Fotbolti.net
Besta deildin
@fotboltinetÍvar Björgvinsson
Stjarnan
Stjarnan
Besta karla
Samsungvöllurinn
0 - 0
Breiðablik
Breiðablik
Dómari: Ívar Orri Kristjánsson
Fyrir leik
Hvernig kemur Stjarnan inn í þennan leik?
Stjarnan datt út úr 8-liða úrslitum Mjólkurbikarsins gegn Aftureldingu eftir 1-3 tap í síðasta leik Jökuls sem þjálfari Stjörnunnar. En liðið situr í 9. sæti Bestu deildarinnar með einungis 10 stig eftir 10 leiki sem verður að teljast vera mikil vonbrigði. Síðasti leikur liðsins í deildinni var 1-3 útisigur gegn Þór sem eru þó í fallsæti en ljóst er að Stjarnan má ekki við fleiri slæmum úrslitum.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Hvernig koma Blikar inn í þennan leik?
Blikar tryggðu sér sæti í undanúrslitum Mjólkurbikarsins með 0-3 sigri gegn Ægi en þeirra bíða Íslandsmeistarar Víkinga sem þeir þurfa að fara í gegnum ef þeir ætla á Laugardalsvöll. Liðið er í 4. sæti Bestu deildarinnar með 15 stig eftir 9 leiki og eru 13 stig í efsta sætið. Í síðustu umferð var 4-3 tap gegn Fram niðurstaðan í mjög fjörugum leik en Blikar voru nálægt því að koma til baka úr 4-1 stöðu.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Frumraun þjálfarans
Eins og flestir vita þá var Jón Þór ráðinn sem nýr aðalþjálfari Stjörnunnar eftir að Jökull var rekinn í síðustu viku eftir slæmt gengi á tímabilinu. Jón Þór stýrði Vestra í síðustu þremur umferðum Bestu deildarinnar á síðasta ári en hann vann enn aðeins í kringum liðið á þessari leiktíð ásamt því að vera hjá Livey í umfjöllun um Lengjudeildina.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Dómarateymið
Dómari leiksins er Ívar Orri Kristjánsson, aðstoðardómararnir tveir eru Birkir Sigurðarson og Kristofer Bergmann og Þórður Þorsteinsson Þórðarson sér um hlutverk fjórða dómara. Gylfi Þór Orrason er dómaraeftirlitsmaður.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Garðabærinn heilsar!
Verið velkomin í textalýsingu fyrir leik Stjörnunnar og Breiðabliks í 10. umferð Bestu deildar karla.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.