Vináttulandsleikur
Argentína
01:08
0
0
0
Ísland
Undankeppni HM kvenna
Ísland
LL
1
6
6
Spánn

Argentína
0
0
Ísland

10.06.2026 - 01:08
Auburn, Alabama
Vináttulandsleikur
Dómari: Rosendo Mendoza
Auburn, Alabama
Vináttulandsleikur
Dómari: Rosendo Mendoza
Byrjunarlið:
12. Gerónimo Rulli (m)
6. Lisandro Martínez
8. Valentín Barco
11. Giovani Lo Celso
14. Exequiel Palacios
17. Giuliano Simeone
18. Nico Paz
19. Nicolas Otamendi
21. José López
25. Facundo Medina
28. Agustín Giay
Varamenn:
1. Juan Musso (m)
27. Santiago Beltrán (m)
3. Nicolas Taglafico
7. Rodrigo De Paul
10. Lionel Messi (f)
11. Thiago Almada
13. Cristian Romero
15. Nicolás González
20. Alexis Mac Allister
22. Lautaro Martínez
24. Enzo Fernández
29. Nicolás Capaldo
30. Ignacio Ovando
31. Simón Escobar
32. Tomás Aranda
34. Joaquín Freitas
Liðsstjórn:
Lionel Scaloni (Þ)
Gul spjöld:
Rauð spjöld:
Fyrir leik
Örninn hefur lokið flugi!
Þetta var magnað. Örninn sveimaði einn hring í kringum völlinn við mikil fagnaðarlæti áður en hann lenti svo inn í miðjuhringnum þar sem þjálfari hans tók á móti honum og labbaði með af hann af velli. Þetta fer í highlight pakkann!
Fyrir leik
Þjóðsöngur
Það er ekki spilaður þjóðsöngur Íslands eða Argentínu, í það minnsta ekki enn. Heldur hljómar hér þjóðsöngur Bandaríkjana hástöfum ásamt smá flugeldasýningu.
Fyrir leik
Ameríkaninn kann að halda uppi stemningunni
Það hleypur á milli einstaklingur með hljóðnema að spjalla við áhorfendur í stúkunni og reynir að trekkja upp alla stúkuna til að öskra hátt við lok hverjar setningar. Allt að verða tilbúið fyrir að fylgjast með erninum fljúga hringinn.
First time for everything. While holding a press conference discussing the logistics of hosting the Argentina-Iceland World Cup friendly soccer match, Auburn was doing practice eagles flights.
— Alex Husting (@AlexHusting) June 5, 2026
A pre-game eagle flight is planned for the game Tuesday. pic.twitter.com/fQQidzbsfJ
Fyrir leik
Eins og á útivelli
Það má nánast heyra saumnál detta þegar íslenska liðið hleypur síðar inn á völlinn til upphitunar. Enda má nær bara sjá argentískar treyjur þegar horft er yfir áhorfendahópinn á þessum 88 þúsund manna velli.
Fyrir leik
Aðalnúmerið
Lið Argentínu gengur inn á völlinn til upphitunnar fyrir leik og það brjótast út mikill fagnaðarlæti í stúkunni þegar Messi gengur út á völlin
Fyrir leik
Byrjunarlið Argentínu
???? ARGENTINA STARTING XI ????????
— Barca Xtra (@Barcaxtr) June 10, 2026
Messi starts from the bench tonight vs Iceland.
Scaloni managing him carefully, minutes controlled, no risks taken with the ????
One question worth asking. When he comes on, Iceland are you ready? ???????????? pic.twitter.com/HYsqOtj7Db
Fyrir leik
Mættir á grasið
Íslenska liðið er komið út á völlinn í þykkum peysum að sparka bolta á milli og virða fyrir sér rigninguna. Í bland við liðið eru einnig starfsmenn Jordan-Hare vallarins með laufblásara að þurka grasið og reyna að blása vatnið í burt. Arnar Gunnlaugsson og hans menn fá í það minnnsta rennblautt gras til að spila á í kvöld.
Fyrir leik
Úrhellisrigning í Auburn
Það hefur helliringt hér í Auburn fyrir leik ásamt dágóðu þrumuveðri og gefnar hafa verið út flóðviðvaranir þar sem vatnsvextir geta valdið því að ár flæði yfir bakka sína. Vanir aðilar hér á leikvellinum segja þó að áhyggjur yfir leiknum sjálfum séu óþarfar. Allir eru vanir álíka veðri í Alabama og Jordan-Hare völlurinn er sérstaklega undirbúinn fyrir slíkt með drenlögnum allan hringinn þannig að allur vökvi á greiða leið út. Vandræðin væru helst hjá áhorfendum þar sem öll sæti og bekkir eru gegnblautir núna áður en áhorfendur streyma inn á völlinn í sín sæti. Rigningin á að hætta fyrir upphafsflautið samkvæmt veðurspám.
Fyrir leik
Fyrri viðureignir
Ísland og Argentína hafa bara mæst einu sinni áður, á Heimsmeistaramótinu í Rússlandi árið 2018. Þeim leik lauk með 1-1 jafntefli þar sem Alfreð Finnbogason skoraði jöfnunarmark Íslands áður en að Hannes Þór Halldórsson varði vítaspyrnu frá Messi, sælla minninga.
Fyrir leik
Þá ættirðu að gera eitthvað annað
„Ég held að þetta verði dýrmæt reynsla. Kjarninn af leikmönnunum okkar er mjög ungur og við erum að þróa nýtt lið með nýjan leikstíl. Síðastliðið ár höfum við verið að mæta stórum liðum eins og Frakklandi og við vorum að spila við Japan í síðasta leik. Núna erum við að mæta heimsmeisturunum. Við erum búnir að eiga yndislegan tíma í Auburn. Ég held að allir séu spenntir fyrir leiknum. Ef þú [sem knattspyrnumaður] ert ekki spenntur fyrir því að mæta heimsmeisturunum þá ættirðu að gera eitthvað annað í lífinu,“ sagði Arnar Gunnlaugsson á blaðamannafundi Íslands fyrir leikinn.

