou Fall)

Vestri fara beint upp í sókn og skora.
Gunnar gerir vel að finna Fall á hægri kantinum sem kemur með frábæran bolta fyrir á Pétur sem skorar
HK
80. mín
MAAAARK!

Jóhann Þór Arnarsson

Hornspyrnan fyrir hættuleg, Marvin fær boltann í sig og boltinn berst til Jóhanns sem skorar
79. mín
Radic í fínu færi sem Marvin ver í horn
Vestri
78. mín
InnBirkir Eydal
ÚtJacob Stensson
HK
78. mín
InnAtli Þór Gunnarsson
ÚtMagnús Arnar Pétursson
Vestri
77. mín
Gult spjald

Ibrahima Balde

HK fá aukaspyrnu í góðri fyrirgjafarstöðu.

Ívar kom með hættulegan bolta fyrir sem Jóhann skallaði í átt að markinu en Pétur komst fyrir það og hreinsaði í horn
HK
74. mín
InnRóbert Quental Árnason
ÚtTumi Þorvarsson
74. mín
Það átti sér stað skrítið atvik í þreföldu skiptingu Vestra að Hreinn dómari flautaði leikinn á áður en Pétur Bjarnason komst inn á völlinn.
Þannig Vestramenn voru einum færri í smá tíma
Vestri
72. mín
Vááááááááá!!!!!

Ibrahima Balde

Balde tekur aukaspyrnuna og skorar stórkostlegt mark sláinn inn
HK
71. mín
Gult spjald

Ívar Örn Jónsson

Straujar Fall sem var búinn að keyra upp allan völlin. Aukaspyrna sem Vestri eiga 1 meter fyrir utan teig
Vestri
69. mín
InnÞórður Gunnar Hafþórsson
ÚtChriss-Albin Mörfelt
Vestri
69. mín
InnPétur Bjarnason
ÚtBreki Þór Hermannsson
Vestri
69. mín
InnSergine Modou Fall
ÚtJohannes Selvén
Vestri
68. mín
Gult spjald

Elmar Atli Garðarsson

Gult fyrir tuð.
66. mín
Mörfelt kemur með sendingu fyrir ætlaða Balde en HK-menn verjast vel.

Fjör í þessu síðust mínúturnar
65. mín
Vestramenn komast beint í færi hinummegin á vellinum, Selvén kommst í góða stöðu en kom með laf laust skot framhjá
64. mín
Færi!
Aron Kristófer með huggulega sendingu fyrir á vinstri kantinum sem skilar sér alla leið á fær til Jóhanns, hann rennir sér á boltan en nær ekki að stýra honum í markið
HK
62. mín
Gult spjald

Aron Kristófer Lárusson

Aron fær gult í kjölfarið fyrir tuð
HK
62. mín
Gult spjald

Tumi Þorvarsson

Missir Elmar fram fyrir sig og rífur í hann.
61. mín
Smá hætta í vítateig Vestramanna. HK með fyrirgjöf fyrir sem Elmar nær ekki að hreinsa nógu vel en á endanum eftir smá klafs koma þeir boltanum í burtu
60. mín
Lítið að gerast þessa stundina
HK
54. mín
Mikil læti á bekk HK

Arnar Freyr Smárason

Þjálfarateymi HK manna mjög ósáttir við Hrein og hans menn hér í byrjun seinni hálfsleiks.
Þeir hafa eitthvað til síns máls að mínu mati en hinsvegar þetta verðskuldað gult spjald fyrir tuð
49. mín
Vestri fær aukaspyrnu á fínum stað.
HK skalla frá.
47. mín
Fyrsta færi seinni hálfleiks
Elmar með flotta sendingu í gegn á Breka sem kemur með skot yfir markið
46. mín
Breki skýtur seinni hálfleik af stað
45. mín
Hálfleikur
Vestramenn leiða í fyrsta sinn í sumar
Tökum okkur 15 mínútur í pásu
45. mín
2 mínútum bætt við þennan fyrri hálfleik
Vestri
44. mín
Frábær skyndisókn

Chriss-Albin Mörfelt (stoðsending: Thibang Sindile Theophilius)

Vestramenn bruna upp í skyndisókn, Mörfelt kemur með boltan í gegn þar sem Cafú nær honum, fer inn á teiginn, leikur listilega á Þorstein Aron og setur boltann á Mörfelt sem skorar í opið markið
43. mín
HK eru með yfirhöndina þessa stundina
HK eru búnir að taka öll völd á leiknum eftir mark Vestra og eru að ógna mikið á mark Vestra.
41. mín
HK-menn í langri sókn sem endar á skoti fyrir utan teig sem fer rétt yfir
Vestri
34. mín
Frábærlega klárað!

