Bayern á eftir ungstirni Bournemouth - Konate eftirsóttur
Lengjudeild karla
Afturelding
LL 5
1
Fylkir
Besta karla
Valur
LL 1
5
Víkingur R.
Besta karla
ÍBV
LL 6
1
Keflavík
Besta karla
KR
LL 5
3
KA
Besta karla
Þór
LL 1
3
Stjarnan
Lengjudeild karla
Leiknir R.
LL 4
1
HK
Leiknir R.
4
1
HK
Birnir Breki Burknason '28 1-0
Djorde Vladisavljevic '41 2-0
Shkelzen Veseli '45 3-0
Brynjar Björn Gunnarsson '45
Shkelzen Veseli '60 4-0
4-1 Dominik Radic '62
31.05.2026  -  17:00
Leiknisvöllur
Lengjudeild karla
Dómari: Gunnar Freyr Róbertsson
Maður leiksins: Shkelzen Veseli (Leiknir R.)
Byrjunarlið:
1. Ólafur Íshólm Ólafsson (m)
4. Marko Veselinovic
5. Daði Bærings Halldórsson (f)
7. Birnir Breki Burknason ('65)
10. Shkelzen Veseli ('90)
15. Rúrik Gunnarsson ('83)
19. Axel Freyr Harðarson ('65)
22. Þorsteinn Emil Jónsson ('65)
32. Eiríkur Örn Beck
45. Djorde Vladisavljevic
55. Anton Fannar Kjartansson
- Meðalaldur 23 ár

Varamenn:
12. Jakub Górski (m)
8. Gísli Alexander Ágústsson ('83)
9. Jóhann Kanfory Tjörvason ('65)
11. Aron Skúli Brynjarsson ('90)
16. Viktor Andri Pétursson ('65)
20. Dagur Ingi Hammer Gunnarsson ('65)
33. Arnór Valur Ágústsson
- Meðalaldur 22 ár

Liðsstjórn:
Brynjar Björn Gunnarsson (Þ)
Arion Aron Veselaj (Leikgr.)
Halldór Fannar Júlíusson (Sjúkraþj.)
Gísli Friðrik Hauksson (Liðsstj.)
Nemanja Pjevic (AÞ)
Loftur Páll Eiríksson (Styrktarþj.)
Ari Þór Kristinsson (MÞ)

Gul spjöld:
Axel Freyr Harðarson ('11)
Þorsteinn Emil Jónsson ('30)
Brynjar Björn Gunnarsson ('31)
Eiríkur Örn Beck ('38)
Daði Bærings Halldórsson ('71)
Jóhann Kanfory Tjörvason ('84)

Rauð spjöld:
Brynjar Björn Gunnarsson ('45)
@fotboltinet Elíza Gígja Ómarsdóttir
Skýrslan: HK vinna ekki á útivelli
Hvað réði úrslitum?
Leiknismenn voru ofboðslega klínískir í dag og refsuðu gestunum fyrir mistökin sem þeir gerðu og leikurinn var svo gott sem búinn í hálfleik. HK komu betri út í seinni hálfleikinn en það var bara of seint og sigur Leiknis sanngjarn á endanum.
Bestu leikmenn
1. Shkelzen Veseli (Leiknir R.)
Þvílíkur leikmaður sem Shkelzen Veseli er. Oftar en ekki þar sem hann er besti maður vallarins þegar ég horfi á Leikni spila. Ofboðslega lunkinn með boltann með frábæran vinstri fót. Skorar tvö og á hokkí stoðsendingu með aukaspyrnunni sinni í marki númer 2.
2. Ólafur Íshólm Ólafsson (Leiknir R.)
Margir úr Leiknis liðinu sem hefðu getað verið í þessum dálki í dag en ég læt Ólaf Íshólm fá þetta. Ofboðslega traustur í rammanum og greinilegt að varnarlínunni líður vel með hann á bak við sig. Varði nokkrum sinnum vel og greip einnig vel inn í köflum. Fékk á sig eitt mark vissulega en við fyrstu sýn leit ekki út fyrir að hann gæti mikið gert í því. Marko og Djorde voru nálægt þessum dálki líka, þvílíkt hjarta sem þeir sýndu í hjarta varnarinnar.
Atvikið
Fyrsta markið sem Leiknismenn skora er alveg ofboðslega klaufalegt og setti í rauninni tóninn fyrir fyrri hálfleikinn. Ólafur Örn kominn langt út úr markinu hjá HK, missir boltann og Leiknismenn skora í opið markið. Fyrsta gjöfin af tveimur í fyrri hálfleik og kom Leikni á bragðið.
Hvað þýða úrslitin?
HK halda áfram að tapa á útivelli og eru búnir að fá á sig 11 mörk í þremur útileikjum á meðan Leiknismenn sigra sinn fyrsta heimaleik. HK eru með sín 12 stig í þriðja sæti á meðan Leiknir fara upp í níu stig og þar af leiðandi upp í sjöunda sæti.
Vondur dagur
Samvinna markvarðar og varnarmanna hjá HK fær þetta í dag. Það væri auðvelt að fleygja bara Ólafi Erni undir rútuna en mér fannst varnarmenn HK einnig eiga sök, þá allavega í marki þrjú sem var jólagjöf frá Kórnum til Breiðholtsins. Varnarmönnum líður ekki nóg og vel með Óla fyrir aftan sig sem virðist auka stress Óla á sama tíma
Dómarinn - 7
Mér fannst Gunnar Freyr bara fínn í dag. Var heldur spjaldaglaður á köflum en hann má eiga það að hann setti línu í upphafi leiks og hélt sig við hana. Beitti hagnaði oft vel sem er kostur sem ég kann að meta í fari dómara og lét menn ekki komast upp með neina vitleysu þegar kom að því að rífa kjaft.
Byrjunarlið:
1. Ólafur Örn Ásgeirsson (m)
2. Sigurður Gunnar Jónsson
6. Þorvaldur Smári Jónsson ('65)
9. Jóhann Þór Arnarsson
16. Svavar Örn Þórðarson
17. Dominik Radic
19. Atli Þór Gunnarsson ('80)
21. Ívar Örn Jónsson (f) ('65)
22. Haukur Leifur Eiríksson
24. Magnús Arnar Pétursson ('45)
29. Karl Ágúst Karlsson ('45)
- Meðalaldur 23 ár

Varamenn:
25. Andri Már Steinsson (m)
4. Aron Kristófer Lárusson ('65)
5. Þorsteinn Aron Antonsson
8. Arnþór Ari Atlason ('65)
26. Ívar Orri Gissurarson ('45)
28. Tumi Þorvarsson ('45)
45. Alexander Örn Guðmundsson ('80)
- Meðalaldur 23 ár

Liðsstjórn:
Gunnar Heiðar Þorvaldsson (Þ)
Gunnþór Hermannsson (Liðsstj.)
Þjóðólfur Gunnarsson (Liðsstj.)
Guðný Björk Halldórsdóttir (Sjúkraþj.)
Sigurður Már Birnisson (Styrktarþj.)
Arnar Freyr Smárason (AÞ)
Sandor Matus (MÞ)

Gul spjöld:
Atli Þór Gunnarsson ('39)
Þorvaldur Smári Jónsson ('52)
Aron Kristófer Lárusson ('81)

Rauð spjöld: