Fotbolti.net
Besta deildin
Snæbjört Pálsdóttir
Besta kvenna
Samsungvöllurinn
Blautt, hlýtt og logn
Stjarnan
Stjarnan
1 - 2
FH
FH
0 - 136' Deja Jaylyn Sandoval0 - 264' Hafrún Birna HelgadóttirHulda Hrund Arnarsdóttir 93'1 - 2
Dómari: Bríet Bragadóttir
Leik lokið!
1-2 fyrir FH staðan hér á Samsungvellinum.

Hulda náði að klóra í bakkann fyrir Stjörnukonur en aðeins of seint.

Viðtöl og skýrsla kemur inn síðar í dag,
Takk fyrir samfylgdina!
Stjarnan
93. mín
VÁ!

Hulda Hrund Arnarsdóttir

Þetta var hörkumark, klafs bolti sem berst til hennar og hún þrumar honum á fjær, stöngin inn
91. mín
A.m.k. 4 mínútum bætt við venjulegan leiktíma
90. mín
Hulda Hrund með ágætis tilraun en Aldís ver
89. mín
Hrönn kemst svo í hörkuskyndisókn, nær skoti á markið sem Bridgette nær ekki að halda nær honum aftur og ætlar að renna honum út í teiginn en þá kemst Bridgette fyrir og sóknin rennur´út í sandinn
89. mín
Úlfa Dís með aukaspyrnu en boltinn og innarlega fyrir pakkann og Aldís hirðir boltann örugglega
Stjarnan
85. mín
InnRósa María Sigurðardóttir
ÚtSnædís María Jörundsdóttir
Ung og efnileg að koma inn á
84. mín
Skemmtileg tilþrif hjá Hrönn reynir hælsendingu á Elínu en hún er ekki alveg nógu fljót að átta sig. Þetta hefði getað orðið hörkusókn
82. mín
Stjörnukonur að ógna, hörkuskot sem Hulda setur í varnarmann og yfir markið
82. mín
Ingibjörg Lúcía tekur aukaspyrnu fyrir Stjörnuna, setur hann á fjær í pakkan þar sem boltinn fer að FH, horn!
Stjarnan
80. mín
Gult spjald

Jakobína Hjörvarsdóttir

Spjald fyrir mótmæli
78. mín
Hulda Hrund með fínustu tilraun en framhjá
76. mín
Berglind Freyja reynir skot en í varnarmann Stjörnunnar
FH
73. mín
InnHrönn Haraldsdóttir
ÚtThelma Lóa Hermannsdóttir
Stjarnan
72. mín
InnErika Ýr Björnsdóttir
ÚtAndrea Mist Pálsdóttir
Stjarnan
72. mín
InnHrefna Jónsdóttir
ÚtFanney Lísa Jóhannesdóttir
68. mín
Berglind Freyja nálægt því að þrefalda forystuna en Bridgette ver
FH
64. mín
What a skiptingar!

Hafrún Birna Helgadóttir

Allir þrjár nýkomnar inn á eiga þetta mark skuldlaust!

Hafrún Birna klárar þetta glæsilega í fjærhornið eftir góðan undirbúning frá Berglindi Freyju sem rennir boltanum út í teiginn, Elín Björg lætur hann fara og Hafrún klárar glæsilega!

Svokallaðir SUPER SUBS
63. mín
Myndir
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

FH
62. mín
InnHafrún Birna Helgadóttir
ÚtIngibjörg Magnúsdóttir
FH
62. mín
InnElín Björg Norðfjörð Símonardóttir
ÚtHelena Maree Errington
FH
62. mín
InnBerglind Freyja Hlynsdóttir
ÚtNia Raisa Christopher
59. mín
167 áhorfendur mættir á Samsungvöllinn
Stjarnan
57. mín
Gult spjald

Andrea Mist Pálsdóttir

57. mín
Hulda Hrund kemst í góða stöðu hinum megin en boltinn fer í varnarmann og Aldís pikkar hann svo upp
56. mín
Fínasta skyndisókn hjá FH konum, Thelma Lóa keyrir upp kanntinn, finnur Ingibjörgu, Ídu Marín og fær svo boltann aftur í fínasta skotfæri en Bridgette á ekki í vandræðum með þennan bolta
53. mín
Andrea með aukaspyrnu fyrir Stjörnukonur finnur Evu Marie í teignum en Aldís handsamar þetta
52. mín
Úlfa Dís komin í gegn en flaggið fer á loft
Stjarnan
50. mín
InnHulda Hrund Arnarsdóttir
ÚtBirna Jóhannsdóttir
50. mín
Önnur meiðslaskipting Andrea og Snædís bera Birnu útaf í gamla góða kóngastólnum, vonandi ekkert alvarlegt
48. mín
Helena Maree stingur boltanum inn á niu í hlaupið en hún nær ekki valdi á boltanum og Bridgette kemur út á móti og hirðir boltann
46. mín
ÚFFF
Stjörnukonur byrja þetta af krafti Snædís María kemst í hörkufæri en ákveður að setja hann á Fanney í staðinn fyrir að skjóta sjálf, Fanney á svo þrumuskot í stöngina
46. mín
við erum farin aftur á stað
Nia hefur leik á ný fyrir gestina
45. mín
Hálfleikur
0-1 fyrir FH hér í hálfleik

Bara sanngjarnt FH hafa átt hættulegri færi en eins marka forysta er svakalega lítið og Stjarnan hefur alveg átt færi til að jafna þennan leik!

Umgjörðin hjá Stjörnunni er annars alveg upp á 10! heimsending á grilluðum hammara upp í blaðamannastúku og miðjuleikur í hálfleik þar sem heppinn keppandi nældi sér í áritaða treyju frá Úlfu Dís!

Takk fyrir mig og allir á völlinn segi ég nú bara!
45. mín
Þóra María reynir að finna Úlfu Dís en Deja sér við þeim
45. mín
Andrea sleppur með spjald þegar hún rífur Ídu Marín niður
45. mín
ÚFFFFF
Nia kemur sér í dauðafæri en settur boltann hárfínt framhjá! Bridgette hefði ekki átt séns ef boltinn hefði verið aðeins innar
45. mín
A.m.k. 4 mínútur í uppbótatíma
45. mín
Ída Marín með hörku fyrirgjöf þar sem Mackenzie er fyrst á boltann en Bridgette nær að handsama hann.
45. mín
Helena Maree reynir fyrirgjöf inn á teig Stjörnunar en Telma skallar þetta frá
42. mín
Úlfa Dís í hörkubaráttu við Deju sem nær að halda henni frá boltanum svo Aldís geti tekið hann
39. mín
Andrea Rán tekur spyrnuna Birna kemur á hörkuhlaupi en Aldís kýlir boltann út
FH
38. mín
Gult spjald

Deja Jaylyn Sandoval

brýtur á Fanney Lísu
FH
36. mín
Skallamark!

Deja Jaylyn Sandoval (stoðsending: Andrea Rán Snæfeld Hauksdóttir)

Andrea Ran með hornið að vana, setur hann aðeins meira á fjær núna, Bridgette á ekki jafn auðvelt með að koma út þarna og Deja stangar boltann inn
35. mín
Helena Marree Errington kemst í fínustu skotstöðu reynir skotið en fer í varnarmann og útaf
32. mín
Snædís María er að komast aftur í hörkustöðu en Deja hins vegar bæði sterk og klók og hægir á henni. Boltinn berst síðan á Ingibjörgu sem tekur skotið en Aldís grípur þetta örugglega
31. mín
Þóra María kemst að harðfylgi framhjá Thelmu Lóu og nær fínustu fyrirgjöf en Snædís María rétt missir af boltanum yfir sig
29. mín
Andrea Mist tekur horn fyrir Stjörnuna, setur hann yfir allan pakkann á fjær þar sem er enginn! Hvorki Stjörnukona eða FH ingur
FH
27. mín
InnAnna Heiða Óskarsdóttir
ÚtKatla María Þórðardóttir
Vonandi er þetta ekki alvarleg meiðsl hjá Kötlu Maríu
26. mín
Þetta lítur ekki vel út
Katla María liggur eftir, virðist hafa fengið einhvern snúning á hnéið þegar hún fellur. börurnar eru komnar þetta lítur ekki vel út
25. mín
Fanney Lísa reynir að finna Birnu í stungu en aðeins of fast, hún nær þó að pikka boltann í Kötlu Maríu og útaf.
22. mín
Ignibjörg reynir að finna Snædísi Maríu inn á teignum en varnarmenn FH komast í þetta á undan
21. mín
Ingibjörg með hörkuskot en Bridgette er vel vakandi og handsamar þennan
20. mín
Andrea Rán með hornspyrnu fyrir FH, aftur í pakkann þar sem Bridgette kemur út og kýlir boltann frá
17. mín
Helena Maree reynir að finna Niu inn fyrir í fínasta hlaup en Bridgette er á undan
14. mín
Þessi leikur hefur verið rosa mikill barningur, veit ekki hvort það sé útaf blautum velli, góðri pressu eða háu spennustigi en leikmenn eru að ná tveimur sendingum max áður en allt fer í skrúfuna. Lélegar sendirngar og ágætis pressa í bland
9. mín
Andrea Rán tekur hornspyrnu fyrir FH, fer inn í pakkann en Bridgette Skiba kemur út og kýlir boltann frá
7. mín
Andrea Rán með fínustu tilraun en yfir markið
5. mín
Thelma Lóa nær fínustu fyrirgjöf en Nia nær ekki að koma boltanum að markinu
4. mín
Ingibjörg með fínasta hlaup upp kantinn en Eva Marie sér við henni og skýlir boltanum útaf
3. mín
Andrea Rán tekur spyrnuna fyrir FH, fer yfir mesta pakkann og FH konur ná ekki að gera sér mat úr þessu
3. mín
Þóra María brýtur á Thelmu Lóu rétt við vítateigshornið. hættulegt
1. mín
Leikur hafinn
Birna sparkar þessu leik af stað fyrir heimakonur
Fyrir leik
Jæja!!
Liðin eru hér komin á völlinn og þetta fer að hefjast hvað úr hverju!
Fyrir leik
Byrjunarliðin klár og breytingar á byrjunarliðinu!
Stjarnan
Óskar Smári gerir 3x breytingar á sínu liði frá 2-2 jafnteflinu fyrir norðan. Inn koma Fanney Lísa, Snædís María og Telma en á bekkinn taka sér sæti Anna María, Birna og Jana Sól.

Athyglisvert að sjá fyrirliðann Önnu Maríu á bekknum, hún hlýtur að vera eitthvað tæp.

ATH.
Þættinum voru að berast fréttir að þá er ein breyting í viðbót rétt fyrir leik! Murielle Tiernan sest á bekkinn en Birna kemur inn aftur! Hún hlýtur að vera tæp líka

FH
Bræðurnir Guðni og Hlynur gera einnig breytingu á sínu liði frá 2-1 sigrinum á Grindavík/Njarðvík. Ingibjörg kemur inn en Berglind Freyja sest á bekkinn

Fyrir leik
Aldís Kara spáir í 4. umferðina
Aldís Kara Lúðvíksdóttir, leikmaður Hauka, spáir í leikina. Aldís Kara tók fram fótboltaskóna að nýju fyrir sumarið og hefur farið frábærlega af stað með Haukaliðinu sem er í Lengjudeildinni.

Mynd: Haukar


Stjarnan 2 - 3 FH
Yfirleitt hörku leikir þegar þessi lið mætast og smá Stjörnu-grýla hjá FH á Samsung vellinum. FH kemur með meira sjálfstraust inn í leikinn eftir síðustu umferð og tekur þetta naumlega.

Fyrir leik
FH
FH konur sitja í 5. sætinu fyrir leikinn með 4 stig, jafnmörg stig og Stjarnan í sætinu fyrir ofan.

FH náði í sinn fyrsta sigur í síðustu umferð á heimvelli gegn Grindavík/Njarðvík 2-1.

Byrjunin hefur verið brösuleg hjá FH en þær eru væntanlega mættar í dag til að halda skriðinu gangandi og sækja annan sigurinn í röð.

Mynd: Fótbolti.net - J.L.

Fyrir leik
Stjarnan
Stjörnukonur sitja fyrir leikinn í 4. sæti með 4 stig.

Þær fóru í erfiða ferð norður í síðustu umferð. Þar sem þær misstu niður 2-0 forystu í 2-2 jafntefli á síðustu mínútum leiksins. Óskar Smári þjálfari liðsins fékk þá kaldar kveðjur frá sjálfboðaliða sem var vísað frá eftir að hafa klappað í andlitið á honum eftir marki Þórs/KA.

Fyrir þann leik unnu þær góðan sigur 2-0 sigur á Val á heimavelli. Þær munu því 100% verja heimavöllinn í dag og stefna á 3 stig gegn FH


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
4. umferðin
Tveir leikir eru á dagskrá í dag en umferðin endar svo á morgun.

Í dag:
14:00 ÍBV-Þór/KA
14:00 Stjarnan-FH

Mánudagur (á morgun):
18:00 Breiðablik-Valur
19:15 Þróttur R.-Grindavík/Njarðvík
19:15 Fram-Víkingur R.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Dómarateymi dagsins
Á flautunni í dag verður Bríet Bragadóttir og henni til halds og trausts verða Daníel Ingi Þórisson og Daníel Örn Arnarson aðstoðardómarar.

Fjórði dómari er Ronnarong Wongmahadthai og eftirlitsmaður í kvöld er Skúli Freyr Brynjólfsson

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Besta deildin kallar
Heil og sæl kæru lesendur!

Verið hjartanlega velkomin í beina textalýsingu þráðbeint frá Samsungvellinum þar sem Stjarnan tekur á móti FH í 4. umferð Bestu deildarinnar

Leikurinn hefst á slaginu 14:00!

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.