Fotbolti.net
Besta deildin
@karisnorraKári Snorrason
Kári Snorrason
Víkingur R.
Víkingur R.
Besta karla
Víkingsvöllur
Sól og blíða í Víkinni, allt í toppstandi!
2 - 0
KR
KR
Helgi Guðjónsson 40'1 - 0Valdimar Þór Ingimundarson 73'2 - 0
Dómari: Jóhann Ingi Jónsson
Myndir: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

SKÝRSLAN: Ekki tapað deildarleik í 311 daga

Hvað réði úrslitum?

KR-ingar áttu erfitt með að spila í gegnum góða pressu Víkings í fyrri hálfleik. Leikurinn var nokkuð lokaður í fyrri hálfleik en Helgi Guðjóns kom sínum mönnum yfir úr hornspyrnu skömmu fyrir leikhlé. Í síðari hálfleik stigu KR-ingar á bensíngjöfina og stýrðu nánast ferðinni. Þegar KR-ingar bönkuðu hvað fastast komust Víkingar í tveggja marka forystu, eftir kæruleysislega sendingu Akoto. Vantaði upp á þetta síðasta hjá Vesturbæingum og þéttir Víkingar héldu út, 2-0 sigur Íslandsmeistarana raunin.

Bestu leikmenn

1. Gylfi Þór Sigurðsson

Það var mikil barátta á miðjunni í leiknum og því mikill kostur fyrir Víkinga að hafa eitt stykki Gylfa þar. Auðvitað með allan pakkann og átti stoðsendingu.

2. Gunnar Vatnhamar

Besti hafsent deildarinnar og sýndi hvers megnugur hann var í kvöld. Kom félögum sínum nokkrum sinnum til bjargar, Víkingur fyrsta liðið sem nær að halda hreinu gegn KR þetta sumarið.

Atvikið

Mistök Akoto gerðu nokkurn veginn út um þennan leik. Það var erfitt að sjá KR-inga koma til baka úr því.

Hvað þýða úrslitin?

Víkingar eru með sex stiga forystu á toppi deildarinnar og hafa nú unnið tíu leiki í röð í deildinni. Síðasti tapleikur liðsins í deild var gegn Stjörnunni þann 10. ágúst 2025. KR-ingar sex stigum á eftir Víkingum í 2. sæti og tveimur stigum á undan Fram.

Vondur dagur

Eftir að hafa verið frábær framan af leik þá gerðist Michael Akoto sekur um rándýr mistök er hann gaf Víkingum mark. Sá fer ósáttur a koddann í kvöld.

Dómarinn - 7

Sýnist þetta hafa verið réttur dómur með rangstöðumark KR-inga, en tæpt var það. Misstu af því þegar boltinn fór í hendina á Amin Cosic í vítateig KR, sjálfur þurfti ég fimm endursýningar til að sjá það svo kvartettnum er fyrirgefið. Annars nokkrir skrýtnir dómar en allt annað nokkurn veginn í teskeið.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.