0. mín
Magnús Haukur spáir í spilin
Grindavík/Njarðvík 3 - 1 Víkingur R.
Þetta er hamingja gegn óhamingju. Skemmtun gegn leiðindum. Tinna skorar, Gylfi verður glaður og Einar mætir í öllum sínum Víkings fötum í viðtal eftir leik.


0. mín
Mismunandi niðurstaða í bikarnum
Bæði lið voru að spila í átta-liða úrslitum Mjólkurbikars kvenna á dögunum. Grindavík/Njarðvík fór áfram í framlengdum leik gegn Stjörnunni á meðan Víkingur tapaði fyrir Þrótti.


0. mín
Víkingar vilja meira
Á hinn bóginn eru Víkingar ekki sáttir með tímabilið hjá sér til þessa. Fossvogsfélagið situr í sjöunda sæti með níu stig en frammistaða liðsins hingað til í sumar hefur ekki verið nægilega góð. Víkingar hafa tapað þremur af síðustu fjórum leikjum sínum í Bestu deildinni.


0. mín
Nýliðar að gera góða hluti
Grindavík/Njarðvík hefur komið skemmtilega inn í Bestu deildina. Félagið er aðeins á sínu öðru ári eftir að Grindavík og Njarðvík sameinuðust í kvennaboltanum en á fyrsta árinu komst liðið upp úr Lengjudeildinni. Það er búið að leggja mikið í þetta lið og það er að skila sér. Fyrir leik kvöldsins er Grindavík/Njarðvík í sjötta sæti með ellefu stig úr átta leikjum.


0. mín
Níunda umferðin klárast í kvöld
Í kvöld mun níunda umferð Bestu deildarinnar klárast með tveimur leikjum. Í hinum leik kvöldsins mætast FH og Valur á Kaplakrikavelli.
Það voru þrír leikir í gær og þar voru úrslitin svona:
Þór/KA 2 - 0 Þróttur R.
ÍBV 0 - 3 Breiðablik
Stjarnan 3 - 0 Fram
0. mín
Góða kvöldið!
Verið velkomnir kæru lesendur í beina textalýsingu frá leik Grindavík/Njarðvík og Víkings í níundu umferð Bestu deildar kvenna.
Hér munum við fylgjast með gangi mála, öllu því sem gerist í leiknum. Endilega verið með!






