Fotbolti.net
Andri Stefánsson
Andri Stefánsson
Mjólkurbikar kvenna
AVIS völlurinn
Þróttur R.
Þróttur R.
1 - 0
Víkingur R.
Víkingur R.
María Eva Eyjólfsdóttir 85'1 - 0
Dómari: Þórður Þorsteinsson Þórðarson
Leik lokið!
Þetta er búið hér í Laugardalnum
Þróttarar eru að koma sér í undanúrslitin í Mjólkurbikar kvenna!
Ég þakka fyrir mig, viðtöl og skýrsla væntanleg síðar í kvöld.
94. mín
Aukaspyrna
Þróttarar vinna aukaspyrnu.
92. mín
Færi
Þórdís fær boltann í góðri stöðu en hittir hann ekki vel.
91. mín
Horn
Hornspyrnan kemur fyrir og boltinn fer í slána og út.
89. mín
Gott færi
Unnur Dóra sleppur í gegn en skotið er kraftlítið og Sigurborg ver þægilega.
Þróttur R.
85. mín
Ísinn er brotinn!!!

María Eva Eyjólfsdóttir

Hornspyrnan kemur inn á teiginn, Sigurborg er í veseni í markinu og nær ekki að koma boltanum burt. María Eva er réttur maður á réttum stað og potar boltanum í netið.

1-0 Þróttur!
Víkingur R.
83. mín
Peysutog

Bergþóra Sól Ásmundsdóttir

79. mín
Horn
Þróttarar að vinna horn en Víkingar hreinsa frá.
Þróttur R.
76. mín
InnÞórdís Nanna Ágústsdóttir
ÚtSigríður Theód. Guðmundsdóttir
Víkingur R.
75. mín
Fer of seint í tæklinguna og stoppar skyndisókn

Þórdís Hrönn Sigfúsdóttir

Víkingur R.
72. mín
InnÞórhildur Þórhallsdóttir
ÚtEmma Steinsen Jónsdóttir
Fyrstu skiptingar Víkinga
Víkingur R.
72. mín
InnElísa Birta Káradóttir
ÚtDagný Rún Pétursdóttir
71. mín
Skot
Jasmín með skot rétt fyrir utan vítateig sem Sigurborg ver þægilega.
69. mín
Skot
Þórdís ber boltann upp völlinn en Sigurborg í engum vandræðum með skotið og grípur boltann.
65. mín
Meiðsli
Sæunn liggur eftir og fær hér aðhlynningu.
64. mín
Færi
Víkingar færa boltann frá hægri til vinstri en skot Emmu rétt yfir markið.
61. mín
VARIÐ Á LÍNU!
Dagný kemst upp að endamörkum og leggur boltann út á Þórdísi en skotið hennar er varið á línu.

Víkingar farnir að banka.
59. mín
Þróttarar kalla eftir víti
Þróttarar vilja meina að boltinn hafi farið í höndina á leikmanni Víkings en mér sýndist vera lítið í þessu.
57. mín
Horn
Þróttarar að fá fyrsta horn seinni hálfleiksins en Víkingar þruma boltanum burt.
54. mín
Seinni fer rólega af stað
Lítið um að vera hér í byrjun seinni hálfleiks.
50. mín
Færi
Alexia í fínu færi en hittir boltann illa og hann svífur yfir markið.
Þróttur R.
46. mín
InnMadison Jeanne Ditta
ÚtÞórdís Elva Ágústsdóttir
Þróttarar að gera tvær breytingar
Þróttur R.
46. mín
InnBrynja Rán Knudsen
ÚtBjörg Gunnlaugsdóttir
46. mín
Þróttarar byrja seinni hálfleikinn með boltann
Þróttarar sparka þessu í gang.
45. mín
Hálfleikur
Það vantar líf í þennan leik
Frekar viðburðalítill fyrri hálfleikur, bæði lið að dæla inn fyrirgjöfum sem hafa ekki skilað miklu.
Vonandi fáum við skemmtilegri seinni hálfleik!
45. mín
FÆRI
Darraðadans inni á teignum hjá Þrótturum sem endar í skoti sem þær verja á línu, annað horn fyrir Víkinga en ekkert verður úr þessari spyrnu.
45. mín
Horn
Víkingar fá horn og svo annað horn.
44. mín
Liðin skiptast á að vera með boltann
Lítið um færi þessar síðustu mínútur, bæði lið að halda vel í boltann en ekkert að ógna.
38. mín
Færi
Björg með góða fyrirgjöf en skallinn fer rétt yfir markið.
33. mín
Meiðsli
Bergþóra meiðist og fær hér aðhlynningu, mér sýnist hún ætla að halda áfram og hún gerir það.
30. mín
Fyrirgjöf og færi!
Jóhanna kemst upp að endamörkum og nær að koma boltanum fyrir, skotið fer þó framhjá markinu.
27. mín
Gott færi
Þórdís fær boltann frá Jóhönnu en skotið varið, enda frekar þröngt færi.
25. mín
Rólegar fyrstu 25
Frekar rólegar fyrstu 25, Víkingar komust þó í eitt mjög gott færi.
19. mín
Fyrirgjöf
Mist með góðan sprett upp kantinn en Sigurborg grípur fyrirgjöfina.
15. mín
Færi
Björg fær sendinguna í gegn en færið er þröngt og Sigurborg ver þægilega.
12. mín
DAUÐAFÆRI
Jasmín með sniðuga sendingu í gegn á Dagnýju sem fer framhjá markmanninum en skotið í hliðarnetið.

