Fotbolti.net
@fotboltinetArngrímur Alex Ísberg Birgisson
Arngrímur Alex Ísberg Birgisson
2. deild karla
BIRTU völlurinn
Haukar
Haukar
2 - 2
Kormákur/Hvöt
Kormákur/Hvöt
0 - 110' Pere Belmonte0 - 233' Guzman Díaz ScaroneJón Arnar Barðdal 78'1 - 2Daði Snær Ingason (víti) 82'2 - 2
Dómari: Ronnarong Wongmahadthai

SKÝRSLAN: Sýning á Ásvöllum

Hvað réði úrslitum?

Haukar voru með betri færi í dag en náðu ekki að nýta sér þau, það voru nokkur dauðafæri og góð færi í dag. Samt mörkin sem Kormákur/Hvöt voru ótrúleg og ég mæli með því að fara inn á Livey og tjekka á þeim.

Bestu leikmenn

1. Jón Arnar Barðdal

Skoraði flott mark og nældi í víti. Flottur í seinni hálfleik, gerði lítið í þeim fyrri.

2. Pere Belmonte

Dáðasti sonur Blönduós og Hvammstanga. Hann er bara hér út af markinu sem hann skoraði, ótrúlegt chip. Sérstakt shout á Uros Djuric sem varði allt og hélt Kormáki/Hvöt í leiknum.

Atvikið

Markið sem jón Arnar skoraði kickstartaði þetta comeback og eftir það þá byrjuðu Haukar að herja á teig andstæðinganna.

Hvað þýða úrslitin?

Haukar eru á toppnum með 16 stig, Kormákur/Hvöt eru í fimmta sæti með 11 stig.

Vondur dagur

Sigurður Hrannar fékk nokkur góð færi sem hann hefði átt að skora, annars var enginn annar sérstaklega lélegur í dag.

Dómarinn - 7

Hann var með góða línu í dag, þótt að leikmenn voru að kvarta mikið í dag þá var tríóið bara fínt.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.