Fotbolti.net
Besta deildin
@fotboltinetSnæbjört Pálsdóttir
FH
FH
Besta kvenna
Kaplakrikavöllur
3 - 0
ÍBV
ÍBV
Birna Kristín Björnsdóttir 11'1 - 0Ída Marín Hermannsdóttir (víti) 71'2 - 0Helena Maree Errington 83'3 - 0
Dómari: Bergrós Lilja Unudóttir
Myndir: Fótbolti.net - J.L.
Leik lokið!
FH klárar þennan leik 3-0 á heimavelli, mikilvægur og stór sigur fyrir þær sem vilja klárlega klifra upp töfluna og yfir ÍBV Takk fyrir samfylgdina í kvöld! Skýrsla og viðtöl væntanleg
93. mín
Olga kemst inn í sendingu bara inn í teignum en missir boltann frá sér... Þetta sér maður ekki oft frá henni
91. mín
Þóra Björg fellur í teignum, togað aðeins í hana en Bergrós gefur skýrt til kynna að þetta hafi ekki verið neitt
88. mín
Hafrún Birna reynir skot en það er yfir
FH
83. mín
MAAAARK!

Helena Maree Errington (stoðsending: Eva Marín Sæþórsdóttir)

FH að bæta við þriðja markinu og gjörsamlega gera út um leikinn! Unnur setur boltann fyrir þar sem Eva Marín ætlar svoleiðis að negla honum á markið en hittir hann ekki og snerting hennar fer á Helenu Errington sem þarf ekki annað en pota boltanum framhjá Guðnýju
82. mín
Eva Marín ekki með vitlaust skot en Guðný sér við henni
FH
81. mín
InnEva Marín Sæþórsdóttir
ÚtThelma Lóa Hermannsdóttir
FH
81. mín
InnUnnur Thorarensen Skúladóttir
ÚtIngibjörg Magnúsdóttir
FH
77. mín
Gult spjald

Ingibjörg Magnúsdóttir

Klaufalegt! Alltof sein og þrumar Söndru Voitane niður
FH
74. mín
InnHrönn Haraldsdóttir
ÚtAndrea Rán Snæfeld Hauksdóttir
FH
71. mín
MAAAARK!

Ída Marín Hermannsdóttir

Setur hann eiginlega bara undir Guðnýju í vinstra hornið
70. mín
VÍTI!
Ingibjörg felld inn í teig! Ída Marín tekur þetta
70. mín
Andrea Rán, með horn fyrir FH, tekur það stutt með Ingibjörgu
ÍBV
67. mín
InnErla Hrönn Unnarsdóttir
ÚtMagdalena Jónasdóttir
67. mín
Olga og Jónína í baráttu Jónína setur fótinn í andlitið á Olgu í baráttunni... mér fannst hún nú lyfta fætinum ansi hátt
65. mín
Andrea Rán með aukaspyrnu á miðjum vallarhelmingi gestanna boltinn í pakkann og svo kemur ekkert teljanlegt úr þessu
FH
62. mín
InnHelena Maree Errington
ÚtBirna Kristín Björnsdóttir
FH
62. mín
InnHafrún Birna Helgadóttir
ÚtNia Raisa Christopher
59. mín
Frábær fyrirgjöf frá Thelmu Lóu en Kristín Klara kemst í boltann á undan Ídu Marín og skallar hann frá
58. mín
Olga finnur Clark á hlaupinu en hún er með of fasta fyrstu snertingu og missir boltann frá sér, svo Aldís hirðir hann
57. mín
Vandræðagangur í vörn FH, Andrea og Deja skella saman og boltinn berst á Olgu og svo Clarck en þær bara einhvern vegin ná bara ekkert að nýta þetta og missa boltann. Þarna hefði Olga átt að gera miklu betur
54. mín
Mackenzie brýtur á Clark, Avery tekur spyrnuna en hún rúllar bara út fyrir endalínu
53. mín
Guðný kominn langt út úr markinu og með lélega hreinsun beint á Ídu, þetta hefði verið mark ef Ída hefði náð að miða jafn vel og Gylfi í sínum miðju mörkum
50. mín
Andrea Rán tekur aukapsyrnu á miðjum velli finnur kollinn á Ídu en Guðný á ekki í vandræðum hana
49. mín
Birna Kristín reynir að senda Thelmu Lóu inn fyrir en aðeins of fast og Guðný hirðir þetta
47. mín
Kristín Klara gerir vel og platar bæði Ingbjörgu og Andreu upp úr skónum,
46. mín
Þóra sparkar seinni hálfleiknum af stað fyrir gestina
45. mín
FH leiða hér 1-0 í hálfleik! Þetta hefur verið mikið bras hjá ÍBV sem hafa misst 2 leikmenn útaf í meiðsli. Nú fer að sjást hvort ÍBV sé með nægilega breidd til að halda áfram góðu gengi
45. mín
Frábær pressa hjá Rögnu Söru svo boltinn berst til Clark sem var í fullkomri stöðu en alltof lengi að átta sig
45. mín
Ída finnur Niu loks inn fyrir eeeeen hún er kolrangstæð!
45. mín
Thelma Lóa reynir að finna Niu inn fyrir en hún er ekki nógu fljót að kveikja og Guðný hirðir boltann
45. mín
A.m.k. 3 mínútur í uppbótatíma
44. mín
Jónína virðist hafa fengið olnbogaskot en það hefur verið lúmskt og Bergrós sér það ekki.
41. mín
Úfff
Systurnar Ída Marín og Thelma Lóa virðast vita nákvæmlega hvar hin er, Thelma er með bakið í en tekur sendingu í snúningnum hárfínt á Ídu sem er allt í einu í geggjaðri stöðu ein og tekur skot á markið en Guðný nær að verja
39. mín
Viktorija reynir aftur að finna Allison Clark í hlaup en hún virðist mjög stíf á hlaupunum
38. mín
Andrea Rán með aukaspyrnu fyrir þar sem Birna freistaðist til að setja hann en framhjá
ÍBV
36. mín
InnRagna Sara Magnúsdóttir
ÚtEmbla Harðardóttir
2x skipting ÍBV í fyrri hálfleik, þetta er ekki gott. Vonandi er meiðslin hjá Emblu betri en þau litu út fyrir að vera
34. mín
Hræðilegt
Embla snýr upp á hnéið og það virðist bara hreinlega gefa sig... Þetta lítur hræðilega illa út og börurnar eru komnar á völlinn
33. mín
Viktorija reynir að finna Allison Clark inn fyrir en Jónína er bara miklu hraðari og Clark gefst upp
32. mín
Viktorija tekur spyrnuna, ætlar að setja hana á markið en hún var alltof laus... og Aldís handsamar boltann
31. mín
Allison Clarke klaufi og alltof lengi að athafna sig en nær þó í aukaspyrnu á fínasta stað, rétt fyrir utan vítateigsbogann
29. mín
Andrea Rán tekur horn fyrir FH, Guðný nær að kýla boltann í burtu, skot síðan sem fer yfir
ÍBV
27. mín
InnÞóra Björg Stefánsdóttir
ÚtAllison Grace Lowrey
Allison lýkur hér leik, mjög dýrt fyrir ÍBV en Þóra Björg er þó að koma sjóðheit úr bikarleik!
25. mín
Mér sýnist svona á leikrænum tilburður Allison Lowrey að hún sé búin í kvöld, komin með aftan í læri.... Meiðsli sem hafa verið að plaga hana í vor
22. mín
Úffffff
Viktorija var komin ein í gegn og átti bara eftir að setja hann en flaggið fór að mér sýndist réttilega á loft. FH konur stálheppnar, þær gleymdu sér í pirring og kvarti
20. mín
Jónína og Deja tvöfalda á Allison Lowrey sem ætlaði að komast í gegn. Horn sem Viktorija tekur en ekkert kemur úr því
18. mín
Thelma Lóa aftur komin í geggjaða stöðu en nær ekki að setja boltann framhjá Guðný sem hirðir hann
17. mín
Þarna misreiknaði Avery sig eitthvað og Ída Marín kemst í boltann er komin við endalínu og setur boltann fyrir, fast niðri, stórhættulegur bolti en Thelma Lóa nær ekki að gera sér mat úr þessu
FH
11. mín
MAAAARK!

Birna Kristín Björnsdóttir

Aðdragandinn að þessu marki! Maður minn! Andrea Rán finnur Ingibjörgu í geggjaðri sendingu, hún sendir hann fyrir þar sem Nia þrumar boltanum fyrst í stöngina og svo í Guðnýju áður e Birna Kristín nær að pota boltanum inn. Þetta var eiginlega bara þvert gegn gangi leiksins!
9. mín
Ída Marín kemur sér að harðfylgi í ágætis stöðu en skýtur framhjá
7. mín
Aldís þarf að koma langt út úr teignum til að hreinsa áður en Allison Lowrey kæmist ein í gegn
5. mín
Hættulegt!
Avery finnur Vikriju sem á hættulega sendingu inn í teiginn þar sem munaði hársbreidd að Olga næði til hans og þá ein gegn Aldísi í marki FH
3. mín
Allison Lowrey gríðarsterk og Ída Marín liggur hreinlega eftir, eftir afskipti við hana, það sér maður ekki oft!
1. mín
Andrea með góða sendingu upp í horn á Ingibjörgu sem tekur hann með sér og reynir svo að ég held skot á fjær en það er framhjá
1. mín
Nia sparkar þessu af stað fyrir heimakonur
Fyrir leik
Liðin ganga hér inn á völlinn, ÍBV spila í heiðbláum varabúningum en FH hvítar og svartar að vana! þetta fer að hefjast!
Fyrir leik
Byrjunarliðin klár!
FH Bræðurnir Guðni og Hlynur gera 4x breytinga frá því í síðasta leik þeirra gegn Selfossi í Mjólkurbikarnum. inn í liðið koma Nia Raisa Christopher, Ída Marín, Thelma Lóa, Andrea Rán en úr liðinu fara Helena Maree Errington, Berglind Freyja, Elín Björg og Hafrún Birna. ÍBV Jón Óli gerir einnig 3x breytingar á sínu liði frá því í leik þeirra gegn Tindastól í Mjólkurbikarnum. Inn í liðið koma aftur Guðný Geirsdóttir, Olga Sevcova, Allison Lowrey en úr liðinu fara Arden Joy, Þóra Björg, Milena,
Fyrir leik
Mist Rúnars spáir í 5. umferð Bestu kvenna
Mist Rúnarsdóttir, sérfræðingur í kvennaboltanum, spáir í leiki kvöldsins. FH 3 - 1 ÍBV (18:00 í kvöld) Ég hef tilfinningu fyrir því að FH-ingar verði fyrstar til að taka stig af sjóðheitum Eyjakonum. Þetta verður að sjálfsögðu hörkuleikur, opinn og skemmtilegur. Skýt á að Nia, Deja og Berglind Freyja setji mörk heimakvenna en Allison Patricia Clark skorar fyrir ÍBV eftir stoðsendingu Olgu Sevcova sem heldur áfram að valda usla.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
ÍBV
Nýliðar ÍBV sitja flestum að óvörum í 2. sæti með fullt hús stiga, 12 stig! Þær hafa aðeins lakari markatölu en Breiðablik sem sitja þar af leiðandi í 1. sætinu. ÍBV eru eins og áður sagði með fullt húsa stiga og eru því ósigraðar bæði í deild og bikar en þær sóttu auðveldan 5-0 sigur gegn Tindastól í Mjólkurbikarnum. Þar náðu þær að hvíla lykilmenn en bæði Olga og Allison Lowrey voru ekki í hóp. Í deildinni náðu þær síðast í góðan 2-0 sigur gegn Þór/KA á heimavelli. Einmitt með mörkum frá Olgu og Allison Lowrey. Nýliðarnir hafa komið af hörku inn í deildina og hafa skorað flest mörk. Hins vegar hafa þær líka verið að fá á sig slatta af mörkum og var leikurinn gegn Þór/KA í fyrsta skiptið sem þær héldu hreinu. Ég býst því við mjög fjörugum leik hér í dag!
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
FH
Heimakonur í FH sitja fyrir leikinn í dag í 3. sæti deildarinnar með 7 stig. 5 stigum á eftir Breiðablik og ÍBV sem eru með fullt hús stiga á toppnum. FH konur hafa verið á góðu flugi og hafa unnið síðustu 3 leiki í röð. Sá síðasti 0-7 gegn Lengjudeildarliði Selfoss í Mjólkurbikarnum. Hinir tveir leikirnir í deildinni, 1-2 gegn Stjörnunni og svo 2-1 gegn Grindavík/Njarðvík. Þær fengu hins vegar skelfilegar fréttir á dögunum. Fyrirliði þeirra Katla María Þórðardóttir fór sárþjáð af velli gegn Stjörnunni og nú er komið í ljós að hún er með slitið krossband og mun því ekki spila meira á þessu tímabili. Hræðilegar fréttir úr Krikanum en vonandi mun endurhæfingin ganga vel hjá Kötlu! Nú þurfa FH konur því að bregðast við þessum missi og aðrir leikmenn að stíga upp í fjarveru fyrirliðans. Það verður áhugavert að sjá hvernig þær svara því verkefni í dag gegn sterku liði ÍBV, en þær hafa sýnt að þær eru vel skipulagðar, baráttuglaðar og ekki auðveldur andstæðingur fyrir nein lið í deildinni.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
5. umferðin
Öll umferðin er spiluð í dag, þar sem þessi leikur var færður. 5. umferðin lítur þá svona út: Í dag: 18:00 FH-ÍBV 18:30 Þór/KA-Breiðablik 19:15 Víkingur R.-Þróttur R. 19:15 Valur-Fram 19:15 Grindavík/Njarðvík-Stjarnan
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Dómarateymi kvöldsins
Á flautunni í kvöld verður Bergrós Lilja Unudóttir og henni til halds og trausts verða Jón Reynir Reynisson og Daníel Örn Arnarson aðstoðardómarar. Fjórði dómari er Reynir Ingi Finnson og eftirlitsmaður í kvöld er Ólafur Ingi Guðmundsson
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Besta deildin kallar!
Verið hjartanlega velkomin í beina textalýsingu þráðbeint frá AVIS vellinum þar sem Þróttur tekur á móti Grindavík/Njarðvík í 4. umferð Bestu deildarinnar Leikurinn hefst á slaginu 18:00!
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.