Gordon samþykkir að ganga í raðir Bayern - Chelsea og Man Utd vilja liðsfélaga Orra - Greenwood áfram hjá Marseille
Mjólkurbikar karla
Fylkir
LL 5
0
FH
Mjólkurbikar karla
Vestri
LL 0
4
Grótta
Mjólkurbikar karla
KA
LL 1
2
Ægir
Vestri
0
4
Grótta
0-1 Grímur Ingi Jakobsson '17 , víti
0-2 Björgvin Brimi Andrésson '35
0-3 Tristan Freyr Ingólfsson '40
0-4 Tristan Freyr Ingólfsson '43
Daniel Osafo-Badu '46
14.05.2026  -  14:00
Kerecisvöllurinn
Mjólkurbikar karla
Aðstæður: 8 gráður skýjað og lítill vindur. Ekkert til að kvarta yfir
Dómari: Jóhann Ingi Jónsson
Maður leiksins: Tristan Freyr Ingólfsson.
Byrjunarlið:
33. Benedikt Jóhann Þ. Snædal (m)
2. Gabríel Heiðberg Kristjánsson ('46)
3. Edson Eduardo Dias Gomes
7. Jacob Stensson ('81)
9. Pétur Bjarnason (f) ('64)
10. Þórður Gunnar Hafþórsson ('81)
14. Birkir Eydal
17. Gunnar Jónas Hauksson ('64)
23. Breki Þór Hermannsson
29. Konstantin Cheshmedjiev
77. Sergine Fall
- Meðalaldur 26 ár

Varamenn:
1. Marvin Darri Steinarsson (m)
6. Ibrahima Balde ('46)
13. Albert Ingi Jóhannsson ('81)
16. Abdourahmane Diagne
18. Marinó Steinar Hagbarðsson ('81)
22. Elmar Atli Garðarsson ('64)
45. Guðmundur Páll Einarsson ('64)
- Meðalaldur 22 ár

Liðsstjórn:
Daniel Osafo-Badu (Þ)
Vladan Djogatovic
Ferran Montes I. Corominas
Jón Ólafur Ragnarsson
Jonathan Awrohum

Gul spjöld:
Breki Þór Hermannsson ('14)
Elmar Atli Garðarsson ('36)
Pétur Bjarnason ('39)
Gunnar Jónas Hauksson ('57)

Rauð spjöld:
Daniel Osafo-Badu ('46)
@fotboltinet Kristján Hrafn Kristjánsson
Skýrslan: Grótta vann stórsigur á ríkjandi bikarmeisturum
Hvað réði úrslitum?
Það sem réði úrslitum í dag voru einfaldlega yfirburðir Gróttu og hvernig þeir komu inn í þennan leik. Leikurinn var frekar jafn alveg fram að fyrsta marki Gróttu, þá hægðist mikið á Vestramönnum og Grótta einfaldlega kláruðu leikinn í fyrri hálfleik með því að skora fjögur góð mörk.
Bestu leikmenn
1. Tristan Freyr Ingólfsson.
Tristan var stórkostlegur hér í dag, hann skorar tvö frábær mörk og var góður báðum megin á vellinum.
2. Björgvin Brimi Andrésson
Björgvin lék á vinstri kanti hér í dag og gerði það rosalega vel hann sótti mikið á Gabríel í bakverðinum hjá Vestra sem átti erfitt með hann. Björgvin skorar einnig mark númer tvö hjá hjá Gróttu sem var rosalega mikilvægt fyrir þá.
Atvikið
Annað mark Gróttu var stórt atvik vegna þess að eftir það þá brotnuðu Vestramenn alveg og áttu ekki séns eftir það. Vestramenn voru mjög ósáttir við þetta mark vegna þess að þeim fannst Grímur Ingi fyrirliði Gróttu leika boltann með hendinni í aðdraganda marksins. Jóhann var nýbúinn að dæma hendi á mark sem Þórður Gunnar skoraði sem gerði Vestramenn ennþá æstari
Hvað þýða úrslitin?
Úrslitin þýða einfaldlega það að Grótta er komið í 8-liða úrslit Mjólkurbikarsins og verða í pottinum þegar það verður dregið seinna í dag. Titilvörn Vestramanna er á enda og þeir geta farið að einbeita sér á Lengjudeildinni og Evrópu.
Vondur dagur
Daniel Badu fær þennan stimpil eftir að mínu mati illa uppsettan leik. Badu gerir sex breytingar á liðinu sínu í dag og skilur lykilmenn eftir utan hóps. Svo fær Badu einnig rautt spjald í hálfleik sem var nákvæmlega það sem liðið hans þurfti ekki eftir erfiðan hálfleik.
Dómarinn - 7
Jóhann og hans teymi voru flottir í dag. Þeir tóku tvær stórar ákvarðanir sem voru flóknar að dæma vegna þess að það er alltaf þessi stóra spurning um hvað er hendi og hvað ekki. Þeir taka mark af Vestra sem var líklega rétt, en síðan á mjög svipað atvik sér stað þar sem Grímur Ingi virðist hafa handleikið boltanum. Jóhann stóð með þessum dómum og leikurinn var yfir höfuð vel dæmdur.
Byrjunarlið:
31. Guðmundur Rafn Ingason (m)
4. Dagur Bjarkason
7. Björgvin Brimi Andrésson ('72)
8. Caden Robert McLagan
9. Andri Freyr Jónasson
10. Grímur Ingi Jakobsson (f)
15. Halldór Hilmir Thorsteinson ('81)
18. Nökkvi Már Nökkvason
20. Kristófer Dan Þórðarson ('87)
27. Mattías Kjeld ('87)
28. Tristan Freyr Ingólfsson
- Meðalaldur 22 ár

Varamenn:
1. Alexander Arnarsson (m)
3. Jónatan Ari Bragason ('81)
5. Patrik Orri Pétursson
11. Kristján Tómas Björnsson ('87)
13. Björgvin Stefánsson
14. Einar Tómas Sveinbjarnarson ('87)
25. Elmar Freyr Hauksson ('72)
- Meðalaldur 23 ár

Liðsstjórn:
Rúnar Páll Sigmundsson (Þ)
Paul Benjamin Westren
Patrekur Ingi Þorsteinsson
Halldór Svavar Sigurðsson

Gul spjöld:
Guðmundur Rafn Ingason ('7)
Mattías Kjeld ('84)

Rauð spjöld: