Leik lokið!
94. mín
Síðasta spyrnan
Ísabella með annað horn fyrir Val! Markmaðurinn Tinna Brá komin inn í teiginn en allt kom fyrir ekki! og dómarinn flautar leikinn af
93. mín
Ísabella tekur hornið fyrir Val, stórhættulegt en María Eva fleygir sér gjörsamlega á boltann
93. mín
Fáum við jöfnunarmark?
Valur á hér dauðafæri eftir dauðafæri
90. mín
a.m.k. 3 mínútur í uppbótartíma
90. mín
fyrirliðaprýtt lið hjá Þrótti þessa stundina
Rósey fyrrum fyrirliði FHL, Kristrún fyrrum fyrirliði Keflavíkur og svo auðvitað Álfa
90. mín
InnRósey Björgvinsdóttir
ÚtMist Funadóttir
Þrír fyrirliðar inn á vellinum hjá Þrótti
90. mín
Mist er sest niður og fær aðhlynningu, mér sýnist Þróttur ætla að skipta henni út. Haltrar útaf, vonandi ekkert alvarlegt að hrjá hana
87. mín
InnKolbrá Una Kristinsdóttir
ÚtMargrét Brynja Kristinsdóttir
87. mín
InnHrafnhildur Salka Pálmadóttir
ÚtArnfríður Auður Arnarsdóttir
87. mín
Kayla gerir helvíti vel! hleypur og hirðir boltann af Möllu og Kimmy og skilur þær alveg bara eftir í reyk, Þórdís reynir skotið en það er framhjá
84. mín
SHIIIIIII
Þarna munaði svooooo litlu! Ágústa með rosalegt skot sem sleikti samskeytin og út! á öllum öðrum dögum hefði þessi farið inn
84. mín
Þróttur reynir hvað þær geta að tefja, skiljanlega þegar þær eru að vinna manni færri
82. mín
Þórdís tekur hornið en ekkert kemur úr því
82. mín
María Eva með háan bolta inn í Tinna Brá er þar í baráttu við Kristúnu en nær að kýla hann aftur fyrir markið
81. mín
Margrét Brynja finnur Ísabellu en flaggið fer réttilega á loft
78. mín
InnMadison Jeanne Ditta
ÚtSigríður Theód. Guðmundsdóttir
78. mín
InnKristrún Ýr Holm
ÚtSæunn Björnsdóttir
78. mín
InnÁgústa María Valtýsdóttir
ÚtSóley Edda Ingadóttir
76. mín
Þróttur gerir vel að spila út úr pressunni en aðeins of föst sending og Þórdís nær ekki til boltans áður en hann fer útaf
72. mín
Sóley María í baráttu við Ísabellu og nær að koma henni úr jafnvægi og skotið framhjá
71. mín
Sæunn tekur horn fyrir Þrótt, berst til hennar aftur en Valur kemur þessu frá
70. mín
Mollee, Jelena og Sonja fara allar í sama boltann, Mollee missir hann og Jelena fellur við en boltinn skýst frá
68. mín
InnSonja Björg Sigurðardóttir
ÚtNadía Atladóttir
68. mín
Ágætis sókn hjá Þrótturum María Eva kemur boltanum á Þórdísi sem ætlar að reyna lauma honum inn í en Tinna Brá nær þessum þó
65. mín
InnÞórdís Elva Ágústsdóttir
ÚtUnnur Dóra Bergsdóttir
65. mín
InnKayla Marie Rollins
ÚtBjörg Gunnlaugsdóttir
64. mín
Margrét Brynja reynir fyrirgjöf af löngu færi sem Mollee grípur örugglega og Nadía síðan alltof sein hoppar í hana
59. mín
Það vita allir að sparka boltanum burt er spjald og algjör óþarfi þarna á þessu stað.... Það var bókstaflega ekkert að gerast
Rautt spjald
Alexia Marin Czerwien
Fær fyrst gult fyrir brotið á 50' og svo sparkar hún boltanum burt núna og fær seinna gula..... Agalegt.....Það vita allir að sparka boltanum burt er spjald og algjör óþarfi þarna á þessu stað.... Það var bókstaflega ekkert að gerast
57. mín
Björg fer full harkalega í Ásu, brot dæmt
52. mín
ÚFFF
Ísabella svoooo nálægt því en virðist renna og nær ekki skotinu og Ása og Margrét Brynja rétt missa svo af boltanum
51. mín
Gult spjald
Alexia Marin Czerwien
50. mín
Þetta er einhver algjör brandari hérna... Sóley Edda að taka innkastið í 3x skiptið, reyndi að taka það miklu nær en hún átti þetta er allt voða skrítið...
48. mín
Úfffff
Sigríður með fínast bolta fyrir þar er Björg alein og hefði átt að taka skotið sjálf en setur hann út á Sæunni sem þrumar honum rétt yfir markið
46. mín
Nadía sparkar seinni hálfleiknum aftur á stað fyrir Val