Víkingar að banka!
10. mín
Horn
Víkingar að fá hornspyrnu eftir gott spil en boltinn flýgur aftur yfir allan pakkann.
10. mín
Fyrirgjöf
Gott spil hjá Þrótturum en fyrirgjöfin yfir markið.
5. mín
Góður sprettur
Jóhanna með góðan sprett upp kantinn en fyrirgjöfin ratar ekki á samherja.
2. mín
Horn
Víkingar fá fyrsta hornið hér í dag en boltinn flýgur yfir allan pakkann og í markspyrnu.
1. mín
Leikur hafinn
Þetta er komið í gang
Víkingar byrja með boltann.
Fyrir leik
Þetta fer að byrja
10 mín í leik og liðin halda til búningsherbergja, allt að verða klárt hér á AVIS vellinum.
Fyrir leik
Byrjunarliðin komin
Byrjunarlið dagsins voru að detta inn og liðin eru byrjuð að hita ásamt dómurum dagsins. Spennandi leikur framundan hér í dag.
Fyrir leik
Vallaraðstæður frábærar og gott veður hér í dag
Leikið er við góðar aðstæður í Laugardalnum hér í dag þar sem gervigrasið býður upp á hraðan og spennandi leik. Veðrið er eins og við viljum hafa það, logn og skýjað.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Leið liðanna í 8-liða úrslitin
Víkingar unnu 0-2 sigur á Keflavík eftir framlengingu í 16-liða úrslitum og það voru þær Jasmín Erla Ingadóttir og Helena Ósk Hálfdánardóttir sem skoruðu mörkin í seinni hálfleik framlengingar.

Þróttarar unnu frábæran 3-2 sigur gegn ríkjandi íslandsmeisturum Breiðabliks í 16-liða úrslitum. Mörk liðsins skoruðu Kayla Rollins, Unnur Dóra Bergsdóttir og Sigríður Theodóra Guðmundsdóttir.

Liðin áttust við fyrr á tímabilinu en þar höfðu Þróttarar betur og unnu sannfærandi 4-1. Við megum þó búast við æsispennandi leik hér í dag, enda er sæti í undanúrslitunum í húfi.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Gengi Þróttara
Þróttur fékk ÍBV í heimsókn í síðasta leik sem endaði í daufu 0-0 jafntefli, þær sóttu þó sterkan 0-1 sigur á Val í leiknum fyrir það.
Þær sitja í 5. sæti Bestu deildar kvenna með 13 stig í 8 leikjum og tímabilið hefur verið gott.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Gengi Víkinga
Víkingur heimsótti FH í síðustu umferð og töpuðu þar illa 2-5, þær unnu þó mikilvægan 4-6 sigur á Þór/KA í leiknum fyrir það.
Þær sitja því í 7. sæti Bestu deildar kvenna með 9 stig eftir 8 leiki, það er óhætt að segja það að gengi liðsins hafi verið upp og niður á þessu tímabili.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Dómarateymið
Þórður Þorsteinsson Þórðarson (ÞÞÞ) er aðaldómari hér í dag og honum til aðstoðar eru þeir Arnþór Helgi Gíslason og Kristofer Bergmann. Varadómari er Aðalbjörn Heiðar Þorsteinsson og eftirlitsmaður er Sigurður G Friðjónsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Mjólkurbikarinn heilsar!
Kæru lesendur, verið hjartanlega velkomin í þessa þráðbeinu textalýsingu frá AVIS vellinum. Hér í dag eigast Þróttur og Víkingur við í 8-liða úrslitum Mjólkurbikars kvenna.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.