Leik lokið!
ROSALEGUM LEIK LOKIÐ
90. mín
Vuk í dauðafæri en klikkar og Kennie skýtur síðan í stöngina!!
Hefðu getað klárað þetta þarna.
Hefðu getað klárað þetta þarna.
90. mín
Við fáum 3 mínútur í uppbót og Framarar fá markspyrnu og Viktor tekur sér góðan tíma í þetta.
90. mín
Blikar þjarma vel að marki Fram þessa stundina.
88. mín
Ágúst með fyrirgjöf inn á teiginn en Kennie neglir þessu burt.
86. mín
Blikar farnir að kasta ansi mörgum mönnum fram völlinn við öll tækifæri.
83. mín
Gult spjald
Haraldur Einar Ásgrímsson
Brýtur af sér og Blikar fá aukaspyrnu í góðri fyrirgjafastöðu.82. mín


Æsispennandi lokamínútur framundan



82. mín
InnÁsgeir Helgi Orrason
ÚtArnór Gauti Jónsson
80. mín
Blikar farnir að setja meiri pressu á Framara í leit að jöfnunarmarki.
79. mín
InnMár Ægisson
ÚtFreyr Sigurðsson
Tvöföld skipting heimamanna
79. mín
InnBjarni Páll Linnet Runólfsson
ÚtJakob Byström
75. mín
Framarar vilja víti en ekkert dæmt og Blikar keyra upp en ekkert verður úr skyndisókninni.
Það liggur mark í loftinu.
Það liggur mark í loftinu.
74. mín
Framarar reyna aðeins róa þetta niður núna og halda í boltann.
69. mín
OG HANN SKORAR!!
Kristófer Ingi Kristinsson
Stefnir í rosalegar seinustu 20 mínútur hér.68. mín
Mótmæli
Sigurjón Rúnarsson
68. mín
BLIKAR FÁ VÍTI!!
Ívar Örn með boltann fyrir og Arnar Bjarki undan í boltann og Viktor Freyr brýtur á honum.
67. mín
Vuk lætur til sín taka strax!
Vinnur einvígi við Arnór Gauta og nær skoti sem fer í varnarmann og aftur fyrir.
66. mín
InnVuk Oskar Dimitrijevic
ÚtRóbert Hauksson
Vuk að koma til baka eftir að hafa glímt við meiðsli.
64. mín
Ægir Jarl með skalla framhjá markinu eftir aukaspyrnu utan að kanti.
61. mín
Framarar í færi hinum megin en Blikar bægja hættunni frá.
60. mín
Er þetta leikur?
ERU BLIKAR INNI Í ÞESSU
Kristófer Ingi Kristinsson
Blikar skjóta tvisvar á markið og bjargað á línu áður en Kristófer fær boltann í markteignum og setur hann inn af afar stuttu færi.Er þetta leikur?
59. mín
InnArnar Bjarki Gunnleifsson
ÚtAnton Logi Lúðvíksson
57. mín
Framarar nálægt fimmta markinu!
Byström rennir boltanum fyrir markið og Freyr er svo nálægt því að koma boltanum í autt markið.
Blikar virðast vera alveg brotnir!
Blikar virðast vera alveg brotnir!
55. mín
Hvernig ætla Blikar að svara þessu?
4 - 1 BYSTRÖM!!!
Jakob Byström
Haraldur með fyrirgjöf af hægri kantinum sem hafnar í þverslánni og hrekkur til Jakobs Byström sem tekur á móti boltanum og neglir honum inn!Hvernig ætla Blikar að svara þessu?
53. mín
Togar Fred niður og stoppar hraðaupphlaup
Aron Bjarnason
52. mín
Haraldur tekur spyrnuna og Anton ver og þarf að kýla boltann tvisvar til að koma honum í burtu.
51. mín
Brýtur af sér rétt við vítateiginn
Kristófer Ingi Kristinsson
47. mín
Framarar vilja víti
Jakob Byström virðist vera sparkaður niður en Gunnar Oddur er á öðru máli.
46. mín
Kristófer sparkar seinni hálfleikinn af stað
45. mín
Hálfleikur
Gunnar Oddur flautar til hálfleiks
Algjörlega stórkostleg skemmtun þessar 45 mínútur. 4 mörk komin og hefðu hæglega getað verið fleiri.
Tökum okkur stutt hlé og síðan er það seinni hálfleikurinn.
Tökum okkur stutt hlé og síðan er það seinni hálfleikurinn.
45. mín
DAUÐAFÆRI
Róbert fær sendingu upp rennuna og gerir vel að koma sér í færi en Anton sér við honum.
45. mín
Kennie hársbreidd frá þrennunni!
Kennie kemur á ferðinni og nær góðu skoti sem Anton ver. Stúkan staðin upp og klappar vel fyrir fyrirliðanum.
45. mín
Þrjár mínútur í uppbót
43. mín
Viktor Karl brýtur á Haraldi en sleppur án spjalds og stúkan ekki sátt.
41. mín
Gegn gangi leiksins miðað við síðustu 10 mínútur.
LEIÐ EITT!
Freyr Sigurðsson (stoðsending: Frederico Bello Saraiva)
Viktor neglir þessu fram, Róbert vinnur skallaeinvígið og boltinn hrekkur á Fred sem lyftir honum á Frey sem potar boltanum í fjærhornið!Gegn gangi leiksins miðað við síðustu 10 mínútur.
38. mín
Blikar hafa verið mun meira með boltann seinustu mínútur og Framarar verjast þéttir.
34. mín
InnKristinn Steindórsson
ÚtHöskuldur Gunnlaugsson
Gestirnir gera einnig breytingu
Höskuldur röltir útaf vellinum og Kiddi Steindórs kemur inn. Var tæpur í síðustu umferð og eitthvað virðist enn vera að hrjá hann.
34. mín
InnIsrael Garcia Moreno
ÚtKyle Douglas Mc Lagan
Framarar neyðast til þess að gera skiptingu
Kyle virðist finna til og Israel kemur inn fyrir hann.
30. mín
Líflegur fyrsti hálftíminn hér í Úlfarsárdal!
Blikar minnka muninn!!!
Ívar Örn Árnason (stoðsending: Höskuldur Gunnlaugsson)
Hornspyrna frá Höskuldi sem ratar beint á kollinn á Ívari á fjærsvæðið sem stangar boltann niður í nærhornið.Líflegur fyrsti hálftíminn hér í Úlfarsárdal!
28. mín
Blikar keyra hratt upp völlinn sem endar með skoti frá Höskuldi en það fer hátt yfir markið.
26. mín
Leikurinn hefur aðeins róast eftir heldur fjörugar fyrstu 20 mínútur.
20. mín



