Leik lokið!
Allt jafnt hér á JBÓ vellinum!
Viðtöl og skýrsla væntanleg.
94. mín
Grindavík/Njarðvík ógnar eftir hornspyrnu en ná ekki að koma skotinu á markið og Stjarnan verst vel.
93. mín
Gult spjald
Maci Nicole Teater
91. mín
ÞÆR JAFNA!!
Ingibjörg Lúcía Ragnarsdóttir
Boltinn fellur fyrir Ingibjörgu Lúcíu fyrir utan teig eftir hornspyrnu sem lætur vaða og boltinn endar í fjærhorninu! Alls ekki ósanngjarnt en það er ALLT JAFNT!91. mín
Fimm mínútum bætt við þessa skemmtun
89. mín
Hörku staða
Heimakonur sækja og komast í hörku stöðu en Stjarnan nær að henda sér fyrir skotið frá Rakeli Sigurðardóttur og verjast góðu áhlaupi frá Grindavík/Njarðvík.
86. mín
InnLea Björt Kristjánsdóttir
ÚtHildur Katrín Snorradóttir
86. mín
InnRut Sigurðardóttir
ÚtLily Anna Farkas
84. mín
Fyrirgjöf frá vinstri verður að frábæru skotfæri hjá Stjörnunni en Lauren Kellet þarf að slá boltann burt.
82. mín
Ingibjörg Lúcía með tilraun yfir markið.
81. mín
Snædís María með skalla framhjá markinu.
Stjarnan líklegri þessa stundina.
79. mín
Aníta Ýr með flotta pressu hjá Stjörnunni og nálægt því að vinna boltann af Hannah McLaughlin en Lauren Kellet í markinu var tilbúin.
75. mín
InnJúlía Rán Bjarnadóttir
ÚtÁsa Björg Einarsdóttir
75. mín
InnRakel Sigurðardóttir
ÚtNatasha Moraa Anasi
73. mín
Úlfa Dís vinnur boltann hátt á vellinum og Stjarnan eru þrjár á tvær en Grindavík/Njarðvík verjast virkilega vel.
71. mín
InnAníta Ýr Þorvaldsdóttir
ÚtFanney Lísa Jóhannesdóttir
70. mín
Þóra María með sendingu fyrir markið sem Snædís María nær ekki góðri móttöku á og boltinn fer aftur fyrir.
66. mín
Sophia Romine í lofandi stöðu en kemur með full lausan bolta fyrir markið og Bridgette í marki Stjörnunnar kemur út og sækir boltann.
65. mín
InnMargrét Lea Gísladóttir
ÚtHrefna Jónsdóttir
65. mín
InnBirna Jóhannsdóttir
ÚtAndrea Mist Pálsdóttir
62. mín
InnTinna Hrönn Einarsdóttir
ÚtDanai Kaldaridou
61. mín
Stjarnan skorar en flaggið á loft!
Frábær fyrirgjöf fyrir markið og Stjarnan kemur boltanum í slána og inn en flaggið á loft svo það taldi ekki.
60. mín
Stjarnan fær hornspyrnu.
54. mín
Úlfa Dís!
Stjarnan gerir frábærlega að þræða Úlfu Dís í gegn en Lauren Kellett kemur vel út á móti og lokar.
50. mín
Byrjar hægt í seinni en vonandi fer að færast eitthvað fjör í þetta.
46. mín
Seinni hálfleikur farin af stað
Vonandi fáum við samba í seinni.
45. mín
Eftir fjöruga byrjun á leiknum róaðist hann full mikið eftir markið. Við óskum eftir örlítið meiri skemmtun í síðari hálfleik.
Tökum okkur stutta pásu og snúm svo aftur eftir korter með seinni hálfleikinn.
41. mín
Stjarnan verið örlítið ofan á í baráttunni síðustu mínútur en það er lítið um að vera í þessum leik sem stendur.
35. mín
Andrea Mist reynir skot fyrir utan teig sem svífur yfir markið.
32. mín
Stjarnan sækja sér hornspyrnu með fínasta spili.
G/N skallar frá í ræturnar á Þóru Maríu sem reynir skot en hittir boltann illa og hann fer vel yfir markið.
31. mín
Ása Björg kemst upp að endamörkum og á fyrirgjöf fyrir markið en Stjarnan kemur þessu frá.
30. mín
Ekki mikið um að vera þessa stundina.
25. mín
Stjarnan með aukaspyrnu inn á teig sem þær skófla svo yfir markið.
22. mín
Grindavík/Njarðvík verið betri í upphafi leiks. Þær hafa verið hættulegar þegar þær hafa komist á síðasta þriðjung.
17. mín
Varsla!
Ása Björg með frábæran bolta fyrir markið á Sophiu Romine sem á flotta tilraun sem Bridgette í marki Stjörnunnar ver frábærlega!
12. mín
Hildur Katrín á gott skot sem fer rétt yfir markið.
10. mín
Grindavík/Njarðvík taka forystu!
Lily Anna Farkas
Þær sækja upp vinstri hliðina og eftir smá klafs í teignum kemur Lily Farkas skoti að marki sem endar í netinu! Heimakonur leiða!7. mín
Lily Farkas með fyrirgjöf sem verður hálfpartinn að skoti á markið.
6. mín
Úlfa Dís með tilraun rétt framhjá markinu.
4. mín
Stjarnan að ógna
Eru að komast í hættulega stöðu en G/N verjast vel.
3. mín
Stjarnan verst!
Grindavík/Njarðvík með hornspyrnu og skalli að marki endar með flottri vörslu.
1. mín
Stjarnan fær fyrstu hornspyrnu leiksins.
1. mín
Það eru gestirnir frá Garðabæ sem sparka okkur af stað.
Fyrir leik
Spákonan
Mist Rúnarsdóttir, sérfræðingur í kvennaboltanum, spáir í leiki kvöldsins.
Grindavík/Njarðvík 2 - 1 Stjarnan
Það er alls ekki einfalt að lesa í þennan leik en það er líka erfitt að sjá fyrir sér að stórskemmtilegir nýliðar Grindavíkur/Njarðvíkur fari að hætta að koma öllum nema sjálfum sér á óvart. Þetta verður þungavigtarbarátta. Stál í stál og lítið sem skilur á milli. Mögulega Genevive í marki heimakvenna? Sjóðheit Sophia Faith Romine skorar bæði fyrir G/N en skemmtikrafturinn Úlfa Dís kemur sér á blað í deildinni og setur mark Stjörnunnar.

Fyrir leik
Heil umferð í dag!
Öll fimmta umferðin er spiluð í dag og lítur umferðin svona út:
18:00 FH-ÍBV
18:30 Þór/KA-Breiðablik
19:15 Víkingur R.-Þróttur R.
19:15 Valur-Fram
19:15 Grindavík/Njarðvík-Stjarnan

Fyrir leik
Grindavík/Njarðvík
Nýliðarnir hafa farið skemmtilega af stað og sitja í 5. sæti deildarinnar með 6 stig eftir fjórar umferðir.
Grindavík/Njarðvík sótti þrjú stig á Avis völlinn í síðustu umferð þar sem þær gerðu sér lítið fyrir og unnu lið Þróttara 1-2.
Fyrir það hafði liðið tapað gegn FH úti og unnið góðan heimasigur gegn Þór/KA.

Fyrir leik
Stjarnan
Stjarnan hefur farið hökktandi af stað og sitja í 7. sæti deildarinnar með 4 stig eftir fjórar umferðir.
Stjarnan tapaði í síðustu umferð 1-2 gegn FH en höfðu fyrir það sótt jafntefli á Akureyri gegn Þór/KA og unni Val heima 2-0.

Fyrir leik
Dómarateymið í kvöld
Ásmundur Þór Sveinsson er dómari kvöldsins og honum til aðstoðar verða Óliver Thanh Tung Vú og Nour Natan Ninir.
Fjórði dómari er Ágúst Hjalti Tómasson og eftirlitsmaður KSÍ er Björn Guðbjörnsson.

Fyrir leik
Heil og sæl!
Verið hjartanlega velkomin í þessa þráðbeinu textalýsingu frá JBÓ vellinum í Njarðvík þar sem Grindavík/Njarðvík taka á móti Stjörnunni í 5. umferð Bestu deild kvenna.






