Fotbolti.net
Besta deildin
@fotboltinetÍvar Björgvinsson
Stjarnan
Stjarnan
Besta karla
Samsungvöllurinn
4 - 4
Breiðablik
Breiðablik
0 - 15' Viktor Karl Einarsson0 - 26' Aron Bjarnason 0 - 328' Aron Bjarnason Emil Atlason 30'1 - 3Emil Atlason 38'2 - 32 - 454' Kristófer Ingi KristinssonEmil Atlason 64'3 - 4Birnir Snær Ingason 80'4 - 4
Dómari: Ívar Orri Kristjánsson
Myndir: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

SKÝRSLAN: Leikur sumarsins í frumraun Jóns Þórs

Hvað réði úrslitum?

Hvað skal nú segja hér? Klaufalegir Blikar eða baráttuglaðir Garðbæingar. Blikar byrja gríðarlega vel og komast í 0-3 en hætta síðan að spila af ákefð og hleypa Stjörnunni inn í leikinn og nýttu heimamenn sér það. Jón Þór hefur náð að fá Stjörnumenn upp á tærnar, að undanskildri byrjuninni og náðu þeir stigi eftir að hafa verið undir nánast allan leikinn.

Bestu leikmenn

1. Emil Atlason

Emil saknar Jökuls en lét það ekki á sig fá og skoraði þrennu hér í dag, auðvelt val.

2. Aron Bjarnason

Aron var frábær í sóknarleik Blika framan af en var svo settur aftar á völlinn þegar Davíð fór útaf meiddur og þá sást minna til hans, spurning hvort það hafi verið mistök hjá Óla. En engu að síður tvö mörk og frábærframmistaða.

Atvikið

Jöfnunarmark Birnis Snæs, þetta mikilvæga áttunda mark sem oft er talað um. Stúkan trylltist og eftir 80 mínútur af tapstöðu jafnaði Stjarnan loksins leikinn.

Hvað þýða úrslitin?

Úrslitin þýða lítið ef litið er einungis á töfluna en andlega séð var þetta sigur fyrir Stjörnuna og tap Blika. Blikar halda áfram að vera klaufalegir og ekki nægilega klínískir sem hlýtur að meiða sjálfstraustið. Jón Þór fær klárlega meðbyr með sér inn í næsta leik sem gæti hjálpað Stjörnunni að hýfa sig upp töfluna.

Vondur dagur

Sindri Þór var í smá brasi í vörn Stjörnunnar og fjórða mark Blika var afar einfalt og hann skilinn eftir af Kristófer sem fékk allt of mikið svæði til þess að vinna með. Kom ekki að sök þar sem Garðbæingar jöfnuðu leikinn fyrir rest.

Dómarinn - 7

Risa leikur og engar stórar ákvarðanir rangar. Gott flæði í öllum leiknum.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.