Kennie sýningin




19. mín
Ægir Jarl með þrumuskot
Ægir Jarl með boltann við teig Blika og lætur vaða en Anton ver vel í markinu.
15. mín
Framarar nálægt því að bæta við
Hætta inn á teig Blika en Róbert rétt missir af boltanum og Blikar hreinsa frá.
13. mín
Fram og til baka
Framarar keyra í skyndisókn fjórir á tvo en Kennie missir boltann of langt frá sér og þetta rennur út í sandinn.
12. mín
Kristófer!!
Góð spyrna frá Kristófer sem Viktor ver vel og boltinn aftur fyrir endamörk.
11. mín
Ágúst fiskar aukaspyrnu á álitlegum stað
9. mín
Blikar halda áfram að koma sér inn í leikinn. Góð sending fyrir markið frá Ágústi sem Viktor Freyr kemst inn í
8. mín
Blikar aðeins að vakna
Viktor Karl með fast skot beint á markið sem nafni hans ver.
5. mín
Ívar Örn étinn aftast á vellinum af Kennie sem klárar þetta sjálfur í fjærhornið.
Ótrúleg byrjun á þessum leik.
JE DÚDDA MÍA!!!
Kennie Knak Chopart
HVAÐ ER AÐ GERAST?!Ívar Örn étinn aftast á vellinum af Kennie sem klárar þetta sjálfur í fjærhornið.
Ótrúleg byrjun á þessum leik.
3. mín
Frábær sending fyrir markið sem Kennie Chopart stangar í fjærhornið og Anton á ekki séns í þetta.
Kennie heldur áfram að raða inn mörkum fyrir Framara.
ÞVÍlÍKUR SKALLI
Kennie Knak Chopart (stoðsending: Haraldur Einar Ásgrímsson)
ÞVÍLÍK BYRJUN!!Frábær sending fyrir markið sem Kennie Chopart stangar í fjærhornið og Anton á ekki séns í þetta.
Kennie heldur áfram að raða inn mörkum fyrir Framara.
2. mín
Framarar fá fyrstu hornspyrnu leiksins og er smá klafs í teig Blika sem hreinsa þó að lokum.
1. mín
Leikur hafinn
Þetta er farið af stað!
Fyrir leik
Enginn Atli þór
Atli Þór Jónasson, leikmaður Fram, er frá vegna meiðsla og er því ekki í hóp í dag.


Fyrir leik
Fáum við markaleik?
“Bæði lið skora 2 mörk+” er á stuðlinum 3 á Epic og hefur það verið niðurstaðan í 3 af siðustu 4 leikjum hjá baðum liðum.
— Kristalkúlan (@kristalkulan) May 29, 2026
Fyrir leik
Byrjunarliðin
Rúnar Kristinsson stillir fram óbreyttu byrjunarliði frá 0 - 1 sigrinum gegn Stjörnunni í síðustu umferð. Vuk Dimitrijevic er kominn aftur í hóp Fram og tekur sæti á varamannabekknum.
Ólafur Ingi Skúlason gerir eina breytingu í sínu liði frá 6 - 3 sigrunum á KR í síðustu umferð. Andri Rafn Yeoman fór útaf meiddur á 37. mínútu og er í liðsstjórn en Arnór Gauti kemur inn í byrjunarliðið í hans stað.
Ólafur Ingi Skúlason gerir eina breytingu í sínu liði frá 6 - 3 sigrunum á KR í síðustu umferð. Andri Rafn Yeoman fór útaf meiddur á 37. mínútu og er í liðsstjórn en Arnór Gauti kemur inn í byrjunarliðið í hans stað.
Fyrir leik
Naut, Hreimur og pallborðsumræður
Skemmtileg upphitun fyrir leik kvöldsins verður í veislusal Fram þar sem húsið opnar 17:30.
Fyrir leik
Jafnræði milli liðanna á síðustu leiktíð
Liðin spiluðu þrisvar við hvort annað á síðustu leiktíð þar sem bæði voru í efri hluta deildarinnar. Fram vann fyrsta leikinn 4 - 2 í eftirminnilegum leik þar sem Blikar voru yfir 0 - 2 á 70. mínútu en varnarleikur þeirra hrundi eftir það og Framarar settu fjögur mörk á 11 mínútna kafla í lokin.
Annar leikur liðanna endaði með 1 - 1 jafntefli á Kópavogsvelli þar sem Höskuldur Gunnlaugsson jafnaði metin úr vítaspyrnu á 91. mínútu og svo í kjölfar spyrnunnar sauð gjörsamlega allt upp úr og Arnar Þór, dómari leiksins, rak Höskuld og Kyle McLagan báða útaf.
Lokaleikur liðanna á síðustu leiktíð var Blikasigur þar sem staðan var 3 - 1 í hálfleik og þar við sat. Leikur kvöldsins getur því farið í allar áttir og vonumst við eftir algjörri veislu!
Annar leikur liðanna endaði með 1 - 1 jafntefli á Kópavogsvelli þar sem Höskuldur Gunnlaugsson jafnaði metin úr vítaspyrnu á 91. mínútu og svo í kjölfar spyrnunnar sauð gjörsamlega allt upp úr og Arnar Þór, dómari leiksins, rak Höskuld og Kyle McLagan báða útaf.
Lokaleikur liðanna á síðustu leiktíð var Blikasigur þar sem staðan var 3 - 1 í hálfleik og þar við sat. Leikur kvöldsins getur því farið í allar áttir og vonumst við eftir algjörri veislu!
Fyrir leik
Jafnteflis fnykur
Elmar Kári Cogic, leikmaður Aftureldingar, sá um spána fyrir 9. umferð Bestu deildar og hann spáði hann jöfnum leik.

Jafnteflis fnykur og spáir 1 - 1.

Jafnteflis fnykur og spáir 1 - 1.
Fyrir leik
Breiðablik
Blikar hafa farið aðeins hikstandi af stað í þessu móti og eru núna 10 stigum fyrir aftan Víkinga sem sitja í efsta sætinu. Blikar sitja í 4. sæti deildarinnar með 15 stig eftir 8 umferðir. Í síðustu umferð vann Breiðablik leik sinn gegn KR en sá leikur fór 6 - 3 þannig við vonumst eftir svipaðri veislu hér í kvöld.


Fyrir leik
Fram
Framarar koma inn í þennan leik fullir sjálfstrausts eftir frábæra byrjun í mótinu. Þeir sitja í 3. sætinu með 17 stig en þeir hafa sótt 13 stig af 15 mögulegum í síðustu fimm leikjum sínum. Í síðustu umferð náðu þeir í sterkan 0 - 1 sigur gegn Stjörnunni á Samsungvellinum.


Fyrir leik
Dómarateymi kvöldsins
Gunnar Oddur fær það hlutverk að dæma leikinn og honum til halds og trausts sem aðstoðardómarar eru Gylfi Már Sigurðsson og Ronnarong Wongmahadthai. Fjórði dómari leiksins er Róbert Þór Guðmundsson og eftirlitsmaður er Jón Magnús Guðjónsson.

Fyrir leik
Velkomin til leiks á Lambhagavelli
Sæl öll og verið velkomin í textalýsingu frá Lambhagavelli þar sem heimamenn í Fram fá Breiðablik í heimsókn í 9. umferð Bestu deild karla.
föstudagur 29. maí
19:15 FH-ÍA (Kaplakrikavöllur)
19:15 Fram-Breiðablik (Lambhagavöllurinn)
sunnudagur 31. maí
17:00 ÍBV-Keflavík (Hásteinsvöllur)
17:00 KR-KA (Meistaravellir)
17:00 Þór-Stjarnan (VÍS völlurinn)
19:15 Valur-Víkingur R. (N1-völlurinn Hlíðarenda)
föstudagur 29. maí
19:15 FH-ÍA (Kaplakrikavöllur)
19:15 Fram-Breiðablik (Lambhagavöllurinn)
sunnudagur 31. maí
17:00 ÍBV-Keflavík (Hásteinsvöllur)
17:00 KR-KA (Meistaravellir)
17:00 Þór-Stjarnan (VÍS völlurinn)
19:15 Valur-Víkingur R. (N1-völlurinn Hlíðarenda)






Ég þakka kærlega fyrir mig.
Skýrsla og viðtöl væntanleg seinna í kvöld.