Ibrahima Balde (stoðsending: Gunnar Jónas Hauksson)

Gunnar tætir upp hægri kantinn og kemur með góða fyrirgjöf á Balde sem tekur vel við boltanum neglir honum í skeytinn.
HK
31. mín
Gult spjald

Jóhann Þór Arnarsson

Seinn í tæklingu og tekur Edson niður, verðskuldað gult spjald
29. mín
Sórhætta við mark Vestra
Jacob missir boltan á skelfilegan hátt á miðjum vallarhelming Vestra. Dominik Radic fær boltan og leikur á Marvin en varnamenn Vestra eru snöggir til baka og ná að verjast þessu
28. mín
Lítið að gerast þessa stundina, liðin skiptast á að halda boltanum en þau eru ekki að koma sér í færi
21. mín
Gunnar Jónas liggur og þarf aðhlyðningu.
Það virðist vera í lagi með hann.
20. mín
Skyndisókn
Ólafur kemur með langan og háan bolta upp sem Jóhann eltir. Jóhann kemur boltanum fyrir en Elmar kemur þessu frá.
18. mín
Vestramenn í góðu færi
Mörfelt vinnur vel upp kantinn og kemur með boltan fyrir á Selvén sem nær ekki að nýta sér þetta.

Vestri fá hornspyrnu í kjölfarið, sem ekkert kom úr.
HK
16. mín
Mark úr víti!

Jóhann Þór Arnarsson

Jóhann Þór fer sjálfur á punktinn og setur hann í vinstra hornið.
Marvin fór í rétt horn en náði ekki til boltans
15. mín
Viti!!
Jóhann gerir vel að fara framhjá Edson, þá mætir Konstantin á svæðið og kemur með arfaslaka tæklingu og brýtur á Jóhanni
14. mín
2 hornspyrnur í röð hjá HK-mönnum
Ekkert kom úr fyrstu en í þeirri seinni komst Aron Kristófer í gott færi en hann mokar boltanum yfir.
11. mín
Fyrsta færi leiksins
Vestra menn með góða sókn, Mörfelt fær boltan á miðjum vallarhelming HK- manna, sendir boltan á Selvén sem komstt í gott færi en
Ólafur varði í horn.
9. mín
HK fá hornspyrnu
Selvén missti boltann á hættulegum stað, HK menn koma með sendingu fyrir sem Gunnar Jónas kemst fyrir.

Ekkert kom úr hornspyrnunni.
6. mín
Vestri fá hornspyrnu
Selvén með boltann fyrir en HK-menn koma þessu í burtu
6. mín
Tumi liggur eftir brot frá Cafu.
Hann harkar þetta af sér enda lítið í þessu.
2. mín
Vestri með fína skyndisókn, Breki komst upp kantinn og kom með sendingu fyrir en þar var enginn
1. mín
Leikur hafinn
Þetta er komið gang
Atli Hrafn skýtur þessu í gang
Fyrir leik
Liðið eru að labba inn á völlinn
Liðin rölta hér inn á völlin við hið fallega lag Hafið eða fjöllinn eftir Fjallabræður.
Fyrir leik
Byrjunarliðin
Byrjunarlið Vestra

Daniel Badu gerir þrjár breytingar á sínu liðið á sínu liði frá síðasta leik. Pétur Bjarnason og Þórður Gunnar eru á bekknum í dag og Imran Mehanovic er meiddur. Jacob Stensson, Kosntantin Cheshmedjiev og Breki Þór Hermannsson koma inn í liðið.

Byrjunarlið HK

Gunnar Heiðar gerir tvær breytingar á sínu liði frá sigrinum á Ægi í síðustu umferð. Jóhann Þór Arnarson og Svavar Örn Þórðarson koma inn í liðið í stað Viktors Helga Þórðarsonar og Karls Ágústs Karlssonar.
Fyrir leik
Skemmtilegt
Það er gaman að segja frá því að Daniel Badu þjálfari Vestra er að mæta gamla þjálfararanum sínum honum Gunnari Heiðari. Gunnar Heiðar þjálfaði Vestra í Lengjudeildinni árið 2022 og þá var Badu leikmaður Gunnars.
Fyrir leik
Þjálfararnir
Þjálfari HK

Gunnar Heiðar hefur komið víða við þrátt fyrir að vera ungur þjálfari hann byrjaði þjálfara ferilinn í Vestmannaeyjum sem þjálfari KFS, hann þjálfaði Vestra eitt sumar og nú síðast gerði hann frábæra hluti með Njarðvík áður en hann tók við HK í Nóvember á síðasta ári.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Þjálfari Vestra

Daniel Badu er frekar reynslulítill sem aðalþjálfari í meistaraflokk. Badu var aðstoðarmaður Davíðs Smára fyrstu tvö tímabilin hans á Ísafirði, síðasta sumar þjálfaði hann Hörð í 5.deildinni og í vetur fékk hann starf sem aðalþjálfari Vestra. Það má segja að Badu sé smá spurningarmerki komandi inn í þetta tímabil og það er spennandi að sjá hvað hann gerir með Vestramenn í sumar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Áfall fyrir Vestra
Danski miðjumaðurinn Imran Mehranovic varð fyrir því óhappi að slíta krossband við brot Benedikts Daríusar leikmanns Fylkis í 2:0 sigri Fylkismanna í síðustu umferð. Þetta er mikil skellur fyrir Vestra liðið vegna þess að Imran hefur verið einn þeirra besti leikmaður á undirbúningstímabilinu og í deildinni.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Slök byrjun Vestra
Vestri hefur byrjað tímabilið frekar illa í Lengjudeildinni og eru með 1 stig eftir 2 leiki. Þessir leikir voru 1:1 jafntefli við Grindavík í fyrstu umferð og núna á Mánudaginn fóru þeir í Árbæinn og töpuðu fyrir Fylki 2:0.
Fyrir leik
HK hafa byrjað tímabilið vel
HK hafa byrjað tímabilið vel og sitja sem stendur í 1. sæti Lengjudeildarinnar. Þeir byrjuðu tímabilið á sannfærandi sigri á nýliðum Gróttu 4:1 í Kórnum, í annari umferð tóku þeir á móti hinum nýliðum Lengjudeildarinnar Ægismönnum og sá leikur endaði með 2:1 sigri HK.
Fyrir leik
Félagskipti liðanna í vetur
Vestri
Komnir
Ibrahima Balde frá Þór
Þórður Gunnar Hafþórsson frá Aftureldingu
Marvin Darri Steinarsson frá Gróttu
Edson frá Brasilíu
Imran Mehanovic frá Danmörku
Jacob Stensson frá Svíþjóð
Konstantin Cheshmedjiev frá Norður-Makedóníu
Chriss-Albin Alexander Mörfelt frá Svíþjóð
Breki Þór Hermannsson á láni frá ÍA (var á láni í Grindavík)

Farnir
Diego Montiel í KA
Jeppe Pedersen í KA
Guy Smit í Njarðvík
Morten Ohlsen Hansen til Færeyja
Anton Kralj til Keflavíkur
Eiður Aron Sigurbjörnsson í Njarðvík
Ágúst Eðvald Hlynsson í Þór
Gustav Kjeldsen í Stjörnuna
Arnór Borg Guðjohnsen í FH (var á láni)
Vladimir Tufegdzic
Mynd: Vestri


HK
Komnir
Svavar Örn Þórðarson frá Njarðvík
Sigurður Gunnar Jónsson frá Stjörnunni á láni
Dominik Radic frá Njarðvík
Atli Hrafn Andrason frá KR
Róbert Quental Árnason frá Leikni

Farnir
Atli Arnarson hættur
Dagur Orri Garðarsson í Val (var á láni frá Stjörnunni)
Eiður Atli Rúnarsson í ÍBV
Kristján Snær Frostason í FH
Bart Kooistra í Aftureldingu
Marten Leon Jóhannsson til Bröndby
Hákon Ingi Jónsson
Rúrik Gunnarsson í Leikni (var á láni hjá Grindavík)
Kári Gautason í KA (var á láni)

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Fyrir leik
Spáin
Markús Páll Ellertsson leikmaður ÍA er spámaður vikunnar.

Vestri 1 - 2 HK
Bæði lið fá rautt spjald en HK skorar seint í leiknum og tryggir sér sigurinn.
Fyrir leik
Dómaratríóið
Dómarinn hér á Kerecis vellinum í dag er Hreinn Magnússon og honum til halds og trausts eru þeir Kári Mímisson og Kristinn Freyr Victorsson. Eftirlitsmaður er Lúðvík Þorgeirsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Velkomin á Kerecisvöllinn
Góðan daginn kæru lesendur og verið þið velkomin á beina textalýsingu leiks Vestra og HK Í 3. umferð Lengjudeildarinnar.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.