Fotbolti.net
Gylfi Már Þórðarson
Lengjudeild karla
Tekk Völlurinn
8° og hægur vindur. Skýjað og dropar annað slagið.
Fylkir
Fylkir
3 - 0
Leiknir R.
Leiknir R.
Guðmundur Tyrfingsson 41'1 - 0Guðfinnur Þór Leósson 68'2 - 0Guðmundur Tyrfingsson 70'3 - 0
Dómari: Twana Khalid Ahmed
Áhorfendur: 583
Myndir: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Leik lokið!
Fylkir tekur öll stigin!
3-0 lokatölur í Árbænum.

Viðtöl og skýrsla væntanleg!
90. mín
+5
87. mín
Stöngin!
Arnar Númi hljóp upp allan völlinn með boltann, alla leið inn í teig Leiknis, á mjög fínt skot sem endar í stönginni innanverðri. Þarna var ég viss um að fjórða markið væri komið.
Fylkir
84. mín
InnNikulás Val Gunnarsson
ÚtBirkir Eyþórsson
Fylkir
84. mín
InnAron Snær Guðbjörnsson
ÚtMáni Austmann Hilmarsson
Fylkir
83. mín
Gult spjald

Arnór Breki Ásþórsson

Leiknir R.
82. mín
InnAron Skúli Brynjarsson
ÚtRúrik Gunnarsson
Leiknir R.
82. mín
InnGísli Alexander Ágústsson
ÚtDagur Ingi Hammer Gunnarsson
81. mín
Góð tilraun Leiknismanna
Héldu boltanum vel og spiluðu vel á milli sín. Loks barst boltinn út til hægri og kom föst sending á fjörstöngina og vantaði lítið uppá að leikmaður Leiknis hefði komið tá á boltann.
Fylkir
76. mín
InnDagur Traustason
ÚtEyþór Aron Wöhler
Tvöföld skipting Fylkis
Fylkir
76. mín
InnArnar Númi Gíslason
ÚtGuðmundur Tyrfingsson
Leiknir R.
72. mín
Fyrir mótmæli

Brynjar Björn Gunnarsson

Fylkir
70. mín
Guðmundur með sitt annað mark!

Guðmundur Tyrfingsson

Aukaspyrna af miðjum vallarhelmingi Leiknis. Boltinn berst hátt inn á teig, Ólafur markvörður ætlar að kýla boltann út en hittar hann ekki, boltinn berst til Guðmundar sem leggur boltann í netið.

Aftur er Ólafur ekki sáttur og telur á sér brotið.
Fylkir
69. mín
Gult spjald

Birkir Eyþórsson

Leiknir R.
69. mín
InnAxel Freyr Harðarson
ÚtÞorsteinn Emil Jónsson
Fylkir
68. mín
2-0

Guðfinnur Þór Leósson

Fylkismenn skora!

Enn ein hornspyrna Fylkismanna endar með marki. Arnór Breki tók hornið, og átti að mér sýndist Orri Sveinn tilraun á markið sem Ólafur Íshólm ver en náði hann ekki að halda boltanum og barst boltinn til Guðfinns Þórs sem renndi boltanum yfir línuna.

Ólafur var ekki sáttur og taldi á sér brotið
Leiknir R.
66. mín
Gult spjald

Djorde Vladisavljevic

66. mín
DAUÐAFÆRI
Guðmundur Tyrfingsson í dauðafæri! Bjarki Steinsen vann boltann af Eiríki Erni bakverði Leiknis ofarlega á vellinum, kemur boltanum fyrir á fjær þar sem Guðmundur fær galopið skot en skýtur hátt yfir markið af 5 metrunum.
65. mín
Skalli að marki Fylkis
Leiknismenn vinna boltann ofarlega á vellinum, kemur fyrirgjöf inn á teiginn sem Birnir Breki skallar beint á Ólaf Kristófer í markinu
Fylkir
63. mín
InnTheodór Ingi Óskarsson
ÚtKári Sigfússon
Fyrsta skipting Fylkismanna
61. mín
Guðmundur Tyrfingsson liggur
Leiknismenn áttu óbeina aukaspyrnu u.þ.b. 10 metrum fyrir utan teig Fylkismanna eftir að dæmt var hættuspark. Shkelzen Veseli ákveður samt sem áður að skjóta að marki beint úr spyrnunni en það gekk ekki betur en svo að hann skaut beint í höfuðið á Guðmundi Tyrfingssyni sem þarf á aðhlynningu að halda
60. mín
Birkir Eyþórsson með ágætis skot
Þéttingsfast skot við D-bogann. Ólafur Íshólm öruggur í sínum aðgerðum og slær boltann til hliðar.
54. mín
Hornspyrna Fylkir
Fínasti bolti inn á miðjan teiginn sem er skallaður áfram á fjær. Úr verður smá darraðadans sem endar með skoti yfir markið
50. mín
Seinni hálfleikur hefst með keimlíkum hætti og sá fyrri
Fylkismenn með boltann og Leiknismenn reyna að sækja hratt
46. mín
Netið var ekki fast við jörðina í marki Fylkis
Nú er búið að kippa því í liðinn svo leikar geta hafist
Leiknir R.
46. mín
InnEiríkur Örn Beck
ÚtArnór Valur Ágústsson
Tvöföld skipting Leiknismanna í hálfleik
Leiknir R.
46. mín
InnShkelzen Veseli
ÚtViktor Andri Pétursson
Tvöföld skipting Leiknismanna í hálfleik
46. mín
Eitthvað vandamál með að hefja leik í seinni
Leikmenn fá hér auka bolta og sparka á milli sín til að halda á sér hita áður en seinni hálfleikur hefst. Hvað tefur er ég ekki alveg klár á.
45. mín
Lögreglan er hér sýnileg á svæðinu og dreifir endurskinsmerkjum til áhorfenda - gott framtak!
45. mín
Hálfleikur
Leikhlé
Það er kominn hálfleikur hérna í Árbænum, Fylkismenn leiða 1-0 sem er sanngjörn staða að mínu mati.

Sjáumst eftir korter
45. mín
+1
Ein mínúta í viðbót
Fylkir
41. mín
Loksins er ísinn brotinn!

Guðmundur Tyrfingsson (stoðsending: Kári Sigfússon)

Fylkismenn hafa haldið pressunni allan leikinn og uppskera loksins á 41. mínútu. Kári Sigfússon fær boltann úti hægra megin. Hann á hnitmiðaða sendingu inn á teiginn þar sem Guðmundur var einn og óvaldaður og stýrði boltanum í hornið vinstra megin.
1-0 fyrir Fylki, verðskuldað
36. mín
Aukaspyrna á hættulegum stað
Leiknismenn fá aukaspyrnu úti vinstra megin. Nú er séns.

En spyrnan frá Arnóri Val ansi slök og ekkert verður úr henni.
34. mín
Lítið að frétta þessa stundina
Nokkur hálf, hálffæri (fjórðungsfæri?) en ekkert bitastætt.
30. mín
Hálftími liðinn
Leikurinn hefur spilast þannig að Fylkismenn halda í boltann og eru mun meira ógnandi en Leiknismenn halda sig til baka og beita skyndisóknum.
Leiknir R.
27. mín
Gult spjald

Arnór Valur Ágústsson

Fyrir að hanga aftan í Kára Sigfússyni
Fylkir
24. mín
Fyrir brot

Orri Sveinn Segatta

18. mín
Gott skot Leiknismanna
Loksins reynir á Ólaf Kristófer í marki Fylkis. Boltinn barst kantanna á milli og endaði hjá Viktori Andra að mér sýndist sem átti fínt skot sem Ólafur varði vel.
16. mín
Skalli
Kári Sigfússon kemur boltanum fyrir, þar er Guðmundur Tyrfingsson mættur sem á skallann beint á Ólaf. Fylkismenn að herða tökin og það liggur mark í loftinu
14. mín
Vel spilað hjá Fylkismönnum
Tumi Fannar stingur boltanum inn á Mána Austmann sem skýtur að marki en skotið var þægilegt fyrir Ólaf sem grípur boltann.
8. mín
Fylkismenn halda pressunni
Boltinn barst til Arnórs Breka sem keyrir upp að endalínu, leggur boltann út á Mána Austmann sem lúðrar boltanum vel yfir markið.
6. mín
ÓLAFUR ÍSHÓLM
Þvílíkar markvörslur! Hornspyrna Fylkis fer í miðjan teiginn þar sem Orri Sveinn nær föstum skalla sem Ólafur ver, boltinn berst til Fylkismanns á markteig sem tekur skotið í fyrsta og Ólafur ver aftur! Þvílík tilþrif!
5. mín
Fyrsta færið
Boltinn berst til Kára Sigfússonar vel fyrir utan teig sem tekur skotið sem er vel varið af Ólafi í horn
1. mín
Leikur hafinn
Þetta er farið af stað!
Það er Rúrik Gunnarsson fyrir Leiknismenn sem sparkar þessu af stað
Fyrir leik
Liðin ganga hér á völlinn
Fylkismenn í sínum hefðbundnu appelsínugulu treyjum en Leiknismenn í hvítum varabúningum sínum.
Fyrir leik
Dómarinn
Í dag er það Twana Khalid Ahmed sem ræður ríkjum. Honum til aðstoðar eru Kristófer Bergmann og Þráinn Jón Elmarsson. Dómaraeftirlitsmaður er Guðmundur Ársæll Guðmundsson.
Fyrir leik
Leiknir
Leiknismenn sitja í 8. sæti deildarinnar með sex stig. Þeir hafa sigrað einn leik, gert þrjú jafntefli tapað einungis einum leik.
Fyrir leik
Fylkir
Fylkismenn sitja á toppi deildarinnar með 12 stig, hafa sigrað fjóra af fyrstu fimm leikjum sínum, eru komnir í 8-liða úrslit í bikar og koma því á fljúgandi siglingu inn í þennan leik
Fyrir leik
Verið velkomin til leiks
Eftir um 30 mínútur hefst leikur Fylkis og Leiknis í Lengjudeild karla á Tekk-vellinum í Árbæ
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.