46. mín
InnÁsa Kristín Tryggvadóttir
ÚtSnæfríður Eva Eiríksdóttir
Valur gerir breytingu í hálfleik
45. mín
Hálfleikur
Enginn uppbótartími í dag!
Þróttur leiðir hér sanngjarnt 0-1, hafa verið hættulegri, sérstaklega þegar leið á leikinn.
Valur hefur þó alveg átt sénsa og eitt mark er ekki neitt í fótbolta!
Þróttur leiðir hér sanngjarnt 0-1, hafa verið hættulegri, sérstaklega þegar leið á leikinn.
Valur hefur þó alveg átt sénsa og eitt mark er ekki neitt í fótbolta!
45. mín
Björg með fínast bolta inn á teig en smá hik hjá Mist og Sigríði og boltinn rennur útaf
43. mín
Sæunn reynir skotið en Tinna ver vel
38. mín
Sæunn tekur horn fyrir Þrótt, finnur Jelenu en skallinn ekki nægilega fastur
37. mín
Unnur liggur hér eftir eftir samstuð en stendur upp án aðhlynningar
30. mín
Hún rennir sér svo á boltann framhjá Tinnu Brá og inn í autt markið
VÁ!
Unnur Dóra Bergsdóttir (stoðsending: Björg Gunnlaugsdóttir)
Frábært samspil hjá Unni Dóru og Björgu, sem endar með frábærri stungusendingu inn fyrir frá Björgu á Unni.Hún rennir sér svo á boltann framhjá Tinnu Brá og inn í autt markið
29. mín
Ísabella Sara tekur hornið, þvílíkur darraðardans í teignum þar sem nokkur skot fara í varnarmenn á alls konar stöðum en boltinn að endingu út fyrir endalínu
28. mín
Brotið á Ísabellu við miðjuhringinn, spyrna sem María Eva skallar aftur fyrir sig og horn sem Valur fær
27. mín
Arnfríður finnur Ísabellu í hlaup inn fyrir línu en flaggið fer á loft
26. mín
Mist með stórhættulega fyrirgjöf en engin nær til boltans
24. mín
Lillý fer harkalega í Unni Dóru sem virðist fá högg á höfuðið, Gunnar dómari leiksins heldur fljótur að stöðva leikinn samt og reka Unni svo útaf... Hún var ekki sátt með hann, vildi alls ekki láta stöðva leikinn né að þurfa að bíða í þessa mínútu
22. mín
Mist reynir fyrirgjöf en þær ná að skalla frá
21. mín
Sigríður aftur að koma sér í gott færi en Málfríður nær að trufla hana
20. mín
Björg komin á ferðina en Sóley Edda nær að pikka boltanum útaf
17. mín
Ekki galið!
María Eva setur boltann úti í teiginn þar sem Sigríður bíður og setur hann í fyrsta á lofti á markið en allt kom fyrir ekki... hefði verið geggjað mark
16. mín
Sigríður komin í fínasta færi eftir bolta frá Sóleyju en þær komast fyrir hana áður en hún nær almennilegu skoti á markið
14. mín
Væri til í að sjá tölfræði yfir hversu mikið boltinn hefur verið á svona 20m kafla á miðjunni, hann hefur varla farið út fyrir það svæði
12. mín
Fyrsta alvöru færi leiksins!
Margrét Brynja fær frábæra stungu sendingu yfir vörnin og er komin ein í gegn en Mollee gerir vel í að koma út og hirðir boltann af henni!
9. mín
Björg eltir boltann en Málfríður nær að skýla honum út fyrir endalínu
6. mín
Spennustigið hefur verið nokkuð hátt hérna til að byrja með og lítið um fína drætti, greinilegt að liðin ætla sér bæði að sækja sigur
1. mín
Ísabella Sara reynir fínustu fyrirgjöf en yfir allan pakkann
1. mín
Leikur hafinn
Unnur Dóra hefur leik fyrir Þróttara
Fyrir leik
Þetta fer að hefjast
Liðin ganga hér inn á völlinn, Þróttur í dökk bláu varabúningunum sínum (Svo leikmenn munu ekkert ruglast hér eins og í síðasta leik Vals)
Valur í sínum hefðbundnu búningum rauðar tryejur og sokkar og hvítar suttbuxur
Valur í sínum hefðbundnu búningum rauðar tryejur og sokkar og hvítar suttbuxur
Fyrir leik
Byrunarliðin klár!
Valur
Matthías þjálfari Vals heldur sama liði og í 0-1 sigrinum gegn Víkingi í síðustu umferð.
Þróttur
Jóhann Kristinn gerir 2x breytingar á sínu liði í 0-1 tapi gegn Stjörnunni í síðustu umferð. Inn í liðið koma Jelena Tinna og Björg en á bekkinn setjast Kayla Rollins og Þórdís Elva

Arnar Páll spáir í 7. umferðina
Fótboltaþjálfarinn Arnar Páll Garðarsson tekur að sér það verkefni að spá í leikina.
Valur 0 - 1 Þróttur R.
Býst við lokuðum leik þar sem Þróttur mun stjórna ferðinni án þess að gera of mikið við boltann. Þær ná að troða einu inn eftir fyrirgjöf frá Mist og Kayla stangar hann inn.

Þróttarar sitja í 4. sætinu með 9 stig, 4 stigum á eftir FH og ÍBV í 2.-3. sætinu og einu stigi á undan Stjörnunni og Grindavík/Njarðvík í 5.-6. sæti.
Þróttarar hafa átt mjög kaflaskiptar frammistöður í sumar og töpuðu að sumum fannst óvænt gegn Stjörnunni í síðustu umferð 0-1. Þeirra annað tap á heimavelli í sumar.
Fyrir þann leik voru þær á góðri siglingu eftir 3-2 sigur á Breiðablik í Mjólkurbikarnum og svo með sannfærandi 1-4 sigri gegn Víkingum.
Þær horfa því eflaust til þessa leiks sem leiksins til að rétta skútuna af og komast aftur á sigurbraut áður en landsleikjahléið skellur á!

Valskonur sitja fyrir þennan leik í 7. sæti með 7 stig. Einu stigi á eftir Stjörnunni og Grindavík/Njarðvík sem sitja í 5-6. sætinu og einu stigi á undan Víkingi í 8. sætinu.
Valskonur koma inn í þennan leik eftir góðan 0-1 sigur á Víkingi í síðustu umferð þar sem Nadía Atladóttir skoraði gegn sínum gömlu félögum.
Þær vilja eflaust byggja á þeirri frammistöðu en þær hafa ekki riðið feitum hesti það sem af er sumri. Þær sóttu sigur í fyrsta leik sínum gegn nýliðum Grindavíkur/Njarðvíkur en töpuðu svo fjórum leikjum í röð eða allt þar til þær náðu markalausu jafntefli gegn Fram og svo sigrinum gegn Víkingi.
Það mætti því segja að frammistaðan sé á uppleið og ég trúi ekki öðru en þær mæti á heimavöll sinn í dag og geri tilkall til stigana þriggja sem í boði eru!

7. umferðin
Þessi leikur er eini leikurinn sem spilaður er í kvöld en umferðin klárast svo með 4 leikjum á morgun.
7. umferðin lítur þá svona út:
Í dag:
19:15 Valur-Þróttur
Á morgun:
14:00 Grindavík/Njarðvík-Breiðablik
14:00 FH-Fram
14:00 Þór/KA-Víkingur R.
14:00 Stjarnan-ÍBV

7. umferðin lítur þá svona út:
Í dag:
19:15 Valur-Þróttur
Á morgun:
14:00 Grindavík/Njarðvík-Breiðablik
14:00 FH-Fram
14:00 Þór/KA-Víkingur R.
14:00 Stjarnan-ÍBV

Fyrir leik
Dómarateymi kvöldsins
Á flautunni í kvöld verður Gunnar Freyr Róbertsson og honum til halds og trausts verða Tryggvi Elías Hermannsson og Kristinn Freyr Victorsson aðstoðardómarar.
Fjórði dómari er Arnar Hólm Einarsson og eftirlitsmaður í kvöld er Ólafur Ingi Guðmundsson

Fjórði dómari er Arnar Hólm Einarsson og eftirlitsmaður í kvöld er Ólafur Ingi Guðmundsson

Fyrir leik
Besta deildin kallar!
Verið hjartanlega velkomin í beina textalýsingu þráðbeint frá N1-vellinum á Hlíðarenda þar sem Valur tekur á móti Þrótti í 7. umferð Bestu deildarinnar
Leikurinn hefst á slaginu 18:00!

Leikurinn hefst á slaginu 18:00!

Takk fyrir samfylgdina!
Skýrsla og viðtöl koma inn síðar í kvöld.