Bayern á eftir ungstirni Bournemouth - Konate eftirsóttur
Lengjudeild karla
Afturelding
LL 5
1
Fylkir
Besta karla
Valur
LL 1
5
Víkingur R.
Besta karla
ÍBV
LL 6
1
Keflavík
Besta karla
KR
LL 5
3
KA
Besta karla
Þór
LL 1
3
Stjarnan
Lengjudeild karla
Leiknir R.
LL 4
1
HK
KR
5
3
KA
Aron Sigurðarson '5 1-0
Eiður Gauti Sæbjörnsson '17 2-0
Luke Rae '45 3-0
3-1 Jakob Snær Árnason '63
Aron Sigurðarson '74 4-1
4-2 Birgir Baldvinsson '82
4-3 Markús Máni Pétursson '83
Galdur Guðmundsson '91 5-3
31.05.2026  -  17:00
Meistaravellir
Besta karla
Dómari: Arnar Þór Stefánsson
Áhorfendur: 1577
Maður leiksins: Luke Rae (KR)
Byrjunarlið:
12. Halldór Snær Georgsson (m)
4. Michael Akoto ('66)
7. Finnur Tómas Pálmason
9. Eiður Gauti Sæbjörnsson ('78)
11. Aron Sigurðarson (f)
17. Luke Rae
19. Amin Cosic ('78)
21. Gabríel Hrannar Eyjólfsson
23. Arnór Ingvi Traustason ('18)
26. Hrafn Tómasson
30. Sigurður Breki Kárason ('66)
- Meðalaldur 25 ár

Varamenn:
1. Sigurpáll Sören Ingólfsson (m)
5. Birgir Steinn Styrmisson ('66)
8. Stefán Árni Geirsson ('66)
10. Guðmundur Andri Tryggvason ('78)
15. Gyrðir Hrafn Guðbrandsson
18. Jón Ernir Ragnarsson
20. Tristan Gauti Línberg Arnórsson
45. Galdur Guðmundsson ('78)
77. Orri Hrafn Kjartansson ('18)
- Meðalaldur 22 ár

Liðsstjórn:
Óskar Hrafn Þorvaldsson (Þ)
Hilmar Árni Halldórsson (AÞ)
Guðmundur Óskar Pálsson (Leikgr.)
Magnus Börheim (Sjúkraþj.)
Björn Valdimarsson (Forráðam.)
Lúðvík Júlíus Jónsson (Liðsstj.)
Guðjón Örn Ingólfsson (Styrktarþj.)
Jamie Paul Brassington (MÞ)

Gul spjöld:
Finnur Tómas Pálmason ('61)
Birgir Steinn Styrmisson ('78)

Rauð spjöld:
@haraldur_orn Haraldur Örn Haraldsson
Skýrslan: Sanngjarn sigur en dómarinn reyndist örlagaríkur
Hvað réði úrslitum?
Mistök dómarans höfðu mikil áhrif á úrslitum en ég kem að því nánar í dómaradálkinum hér fyrir neðan. KR-ingar voru heilt yfir betra liðið og þá sérstaklega í fyrri hálfleik. Þá einfaldlega léku þeir sér að KA-mönnum. Gestirnir sýndu svo flottan karakter í að koma til baka í seinni og gera þetta spennandi en það reyndist ekki nóg.
Bestu leikmenn
1. Luke Rae (KR)
Hann er svo fljótur og svo iðinn enski kantmaðurinn. Varnarmenn og markmenn þurfa alltaf að vera að passa sig að hann sé ekki að koma á þig að stela boltanum eða að sleppa í gegn. Frábær í dag og skoraði flottasta mark leiksins, sem er ágætt því þau voru frekar flott í þessum leik. Svo var hann einnig með stoðsendingu
2. Aron Sigurðsson (KR)
Tvö mörk og býr til færið sem endar í markinu hans Luke Rae. Ekkert hægt að segja um þennan leikmann sem ekki hefur verið sagt áður, einfaldlega frábær. Hins vegar ef KA hefði jafnað leikinn hefði þessi dálkur verið tileinkaður Markúsi Mána Péturssyni sem var frábær í seinni hálfleik. Hann fær þó allavega þessa línu frá mér.
Atvikið
Það var heldur betur nóg af atvikum en þriðja mark KA manna hefur líkast til hækkað púlsinn hjá flestum hvað mest. Markið kom einni mínútu eftir að KA minnkaði muninn í 4-2 og á einu augabragði hafði þetta verið leikur sem var rosalega öruggur sigur KR-inga í að verða frekar jafn.
Hvað þýða úrslitin?
KR-ingarnir eru búnir að spila 10 leiki í deildinni og eru með 25 stig. Sitja í öðru sæti núna þegar við förum inn í landsleikjahlé. KA menn hins vegar eru enn bara með 10 stig en þó í 9 leikjum. Þeir eru í 8. sæti eins og er.
Vondur dagur
Fyrri hálfleikurinn hjá KA var algjört. Þar er erfitt að velja bara einn, þeir verða eiginlega bara að deila þessu allir saman, leikmenn og þjálfarar. KR-ingar fengu endalaust af plássi til að athafna sig og það var nákvæmlega ekki neitt að frétta sóknarlega þegar KA vann boltann.
Dómarinn - 3
Arnar Þór Stefánsson átti því miður skelfilegan dag með flautuna. Stóru atvikin voru tvö og þau voru bæði röng hjá honum. Fyrra atvikið er þegar Finnur Tómas fær gult fyrir að brjóta á Oliver sem er að sleppa í gegn. Í fyrsta lagi var þetta einfaldlega ekki brot, þetta var bara stórkostleg tækling. En fyrst hann dæmir þá er hlægilegt að hann gefi honum ekki rautt því Oliver hefði verið sloppinn einn gegn markmanni. Seinna atvikið er í stöðunni 4-3 þegar KA átti að fá víti, brotið á Jakobi Snæ inn í teig. Þá var ýmislegt annað sem mér fannst skrítið í dómgæslunni. Sérstaklega hvað KR-ingar komust upp með að tefja framkvæmdir á aukaspyrnum hjá KA með því að standa fyrir spyrnumanninum. Arnar gerði ekkert í þessu og Hallgrímur þjálfari KA talaði um þetta í viðtali eftir leik.
Byrjunarlið:
13. Steinþór Már Auðunsson (m)
2. Birgir Baldvinsson ('82)
3. Kári Gautason ('46)
8. Jeppe Pedersen
9. Sveinn Margeir Hauksson ('76)
10. Hallgrímur Mar Steingrímsson
15. Oliver Heiðarsson ('66)
21. Mikael Breki Þórðarson ('66)
23. Markús Máni Pétursson
28. Hans Viktor Guðmundsson (f)
30. Guðjón Ernir Hrafnkelsson
- Meðalaldur 26 ár

Varamenn:
99. Jóhann Mikael Ingólfsson (m)
7. Jóan Símun Edmundsson
14. Danijel Dejan Djuric ('76)
16. Jakob Héðinn Róbertsson ('66)
19. Breki Hólm Baldursson ('82)
20. Diego Montiel
26. Þórir Hrafn Ellertsson
29. Jakob Snær Árnason ('46)
44. Valdimar Logi Sævarsson ('66)
- Meðalaldur 24 ár

Liðsstjórn:
Hallgrímur Jónasson (Þ)
Egill Daði Angantýsson (AÞ)
Nicklas Cleemann Rulle (MÞ)
Hrannar Björn Steingrímsson (Leikgr.)
Halldór Hermann Jónsson (Sjúkraþj.)
Atli Sveinn Þórarinsson (AÞ)
Tryggvi Björnsson (Liðsstj.)

Gul spjöld:
Kári Gautason ('34)
Hans Viktor Guðmundsson ('43)

Rauð spjöld: