Fotbolti.net
Besta deildin
@gummi_aaGuðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Besta kvenna
JBÓ völlurinn
Grátt yfir og svona átta gráður
Grindavík/Njarðvík
Grindavík/Njarðvík
1 - 1
Víkingur R.
Víkingur R.
Maci Nicole Teater 58'1 - 01 - 171' Freyja Stefánsdóttir
Dómari: Milan Djurovic

SKÝRSLAN: Sambabolti? Ekki alveg

Hvað réði úrslitum?

Þetta var alls ekki frábær fótboltaleikur. Ég álasa ekki áhorfendum það ef þau dottuðu yfir fyrri hálfleiknum, svo rólegur var leikurinn. Seinni hálfleikurinn var mun líflegri og áttu bæði lið sína kafla og sín færi. Að lokum held ég að þetta séu bara frekar sanngjörn úrslit miðað við hvernig leikurinn spilaðist.

Bestu leikmenn

1. Hildur Katrín Snorradóttir (Grindavík/Njarðvík)

Var mjög lífleg sóknarlega, sérstaklega í seinni hálfleiknum. Lagði upp markið og getur verið ósátt við það að hafa ekki lagt upp fleiri mörk því hún var að finna liðsfélaga sína vel.

2. Sigurborg K. Sveinbjörnsdóttir (Víkingur R.)

Kom inn í markið í dag og stóð sig heilt yfir virkilega vel. Var örugg í sínum aðgerðum og varði nokkrum sinnum vel í seinni hálfleiknum.

Atvikið

Ég ætla að segja að það hafi verið varsla sem Katla tók eftir markið sem Grindavík/Njarðvík skoraði. Hún kom vel út á móti og lokaði og hélt Víkingi þannig inn í leiknum.

Hvað þýða úrslitin?

Grindavík/Njarðvík er í sjötta sæti með tólf stig á meðan Víkingur er í sjöunda sæti með tveimur stigum minna.

Vondur dagur

Sóknarmennirnir fundu sig ekki alveg í dag. Tinna Hrönn Einarsdóttir átti erfitt uppdráttar í liði heimakvenna og hjá gestunum er Jasmín Erla Ingadóttir eflaust svekkt með að hafa ekki skorað mark. Ása Björg Einarsdóttir og Sophia Faith Romine, kantmenn Grindavík/Njarðvík, hefðu líka viljað skora í seinni hálfleiknum en hittu ekki á markið.

Dómarinn - 7

Mjög auðveldur leikur að dæma en vel af sér vikið.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.