Leik lokið!
1-1 Loka niðurstaða í þessum leik!
Valur mætti heldur betur í 5 gír í seinni hálfleik!
FH konur sem fyrr nýttu ekki urmull af dauðafærum sem þær fengu og því fór sem fór!
Takk fyrir samfylgdina, viðtöl og skýrsla kom inn síðar í kvöld
94. mín
ÚFFF
Aufí gerir vel í að finna Kimberly, sú missir boltan aðeins of langt frá sér þegar hún ætlar að stinga á galopna Nadiu, nær boltanum aftur og reynir skotið fast niðri, fínasta tilraun en Aldís nær að halda þessum
90. mín
A.m.k. 4 mínútur í uppbótartíma!
89. mín
Aufí tekur aukspyrnu á miðjum vallarhelmingi FH en spyrnan rennur út fyrir endalínu
88. mín
Eva Marín strax komin í fínasta færi en Tinna ver þetta vel
87. mín
InnEva Marín Sæþórsdóttir
ÚtHelena Maree Errington
85. mín
ÍDAAA
Með fínustu tilraun en rétt framhjá markinu! Þetta er að verða helvíti dýrkeypt fyrir FH
85. mín
Thelma Lóa gerir vel út á kanti en á skot langt yfir markið
83. mín
Aufi tekur spyrnuna beint á höfuðið á Málfríði sem á lausan skalla en er síðan dæmd rangstaða
82. mín
Margrét Brynja vinnur aukaspyrnu fyrir Val á fínum stað
81. mín
Gult spjald
Helena Maree Errington
Gult fyrir ruddalega tæklingu80. mín
Gult spjald
Margrét Brynja Kristinsdóttir
Gult fyrir tuð80. mín
Valskonur við það að sleppa í gegn, en dæmdar rangstæðar
79. mín
InnElín Björg Norðfjörð Símonardóttir
ÚtMackenzie Elyze Smith
77. mín
InnHrafnhildur Salka Pálmadóttir
ÚtKolbrá Una Kristinsdóttir
75. mín
Nadía með fyrirgjöf sem endar í horni
Hornspyrna frá Sóley sem Aldís grípur
74. mín
Gult spjald
Berglind Freyja Hlynsdóttir
Braut á Kolbrá Unu69. mín
Fjöldinn á vellinum í dag eru 233
68. mín
DAUÐAFÆRI!!
Andrea Rán kemur með góðan bolta fyrir sem Helena Maree nær ekki að stýra í netið
Illa farið með gott færi!!
66. mín
Ída Marín reynir að þræða boltanum inn á Thelmu Lóu sem kemur með gott hlaup en Lillý Rut gerir vel og kemst í boltann
64. mín
Margrét Brynja við það að sleppa í gegn en Andrea Rán með góða tæklingu sem kemur í veg fyrir það
63. mín
FH konur með hornspyrnu, brotið á Tinnu Brá
62. mín
Margrét Brynja komin hérna ein í gegn, en fer illa með þetta færi
59. mín
InnArnfríður Auður Arnarsdóttir
ÚtSonja Björg Sigurðardóttir
59. mín
InnHafrún Birna Helgadóttir
ÚtNia Raisa Christopher
59. mín
InnBirna Kristín Björnsdóttir
ÚtJónína Linnet
58. mín
Jónina Linnet fær hér höfuðhögg og þarf því miður að fara af velli.
Vonandi ekkert alvarlegt!
54. mín
Thelma Lóa með flott skot utan af velli sem Tinna Brá á ekki í erfiðleikum með að verja
54. mín
Tinna Brá ver frábærlega tvisvar í röð
51. mín
Kolbrá pressar vel, boltinn endar hjá Margréti sem nær eki skot á markið.
Valskonur koma sterkar út í seinni hálfleikinn.
49. mín
Berglind Freyja gerir vel á kantinum og vinnur hornspyrnu fyrir heimakonur, þær taka stutt horn á Berglindi sem á skot framhjá markinu
47. mín
ÍDAAAAA!
Jesús! á skot í stöngina af stuttu færi, þær ná síðan frákastið en Tinna Brá ver
46. mín
Við erum farin aftur af stað
Nia sparkar þessu aftur af stað fyrir heimakonur
Smá töf þar sem það þurfti að fylla í holu á vellinum! En þeir græja það um leið FHingarnir
46. mín
InnBerglind Freyja Hlynsdóttir
ÚtIngibjörg Magnúsdóttir
FH gerir breytingu í hálfleik, fékk aðhlynningu undir lok fyrrihálfleiks.
45. mín
Valur
Valskonur hins vegar gerðu vel að koma sér inn í leikinn og það skemmtilega við fótboltann er að það þarf bara eina góða sókn til þess að skora mark og jafna!
45. mín
FH
FH konur hafa haft algjöra yfirburði í fyrri hálfleik, þær hins vegar hafa ekki verið að nýta dauðafærin sín og það eru mörkin sem telja.
Þær hljóta að naga sig í handarbökin úr því sem komið er.
45. mín
Allt jafnt í Krikanum!
1-1 staðan hér í hálfleik!
45. mín
a.m.k. 1 mínúta í uppbótartíma
45. mín
Ingibjörg gerir vel, setur svo boltann inn á teiginn, Nia reynir skotið en rétt framhjá
43. mín
Margrét Brynja brýtur á Ingibjögu við miðlínuna, þær taka þetta stutt
38. mín
Heyrðu! Óvænt!
Nadía Atladóttir
Malla gerir vel og vinnur boltann, setur hann svo fyrir þar sem Sonja eiginlega kiksar boltann en Nadía hins vera er mættust og fjær og stýrir þessu inn! Þetta er allt í einu leikur!
32. mín
Hættttulegt
Thelma Lóa er í rosalegri stöðu, fær fyrirgjöf frá Helenu en hittir ekki boltann, þetta hefði átt að liggja inni!
30. mín
Margrét Brynja er slopin í gegn en flaggið fer á loft!
Þetta fannst mér ekki hafa verið rangstaða!
29. mín
Helena Maree með fínustu tilraun! En Tinna er að verja vel í dag
28. mín
Fín pressa hjá FH í markspyrnu Vals, Lillý Rut endar á að þurfa að þruma boltanum fram og útaf
27. mín
Andrea Rán sem fyrr með spyrnuna, setur hann á fjær en Valskonur ná að koma þessu frá
26. mín
Thelma Lóa með ágætis tilraun en Tinna ver þetta, horn!
25. mín
Ída Marín með frábæra stungusendingu, reynir að finna Niu á milli en Málfríður kemst í boltann á síðustu stundu
24. mín
ÚFFF
Ingbjörg er svoooo góð í þessu, sóla einn, sóla tvo en Tinna Brá í markinu hins vegar sér við henni að þessu sinni
22. mín
Kimberly Dóra kemst í fínustu stöðu en skotið í Aldísi og útaf, hornspyrna sem ekkert kemur úr
22. mín
Andrea brýtur á Nadíu sem er við það að koma sínum konum í Val í góða skyndisókn
21. mín
Andrea Rán með hornspyrnu fyrir FH en ekkert kemur úr henni
17. mín
Andrea Rán með hornspyrnu fyrir FH, setur hann á fjær þar sem Deja er mættust en Margrét Brynja er með hana á lás,
15. mín
Lillý Rut gerir vel, setur líkamann fyrir og Nia á ekki séns í að komast í þennan bolta.
13. mín
Helena Maree gerir vel, er með flugbraut á kantinum, nær að komast inn í teiginn en skotið ekki alveg nógu gott og Tinna Brá á ekki í vandræðum með að handsama þennan
10. mín
Thelma Lóa fer illa með Möllu en er svo stoppuð rétt áður en hún mundar skotfótinn
7. mín
Mackenzie brýtur af sér við miðjuna, aukaspyrna sem ekkert kemur þó úr
6. mín
Andrea Rán reynir fínustu sendingu í hlaupaleiðina hjá Ingibjörgu en aðeins of löng
3. mín
Þetta var ekki lengi gert!
Ída Marín Hermannsdóttir
Mikill darraðardans í teignum áður en boltinn berst lokst til Ídu Marínar sem finnur markið! 1-0!!!
2. mín
FH konur byrja þetta af krafti, Nia er komin hér út að endalínu, reynir að setja hann út en þar er engin mætt
1. mín
Sonja sparkar þessu af stað fyrir gestina
0. mín
Þetta fer að hefjast!
Liðin ganga hér inn á völlinn, þetta er að bresta á!
0. mín
Valur
Matthías þjálfari Vals gerir einnig 2x breytingar á sínu liði inn í liðið koma Helga Rut og Kolbrá Una en úr liðinu fara Ísabella Sara og Arnfríður Auður,
0. mín
FH
Guðni gerir 1x breytingu á sínu liði frá 3-2 tapinu gegn ÍBV í Mjólkurbikarnum. Inn í liðið kemur Anna Heiða en á bekkin sest Birna Kristín.
0. mín
Magnús Haukur spáir í 9. umferðina
Fótboltaþjálfarinn Magnús Haukur Harðarson spáir í leikina að þessu sinni.
FH 4 - 1 Valur
FH konur mæta smá bognar eftir tapið í Eyjum en þær hrista það fljótt af sér og setja þrjú í fyrri hálfleik. Valskonur hafa ekkert lært þrátt fyrir ítrekuð viðtöl þjálfarans í sumar um það. Margrét Brynja potar einu áður en Ída setur fjórða mark

0. mín
Valur
Valskonur sitja fyrir þennan leik í 8. sætinu með 8 stig, 1 stigi á eftir Víkingum í 7. sætinu og 2 stigum á undan Þór/KA í 9. sætinu.
Gengi Valskvenna hefur verið ansi dapurt í sumar, þrátt fyrir bráðefnilega yngri landsliðskonur og hafa þær einungis unnið 2 leiki. Annars vegar í fyrsta leik sínum á tímabilinu þegar þær unnu Grindavík/Njarðvík á Hlíðarenda og svo 0-1 sigur á Víking.
Þá hafa þær gert tvö jafntefli, bæði við liðin tvö fyrir neðan sig í töflunni, Þór/KA og Fram.
Valur hefur hins vegar náð að sína ágætis frammistöður í sumar og voru nálægt því að sigra Blikana í hörkuleik, einum færri. Það er því spurning hvort þær geti gírað sig jafnvel í leik á móti FH sem keppist við Blikana um toppsætið í deildinni.
Eitthvað segir mér allavega að það sé alltaf auðveldara að gíra sig í stórleiki þar sem þú veist að þú þarft að vera í barningi og baráttu allan leikinn. Nú þurfum við bara að bíða og sjá hvernig þær mæta til leiks í kvöld!

0. mín
FH
FH konur sitja fyrir þennan leik í 2. sæti með 19 stig, tveimur stigum á eftir Breiðablik og með leik til góða. Vinni þær þennan leik eru þær því aftur komnar á toppinn, 1 stigi meira en Blikarnir.
Í deildinni eru FH konur heldur betur búnar að vera á góðri siglingu en þær hafa unnið 6 leiki í röð, nú síðast 2-5 gegn Víkingi. Þær byrjuðu örlítið brösulega með jafntefli í fyrsta leik og svo lágu þær fyrir Þrótti í leiknum þar á eftir, þær hrukku þó aldeilis í gírinn og hafa unnið eins og fyrr segir 6 leiki í röð!
Hins vegar töpuðu þær síðasta leik 3-2 í Eyjum gegn ÍBV í Mjólkurbikarnum og eru því dottnar út úr bikarnum þetta tímabilið! Þær ættu þá að geta einbeitt sér að fullu á deildina og freistast til að hampa íslandsmeistaratitlinum í lok sumars!
Sigur í dag er því mikilvægur fyrir FH konur og leið þeirra að titlinum

0. mín
9. umferðin
Þrír leikir voru spilaðir í gær. Óvænt úrslit litu dagsins ljós er Þór/KA náði í sinn fyrsta sigur, 2-0 gegn Þrótti og hræringar urðu á töflunni. Umferðin klárast svo í dag, með tveimur leikjum klukkan 19:15.
9. umferðin lítur þá svona út:
Í gær:
18:00 Þór/KA 2 - 0 Þróttur
18:00 ÍBV 0 - 3 Breiðablik
19:15 Stjarnan 3 - 0 Fram
Í kvöld:
19:15 Grindavík/Njarðvík - Víkingur
19:15 FH - Valur


0. mín
Dómarateymi kvöldsins
Á flautunni í kvöld verður Hreinn Magnússon og honum til halds og trausts verða Sigurður Þór Sveinsson og Heimir Árni Erlendsson aðstoðardómarar.
Fjórði dómari er Hallgrímur Viðar Arnarson og eftirlitsmaður í dag er Ingvar Örn Gíslason

0. mín
Besta deildin kallar!
Verið hjartanlega velkomin í beina textalýsingu þráðbeint frá Kaplakrikavellinum þar sem FH tekur á móti Val í 9. umferð Bestu deildarinnar
Leikurinn hefst á slaginu 19:15!





