0. mín
Magnús Haukur spáir í 9. umferðina
Fótboltaþjálfarinn Magnús Haukur Harðarson spáir í leikina að þessu sinni.
FH 4 - 1 Valur
FH konur mæta smá bognar eftir tapið í Eyjum en þær hrista það fljótt af sér og setja þrjú í fyrri hálfleik. Valskonur hafa ekkert lært þrátt fyrir ítrekuð viðtöl þjálfarans í sumar um það. Margrét Brynja potar einu áður en Ída setur fjórða mark

22.06.26 09:00
Magnús Haukur spáir í 9. umferð Bestu kvenna
0. mín
Valur
Valskonur sitja fyrir þennan leik í 8. sætinu með 8 stig, 1 stigi á eftir Víkingum í 7. sætinu og 2 stigum á undan Þór/KA í 9. sætinu.
Gengi Valskvenna hefur verið ansi dapurt í sumar, þrátt fyrir bráðefnilega yngri landsliðskonur og hafa þær einungis unnið 2 leiki. Annars vegar í fyrsta leik sínum á tímabilinu þegar þær unnu Grindavík/Njarðvík á Hlíðarenda og svo 0-1 sigur á Víking.
Þá hafa þær gert tvö jafntefli, bæði við liðin tvö fyrir neðan sig í töflunni, Þór/KA og Fram.
Valur hefur hins vegar náð að sína ágætis frammistöður í sumar og voru nálægt því að sigra Blikana í hörkuleik, einum færri. Það er því spurning hvort þær geti gírað sig jafnvel í leik á móti FH sem keppist við Blikana um toppsætið í deildinni.
Eitthvað segir mér allavega að það sé alltaf auðveldara að gíra sig í stórleiki þar sem þú veist að þú þarft að vera í barningi og baráttu allan leikinn. Nú þurfum við bara að bíða og sjá hvernig þær mæta til leiks í kvöld!

0. mín
FH
FH konur sitja fyrir þennan leik í 2. sæti með 19 stig, tveimur stigum á eftir Breiðablik og með leik til góða. Vinni þær þennan leik eru þær því aftur komnar á toppinn, 1 stigi meira en Blikarnir.
Í deildinni eru FH konur heldur betur búnar að vera á góðri siglingu en þær hafa unnið 6 leiki í röð, nú síðast 2-5 gegn Víkingi. Þær byrjuðu örlítið brösulega með jafntefli í fyrsta leik og svo lágu þær fyrir Þrótti í leiknum þar á eftir, þær hrukku þó aldeilis í gírinn og hafa unnið eins og fyrr segir 6 leiki í röð!
Hins vegar töpuðu þær síðasta leik 3-2 í Eyjum gegn ÍBV í Mjólkurbikarnum og eru því dottnar út úr bikarnum þetta tímabilið! Þær ættu þá að geta einbeitt sér að fullu á deildina og freistast til að hampa íslandsmeistaratitlinum í lok sumars!
Sigur í dag er því mikilvægur fyrir FH konur og leið þeirra að titlinum

0. mín
9. umferðin
Þrír leikir voru spilaðir í gær. Óvænt úrslit litu dagsins ljós er Þór/KA náði í sinn fyrsta sigur, 2-0 gegn Þrótti og hræringar urðu á töflunni. Umferðin klárast svo í dag, með tveimur leikjum klukkan 19:15.
9. umferðin lítur þá svona út:
Í gær:
18:00 Þór/KA 2 - 0 Þróttur
18:00 ÍBV 0 - 3 Breiðablik
19:15 Stjarnan 3 - 0 Fram
Í kvöld:
19:15 Grindavík/Njarðvík - Víkingur
19:15 FH - Valur


0. mín
Dómarateymi kvöldsins
Á flautunni í kvöld verður Hreinn Magnússon og honum til halds og trausts verða Sigurður Þór Sveinsson og Heimir Árni Erlendsson aðstoðardómarar.
Fjórði dómari er Hallgrímur Viðar Arnarson og eftirlitsmaður í dag er Ingvar Örn Gíslason

0. mín
Besta deildin kallar!
Verið hjartanlega velkomin í beina textalýsingu þráðbeint frá Kaplakrikavellinum þar sem FH tekur á móti Val í 9. umferð Bestu deildarinnar
Leikurinn hefst á slaginu 19:15!





