Fotbolti.net
10.05.26 - 10:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Aldís Kara spáir í 4. umferð Bestu kvenna

Aldís Kara gekk í raðir Hauka á dögunum.

Aldís Kara gekk í raðir Hauka á dögunum.

Canon

Mynd: Haukar

Hertz
Ásta Eir Árnadóttir var með fjóra rétta þegar hún spáði í þriðju umferðina í Bestu deild kvenna.

Fjórða umferðin hefst á eftir og Aldís Kara Lúðvíksdóttir, leikmaður Hauka, spáir í leikina. Aldís Kara tók fram fótboltaskóna að nýju fyrir sumarið og hefur farið frábærlega af stað með Haukaliðinu sem er í Lengjudeildinni.
Tekur skóna af hillunni til að spila með Haukum (Staðfest)
TENGT EFNI

Tekur skóna af hillunni til að spila með Haukum (Staðfest)

Stjarnan 2 - 3 FH (14:00 í dag)
Yfirleitt hörku leikir þegar þessi lið mætast og smá Stjörnu-grýla hjá FH á Samsung vellinum. FH kemur með meira sjálfstraust inn í leikinn eftir síðustu umferð og tekur þetta naumlega.

ÍBV 3 - 1 Þór/KA (14:00 í dag)
ÍBV er á miklu flugi þessa dagana og vinnur þetta nokkuð örugglega. Þór/KA nær þó að klóra í bakkann með marki undir lokin.

Breiðablik 4 - 1 Valur (18:00 á morgun)
Stórleikur umferðarinnar. Það virðist fátt geta stoppað Blika þessa dagana.

Þróttur R. 2 - 2 Grindavík/Njarðvík (19:15 á morgun)
Lítur út fyrir jafnan og skemmtilegan leik þar sem liðin skipta stigunum á milli sín.

Fram 1 - 2 Vikingur R. (19:15 á morgun)
Verður áhugaverður leikur. Held að þetta verði jafnt framan af, en svo sýnir Víkingur gæðin sín þegar líður á leikinn og klára þetta. Þórdís Hrönn opnar markareikninginn sinn í sumar.

Fyrri spámenn:
Ásta Eir (4 réttir)
Katrín Ásbjörns (3 réttir)
Arna Eiríks (2 réttir)
Valur fer í heimsókn á Kópavogsvöll.

Valur fer í heimsókn á Kópavogsvöll.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1FH8+1219
2Breiðablik8+1118
3Stjarnan8+514
4ÍBV8014
5Þróttur R.8+413
6Grindavík/Njarðvík8-311
7Víkingur R.8-69
8Valur8-38
9Fram8-124
10Þór/KA8-83
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.