SKÝRSLAN: Eyjakonur áttu ekki í neinum vandræðum á Króknum
Hvað réði úrslitum?
Það sem réði úrslitunum í dag eru hreinlega gæðin í ÍBV liðinu. Tindastólskonur sáu ekki til sólar í fyrri hálfleik og áttu engan séns. Í seinni hálfleiknum varð aðeins meira jafnræði með liðunum en þá voru aðrir lykilmenn ÍBV komnir útaf og eyjakonur sigldu sigrinum auðveldlega heim.
Bestu leikmenn
1. Þóra Björg Stefánsdóttir
Stóð sig vel í dag, setti 2 tvö mörk og var óheppin að ná ekki í þrennuna! Skemmtilegur leikmaður sem fékk gott tækifæri til að sýna sig í dag og gerði það svo sannarlega.
2. Kristín Klara Óskarsdóttir
Átti líka flottan leik í dag, var öflug og uppskar stoðsendingu í síðasta markinu. Ein af þessum ótrúlega efnilegu eyjastelpum sem hefur verið að gera gott mót í sumar.
Atvikið
Ég set þetta á fyrsta markið, Allison Clark einn hættulegast leikmaður ÍBV var alein og óvölduð, fékk sendingu inn fyrir, tekur svo svona ca. tíu snertingar og snúning áður en hún þrumar boltanum í netið. Það á enginn að fá svona langan tíma á boltanum við teiginn án þess að fá mann í bakið og hvað þá hún.
Hvað þýða úrslitin?
Úrslitin þýða það einfaldlega að ÍBV er komið í 8. liða úrslið Mjólkurbikarsins en Tindastólskonur eru dottnar úr leik.
Vondur dagur
Ég held að varnarlína Tindastóls hafi kviðið mikið fyrir leiknum og það sást. Þær áttu í miklum erfiðleikum með hraða leikmenn ÍBV og það þarf að taka aukaæfingar í dekkningu inn í teig. Svo varð Eydís fyrir því óláni að meiðast í fyrri hálfleik. Þær eru líklega bara mjög fegnar að sleppa "bara" með 0-5 tap í dag.
Dómarinn - 7
Þetta var bara fínasta frammistaða hjá dómarateyminu í dag, lítið sem þeir þurftu að hafa afskipti af og leyfði leiknum að fljóta vel.


