SKÝRSLAN: Þróttur slá út núverandi bikarmeistara í nýrri Bríet treyju
Hvað réði úrslitum?
Það var mikill meiri vilji hjá Þrótturum og voru Blikar sérstaklega andlausir í fyrri hálfleik. Það var ótrúlega vel mætt í stúkuna og get ég trúað að stuðningurinn hjálpaði mikið.
Bestu leikmenn
1. Kayla Marie Rollins
Var ótrúlega spræk í þessum leik og var allt í öllu í sókn Þróttara. Hún var líka duglega að bakka í vörn og vinna boltann. Frábær frammistaða hjá henni og skoraði hún mark og átti eina stoðsendingu.
2. Mollee Swift
Mollee var frábær á milli stanganna og hefði Þróttur alls ekki sigrað gegn Breiðablik ef það hefði ekki verið fyrir þessa frammistöðu hennar.
Atvikið
Það var alvöru tónleikar á AVIS vellinum þegar Bríet söng í hálfleik. Það var líka mikil fagnaðar læti hvert sinn sem Þróttur skoraði og þegar flautað var til leiks lokar.
Hvað þýða úrslitin?
Þróttur tryggðu sér sæti í 8-liða úrslit á meðan núverandi meistarar eru fallnar úr leik.
Vondur dagur
Það var frekar mikið andleysi hjá Blikum í dag og var skrítið að horfa á þau spila gegn Þrótt í dag. Það vantaði meiri vilja hjá liðinu að sigra og komast áfram. Myndi gefa öllu Blika liðinu sem vondur dagur.
Dómarinn - 4
Þorfinnur og teymið hans áttu góðan fyrri hálfleik. En misstu alveg leikin í þeim seinni. Þau dæmdu á allt og gáfu gul spjöld hægri og vinstri. Mjög skrítið hvernig frammistaða Þorfinn breyttist alveg milli hálfleikja.



