Leik lokið!
Fyrsti sigur FH í Bestu deildinni þetta tímabilið!
FH situr enn á botninum samt sem áður en eru núna þremur stigum frá öruggu sæti. Keflavík er áfram í sjöunda sæti en hafa nú tapað tveimur leikjum í röð.
Viðtöl og skýrsla koma inn síðar í kvöld.


94. mín
FH skallar frá. Svo kemur annar bolti inn á teiginn sem fer aftur fyrir markið.
94. mín
Keflavík fær horn. Síðasti séns og Ásgeir Orri er kominn fram.
93. mín
Keflavík minnkar muninn
Stefan Alexander Ljubicic
Þetta er nú varla meira en sárabótarmark, eða hvað? Góð sókn hjá Keflvíkingum. Boltinn berst til hægri á Axel Ingi sem á góða fyrirgjöf sem fer yfir á fjærstöngina á Stefan sem getur ekki annað en skilað boltanum í netið.92. mín

Úr stúkunni


90. mín
Þremur mínútum bætt við
89. mín
Þetta er að fjara út og FH er að landa sínum fyrsta sigri í Bestu deildinni sumarið 2026.
84. mín
Eftir hornspyrnuna á Alpha Conteh skot sem fer fram hjá markinu. Ágætis tilraun svo sem.
83. mín
Keflavík fær horn!
82. mín
InnViktor Árni Traustason
ÚtErnir Bjarnason
Bróðir Arnórs Ingva spilar hér sinn fyrsta leik í Bestu deildinni.
80. mín
Það er kominn frekar mikill pirringur í Keflvíkinga. FH-ingar í stúkunni hvetja sitt lið til dáða.
78. mín
Kjartan Kári með góða sendingu í svæðið á Sverri Pál sem fer á ógnarhraða upp völlinn en Davíð Helgi er líka fljótur og bjargar þessu fyrir Keflvíkinga.
77. mín
Gult spjald
Adolf Daði Birgisson
Truflar það að Keflavík geti tekið aukaspyrnu.76. mín
Keflavík fær aukaspyrnu með fyrirgjafarmöguleika en heimamenn eru klaufar og brjóta af sér þegar spyrnan er tekin.
73. mín
FH gert þetta mjög fagmannlega í seinni hálfleiknum. Spurning hvort þessa þrefalda breyting muni kveikja neista hjá heimamönnum.
69. mín
InnMarin Mudrazija
ÚtEiður Orri Ragnarsson
69. mín
InnDagur Ingi Valsson
ÚtÞorlákur Breki Þ. Baxter
69. mín
InnAxel Ingi Jóhannesson
ÚtÍgnacio Heras Anglada
68. mín
Frábært færi!
Adolf Daði leggur boltann út í teiginn á Kristján Flóka sem er í mjög góðu færi en hann hittir boltann ekki vel og setur hann fram hjá markinu.
67. mín
Langur bolti upp á Eið Orra en Jökull kemur út úr markinu og handsamar hann.
67. mín
InnSverrir Páll Hjaltested
ÚtÚlfur Ágúst Björnsson
67. mín
InnBirkir Valur Jónsson
ÚtKristján Snær Frostason
65. mín
Twana byrjaður að telja niður þegar Jökull tekur markspyrnu. Þetta eru nýju reglurnar sem maður hefur tekið vel eftir á HM.
65. mín
Eiður Orri á skot eftir hornspyrnuna en það fer yfir markið.
64. mín
Samskeytin!
Alghoul tekur aukaspyrnu og boltinn smellur í samskeytunum! Geggjuð spyrna í markmannshornið. Keflavík fær svo horn.
63. mín
Keflavík fær aukaspyrnu á ágætis stað fyrir skotfæri.
63. mín
Það er svona frekar rólegt yfir þessu. Keflvíkingar verða að fara að hækka tempóið eitthvað.
61. mín
Kristján Snær næstum því búinn að prjóna sig í gegn en missir boltann svo alltof langt frá sér.
59. mín
Jökull stekkur upp og grípur hornið vel.
59. mín
Keflavík hær horn. Ná þeir að gera eitthvað úr þessu?
57. mín

Myndir úr seinni hálfleiknum




54. mín
Hornspyrna sem Keflavík á en Úlfur Ágúst skallar frá. Svo kemur boltinn aftur inn á teiginn en Jökull kemur út og grípur þægilega.
53. mín
Vel varið!
FH-ingar eru fljótir að fara upp hinum megin og Kristján Flóki í ágætis færi en nær ekki miklum krafti í skotið. Samt sem áður ágætlega varið hjá Ásgeiri Orra í markinu.
52. mín
Davíð Breki núna með skot sem FH-ingar henda sér fyrir.
52. mín
Breki Baxter í skotfæri á teignum en skotið fer af varnarmanni og langt fram hjá.
48. mín
DAUÐAFÆRI!
Stefan Ljubicic í algjöru dauðafæri en hittir bara ekki boltann! Muhamed Alghoul með mjög góða undirbúning og þarna átti Stefan að minnka muninn.


46. mín
Síðari hálfleikur er hafinn!
Engar skiptingar, áfram gakk.
45. mín
Keflavík fær horn rétt áður en fyrri hálfleikurinn klárast. Það skapaðist smá hætta en FH-ingar henda sér fyrir allt. Það eru gestirnir úr Hafnarfirði sem leiða í hálfleik og það er bara frekar sanngjarnt.




45. mín
Tveimur mínútum bætt við fyrri hálfleikinn
43. mín
Næstum því 0-3!
Úlfur Ágúst næstum því búinn að gera þriðja markið! FH-ingar hafa tekið öll völd á vellinum eftir því sem hefur liðið á fyrri hálfleikinn!
41. mín

VÁÁÁÁÁÁÁÁÁÁÁÁ
Kjartan Kári Halldórsson
Þetta var mark í hæsta gæðaflokki! Úlfur Ágúst sendir boltann til vinstri á Kjartan Kára sem tekur við honum og keyrir í átt að Nacho sem bakkar. Kjartan Kári lætur ekki bjóða sér það og hamrar boltanum í markið! FH-ingar komnir í þægilega stöðu hérna.



40. mín
Gult spjald
Muhamed Alghoul
Var of nálægt þegar aukaspyrnan var tekin. Það rignir gulum spjöldum!40. mín

Gult spjald
Marin Brigic
Fer af krafti í bakið á Úlfi.


38. mín

FH-ingar leiða



38. mín
Gult spjald
Stefan Alexander Ljubicic
Líklega fyrir tuð.
37. mín
Eiður Orri lætur vaða úr nánast ómögulegri stöðu. Hann hittir boltann vel en kemur honum ekki á markið.
36. mín
Eiður Orri með geggjaðan sprett og var að komast í hættulega stöðu en FH-ingar gera vel að stoppa hann.
35. mín
Kristján Flóki með 'volley' fyrir utan teig en setur boltann svolítið hátt yfir markið. Hitti hann ekki alveg nægilega vel þarna.
33. mín
Tómas Orri með hættulega fyrirgjöf og hann finnur Ísak Óla í teignum, en skalli hans fer fram hjá markinu.
31. mín
Ásgeir Páll með fyrirgjöf sem fer aftur fyrir endamörk.
27. mín
FH að hóta öðru marki!
Adolf Daði með fyrirgjöf frá hægri og Úlfur Ágúst kemur á ferðinni, nær ágætis skalla en yfir markið.
26. mín

MARK!!!!
Adolf Daði Birgisson
FH-ingar taka hér forystuna! Ásgeir Orri kýlir boltann burt beint á Kristján Snæ sem á hörkuskot sem fer af varnarmanni og berst til Adolfs Daða. Hann er tilbúinn og setur boltann í markið. Sterkt hjá gestunum!




25. mín
FH-ingar eru að sækja í sig veðrið og fá hér hornspyrnu.
24. mín
Tómas Orri með ágætis tilraun en yfir fer boltinn! Þetta skot leit ágætlega út.
21. mín
Fín tilraun!
Alpha Conteh fer vel með boltann og á svo hörkuskot sem Jökull ver!


20. mín
Adolf Daði fær boltann úti hægra megin, tekur skæri og reynir að þræða Kristján Flóka í gegn en sendingin er of föst.


19. mín
Keflavík verið talsvert meira með boltann enn sem komið er og verið líklegri aðilinn.
18. mín
Það er erfitt að sjá hvort Stefan hafi verið rangstæður þarna, mjög tæpt var það. Eiður Orri var klaufi að missa af boltanum áður en hann fer til Stefans því hann var ekki rangstæður.
17. mín
Gult spjald
Ísak Óli Ólafsson
16. mín
Stefan Ljubicic, sóknarmaður Keflvíkinga, ekki sáttur við þennan dóm. ,,Þú ert seinn," segir hann ítrekað við aðstoðardómarann.





15. mín
Rangstaða!
Keflvíkingar koma boltanum yfir línuna en rangstaða dæmd. Alpha Conteh bjó þarna til hættulegt færi.
14. mín
Keflvíkingar við það að koma sér í hættulega stöðu en FH-ingar bjarga sér fyrir horn.
11. mín
Úlfur Ágúst í ágætis skotfæri fyrir utan teig og lætur vaða, en þó skotið sé fast þá er það beint á Ásgeir Orra.
10. mín

Ekkert gefið eftir!


9. mín
Færi!
Alpha Conteh gerir vel, kominn inn á teiginn og nær að pota boltanum áfram á Stefan Ljubicic en Jökull gerir frábærlega og er aðeins á undan í boltann!
6. mín

Þjálfararnir galvaskir


5. mín
Það var mínútuþögn fyrir leikinn

5. mín
InnAdolf Daði Birgisson
ÚtArnór Borg Guðjohnsen

4. mín
Arnór Borg heldur um mjöðmina og mér sýnist allt benda til þess að hann hafi lokið leik.
3. mín
Arnór Borg fær hér högg í upphafi leiks og þarf aðstoð sjúkraþjálfara. Lítur ekkert sérstaklega vel út fyrir hann.
2. mín
Minni á að þeir einstaklingar sem eru orðnir áskrifendur geta nálgast ítarlega tölfræði úr leiknum frá Opta, séð hvernig liðin eru að stilla upp og sitthvað fleira.
Skráðu þig í prufuviku þér að kostnaðarlausu hér
1. mín
Þá er leikurinn farinn af stað! FH byrjar með boltann.
Fyrir leik
Keflvíkingar með sorgarbönd
Leikmenn Keflavíkur spila með sorgarbönd þar sem Þorsteinn Ólafsson, fyrrum markvörður félagsins, lést á dögunum. Hann var 75 ára gamall þegar hann lést. Þorsteinn var lykilmaður í gullaldartímabili Keflavíkur sem vann þrjá Íslandsmeistaratitla á fimm árum.
Fyrir leik
Stjörnur í stúkunni
Það verður stemning í stúkunni og þar er stjörnum prýtt. Á meðal þeirra sem eru mættir á völlinn eru landsliðsmaðurinn Ísak Bergmann Jóhannesson og Ólafur Jóhannesson, fyrrum þjálfari FH. Ísak er auðvitað sonur Jóa Kalla sem núna þjálfar FH-inga.


Fyrir leik
Ítarlegri tölfræði með nýrri áskriftarleið Fótbolti.net
Fyrir leik
Twana með flautuna
Twana Khalid Ahmed er dómari leiksins. Aðstoðarmenn hans eru Antoníus Bjarki Halldórsson og Egill Guðvarður Guðlaugsson. Fjórði dómari er Elías Ingi Árnason og eftirlitsmaður er Einar Örn Daníelsson.


Fyrir leik
Er Ásgeir Steinn að byrja eða ekki?
Það er athyglisvert að á Instagram hjá FH er Ásgeir Steinn Steinarsson skráður í byrjunarliðið en hann er ekki á skýrslunni hjá KSÍ. Miðað við það sem Jóhannes Karl Guðjónsson, þjálfari FH, sagði við Sýn Sport fyrir leik er hann að tefla fram sama byrjunarliðinu tvo leiki í röð. Þetta hljóta því að vera mistök hjá samfélagsmiðladeild FH-inga.
Fyrir leik
Það eru stórkostlegar aðstæður hér í dag. Sól, heiðskýrt og um 17 stiga hiti. Þetta gerist ekki betra!
Fyrir leik
Byrjunarlið FH
FH mætir með nákvæmlega sama lið og í 0-1 tapinu gegn ÍA í síðustu umferð. Ísak Óli Ólafsson er með fyrirliðabandið en hann er að mæta uppeldisfélagi sínu í dag.
1. Jökull Andrésson (m)
3. Kristján Snær Frostason
6. Grétar Snær Gunnarsson
7. Kjartan Kári Halldórsson
9. Kristján Flóki Finnbogason
19. Aron Jónsson
22. Ísak Óli Ólafsson (f)
23. Tómas Orri Róbertsson
33. Úlfur Ágúst Björnsson
37. Baldur Kári Helgason
90. Arnór Borg Guðjohnsen


Fyrir leik
Byrjunarlið Keflavíkur
Frá tapinu gegn ÍBV gerir Haraldur Freyr Guðmundsson tvær breytingar. Ernir Bjarnason og Alpha Conteh koma inn í byrjunarliðið fyrir Axel Inga Jóhannesson og Dag Inga Valsson.
1. Ásgeir Orri Magnússon (m)
4. Nacho Heras (f)
5. Davíð Helgi Aronsson
8. Þorlákur Breki Þ. Baxter
10. Stefan Ljubicic
11. Muhamed Alghoul
18. Ernir Bjarnason
20. Marin Brigic
21. Alpha Conteh
22. Ásgeir Páll Magnússon
23. Eiður Orri Ragnarsson


Fyrir leik
Birkir Már spáir í spilin
Við fengum fyrrum landsliðsmanninn Birki Má Sævarsson til að spá í umferðina. Birkir er enn í fullu fjöri með Aftureldingu í Lengjudeildinni og átti stórleik gegn Stjörnunni í Mjólkurbikarnum núna á dögunum.
,,Keflvíkingar eru búnir að vera flottir í byrjun móts en fengu alvöru spark í rassinn síðast. Þeir mæta ákveðnir til leiks og komast í 2-0 í fyrri hálfleik. FH-ingar minnka síðan muninn áður en Keflvíkingar klára leikinn í uppbótartíma. Ætli minn maður Breki Baxter skori ekki tvö fyrir Kef og gamla kempan Sindri Snær eitt. Kjartan Kári skorar beint úr auka.spyrnu."


Fyrir leik
FH bíður enn eftir fyrsta sigrinum
Þetta hefur verið afskaplega erfitt sumar fyrir FH-inga sem eru á ákveðinni vegferð. Þeir ákváðu að yngja mikið upp í liðinu sínu fyrir tímabilið og Jóhannes Karl Guðjónsson tók við stjórnartaumunum. FH hefur gert tvö jafntefli en tapað hinum sjö leikjunum sínum. Þeir töpuðu líka 5-0 gegn Lengjudeildarliði Fylkis í Mjólkurbikarnum. Síðasti leikur FH í deildinni var 0-1 tapleikur gegn ÍA á heimavelli.


Fyrir leik
Hvernig svarar Keflavík?
Liðin eru að koma inn í þennan leik eftir tveggja vikna pásu. Það verður mjög áhugavert að sjá hvernig Keflavík kemur inn í þennan leik en þeir voru á góðu róli fyrir leik sinn gegn ÍBV í Vestmannaeyjum í síðustu umferð. Þar voru þeir hins vegar rassskelltir, 6-1, og verður mjög fróðlegt að sjá hvernig þeir svara því í dag.


Fyrir leik
Staðan?
Það verður flautað til leiks klukkan 17:00 en þetta er leikur í tíundu umferð Bestu deildarinnar.
Nýliðar Keflavíkur hafa komið á óvart í sumar og sitja í sjöunda sæti deildarinnar með ellefu stig úr níu leikjum. Á meðan hefur FH átt hörmulegt sumar og situr á botni deildarinnar með aðeins tvö stig.


Fyrir leik
Góðan daginn!
Verið velkomnir kæru lesendur í beina textalýsingu frá leik Keflavíkur og FH í Bestu deild karla! Hér munum við fylgjast með öllu því sem gerist í leiknum.








