Arsenal hefur áhuga á Fernandes - Man Utd fylgist með Hjulmand - Valverde vill vera áfram hjá Real Madrid en City fylgist með
Þór/KA
1
4
Stjarnan
0-1 Snædís María Jörundsdóttir '8
Birgitta Rún Finnbogadóttir '45 1-1
1-2 Snædís María Jörundsdóttir '66
1-3 Telma Steindórsdóttir '69
1-4 Andrea Mist Pálsdóttir '96
15.05.2026  -  18:00
VÍS völlurinn
Mjólkurbikar kvenna
Dómari: Sveinn Arnarsson
Áhorfendur: 130
Maður leiksins: Snædís María Jörundsdóttir
Byrjunarlið:
1. Harpa Jóhannsdóttir (m)
2. Angela Mary Helgadóttir ('72)
5. Karen Hulda Hrafnsdóttir
6. Hildur Anna Birgisdóttir
7. Amalía Árnadóttir ('85)
8. Birgitta Rún Finnbogadóttir
9. Karen María Sigurgeirsdóttir ('85)
14. Margrét Árnadóttir (f)
18. Bríet Jóhannsdóttir
19. Agnes Birta Stefánsdóttir ('85)
23. Bríet Fjóla Bjarnadóttir ('72)
- Meðalaldur 21 ár

Varamenn:
12. Allesandra Doherty Augur (m)
3. Ásta Ninna Reynisdóttir
4. María Dögg Jóhannesdóttir ('72)
10. Elísa Bríet Björnsdóttir ('72)
17. Emelía Ósk Kruger ('85)
21. Sigyn Elmarsdóttir
22. Hulda Ósk Jónsdóttir
25. Emelía Blöndal Ásgeirsdóttir ('85)
27. Aníta Ingvarsdóttir ('85)
- Meðalaldur 20 ár

Liðsstjórn:
Aðalsteinn Jóhann Friðriksson (Þ)
Arna Sif Ásgrímsdóttir
Hulda Björg Hannesdóttir
Hannes Bjarni Hannesson
Sigurbjörn Bjarnason
Aron Birkir Stefánsson
Jóhann Hilmar Hreiðarsson
Erin Flurey

Gul spjöld:
Aðalsteinn Jóhann Friðriksson ('81)
Aníta Ingvarsdóttir ('93)
Emelía Blöndal Ásgeirsdóttir ('96)

Rauð spjöld:
@saebjornth Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Skýrslan: Fimm mörk og olnbogaskot
Hvað réði úrslitum?
Færanýting Stjörnunnar var mjög góð. 1-1 í hálfleik var mjög sanngjarnt þó að mark Þórs/KA hafi komið seint í leiknum. Gestirnir galopnuðu vörn heimakvenna í marki tvö og ógnuðu svo í föstum leikatriðum. Skilvirkur sóknarleikur, en liðið getur pottþétt spilað mun betur. Leikurinn var heilt yfir nokkuð jafn og var alls ekki þriggja marka munur á liðunum í spilamennsku úti á velli.
Bestu leikmenn
1. Snædís María Jörundsdóttir
Skoraði tvö í dag og það reyndist mjög dýrmætt. Tvö mjög góð mörk frá sóknarmanninum
2. Telma Steindórsdóttir
Skorar þriðja markið í dag með góðum skalla og var nokkuð öflug í hjarta varnarinnar fannst mér. Andrea Mist gerir líka sterkt tilkall á gamla heimavellinum sínum, lék vel inn á miðjunni, sá svipaða skó og hún var í sjálf og hitti á Telmu inn á teignum og skoraði svo sjálf - Andrea er með frábæran fót. Birgitta Rún fannst mér heilt yfir best hjá heimakonum.
Atvikið
Í stöðunni 1-3 á sér stað atvik sem ég sá ekki úr fjölmiðlastúkunni en viðbrögð þjálfara Þórs/KA benda til þess að leikmaður Stjörnunnar hefði átt að fá rautt spjald fyrir olnbogaskot og eftir viðtöl við þjálfarana finnst mér það enn líklegra. Það hefði getað haft einhver áhrif. Fyrir utan það var það sennilega þriðja mark Stjörnunnar sem gaf liðinu andrými.
Hvað þýða úrslitin?
Stjarnan verður í pottinum er dregið verður í 8-liða úrslitum Mjólkurbikarsins.
Vondur dagur
Mér leið eins og Þór/KA hefði á köflum verið á skotæfingu, þegar leikmenn sáu mark andstæðinganna var ákveðið að skjóta. Margar skottilraunir en of fáar sem ógnuðu af ráði. Markið kom eftir gott spil en liðið þarf að fjölga góðum spilköflum sem skapa góðar stöður á síðasta þriðjungi að mínu mati.
Dómarinn - 7
Mér fannst Sveinn dæma þennan leik vel, ég hef ekki séð stóra atvikið aftur en mér líður eins og hann hafi ekki verið með sjónlínu á það. En það er spurning hvort aðstoðardómarar hans hefðu getað aðstoðað hann í því atviki.
Byrjunarlið:
13. Bridgette Nicole Skiba (m)
4. Jakobína Hjörvarsdóttir
5. Eva Marie Wirtz ('89)
6. Úlfa Dís Kreye Úlfarsdóttir ('89)
7. Fanney Lísa Jóhannesdóttir ('80)
14. Snædís María Jörundsdóttir
15. Hulda Hrund Arnarsdóttir ('56)
21. Þóra María Hjaltadóttir
26. Andrea Mist Pálsdóttir (f)
28. Erika Ýr Björnsdóttir ('80)
35. Telma Steindórsdóttir
- Meðalaldur 22 ár

Varamenn:
33. Tinna María Heiðdísardóttir (m)
8. Ingibjörg Lúcía Ragnarsdóttir ('56)
10. Anna María Baldursdóttir
16. Nanna Sif Guðmundsdóttir ('89)
17. Rósa María Sigurðardóttir ('89)
18. Margrét Lea Gísladóttir ('80)
19. Hrefna Jónsdóttir ('80)
40. Kara Sigríður Sævarsdóttir
- Meðalaldur 20 ár

Liðsstjórn:
Óskar Smári Haraldsson (Þ)
Benjamín Orri Hulduson
Hulda Björk Brynjarsdóttir
Orian Burzic
Artur Kotyash
Birgir Freyr Magnason
Miguel Mateo Castrillo

Gul spjöld:
Telma Steindórsdóttir ('53)
Jakobína Hjörvarsdóttir ('78)

Rauð spjöld: