SKÝRSLAN: Eyjamenn heitir og komnir upp úr fallsæti
Hvað réði úrslitum?
Þórsarar fengu góð færi í upphafi leiks en Eyjamenn komust síðan í gang og gerðu svo gott sem út um leikinn með þriðja markinu eftir 24 mínútna leik.
Bestu leikmenn
1. Bjarki Björn Gunnarsson (ÍBV)
Bjarki Björn er sjóðandi heitur þessa dagana. Skorar tvennu og leggur upp eitt í dag en hann var með þrjár stoðsendingar í síðasta leik.
2. Vicente Valor (ÍBV)
Leggur upp fyrsta markið með glæsilegri sendingu. Hann og Alex Freyr Hilmarsson frábærir á miðjunni.
Atvikið
Þriðja markið gerir út um leikinn. Bjarki Björn skorar fyrstu tvö mörkin og leggur síðan upp þriðja markið á Sesar strax í kjölfarið á öðru markinu.
Hvað þýða úrslitin?
ÍBV hefur unnið tvo frábæra sigra í röð og er komið upp úr fallsæti. Þórsarar eru í miklum vandræðum eftir sjöunda tapleikinn í röð og eru komnir í fallsæti.
Vondur dagur
Lánleysi Þórsara heldur áfram. Sjö tapleikir í röð. Skoruðu en sköpuðu sér ekki mikið fyrir utan það. Varnarleikurinn ekki upp á marga fiska, Eyjamenn komust auðveldlega í gegn. Átta mörk skoruð og 27 fengin á sig í tíu leikjum.
Dómarinn - 7
Vel dæmdur leikur. Ekkert um vafaatriði.