09.06.2026 07:30
Allir leikmenn Íslands klárir í bátana - „Þá ættirðu að gera eitthvað annað í lífinu“
09.06.2026 07:00
Arnar telur æfingabúðirnar í Auburn frábæran undirbúning fyrir næstu stórmót

Fyrir leik
Velkomin til Alabama!
Það er eftirvænting í Auburn í Alabama í Bandaríkjunum þar sem Ísland og Argentína mætast í vináttulandsleik sem hefst að íslenskum tíma klukkan 01:00.
Í Auburn eru menn mjög stoltir af því að þetta verði fyrsti knattspyrnuleikurinn (soccer) á Jordan-Hare leikvangnum, sem er heimavöllur Auburn Tigers háskólaliðsins í amerískum fótbolta. Hann tekur 88 þúsund manns í sæti og verður uppselt á leikinn, eða allt að því.
Heimsmeistarar Argentínu fá skiljanlega stærstan hluta athyglinnar enda síðasti leikur liðsins fyrir HM og búist við því að Lionel Messi spili.

08.06.2026 15:40
Örn mun sveima um leikvanginn þegar Ísland mætir Argentínu
Byrjunarlið:
1. Elías Rafn Ólafsson (m)
2. Logi Tómasson
3. Daníel Leó Grétarsson
4. Guðlaugur Victor Pálsson
7. Hákon Arnar Haraldsson
8. Ísak Bergmann Jóhannesson
9. Orri Steinn Óskarsson (f)
11. Albert Guðmundsson
14. Andri Fannar Baldursson
19. Mikael Egill Ellertsson
23. Hörður Björgvin Magnússon
Varamenn:
12. Hákon Rafn Valdimarsson (m)
13. Anton Ari Einarsson (m)
5. Gísli Gottskálk Þórðarson
6. Hjörtur Hermannsson
10. Gylfi Þór Sigurðsson
15. Dagur Dan Þórhallsson
16. Kristall Máni Ingason
17. Aron Einar Gunnarsson
18. Jón Dagur Þorsteinsson
20. Kristian Hlynsson
21. Arnór Sigurðsson
21. Daníel Tristan Guðjohnsen
Liðsstjórn:
Arnar Gunnlaugsson (Þ)
Davíð Snorri Jónasson
Gul spjöld:
Rauð spjöld: