Leik lokið!
Leik lokið í Vesturbænum
Sanngjarn sigur KR. Ég þakka fyrir mig, viðtöl og skýrsla væntanleg seinna í dag.
90. mín
Tvær í uppbót
86. mín
Stórskotahríðin heldur áfram
Valgerður með góða fyrirgjöf á fjær sem endar í skoti en það er varið.
84. mín
Ja hérna hér. 6-0 - sannkallað markaregn í Vesturbænum
Kara Guðmundsdóttir
Kara með gott skot rétt fyrir utan vítateig sem fer yfir Sigríði og í netið.82. mín
Bylmingsskot!
Kara nær föstu og góðu skoti sem Sigríður ver í horn. Ekkert varð úr þessu horni.
80. mín
InnMagnea Petra Rúnarsdóttir
ÚtHrafney Lea Árnadóttir
78. mín
Horn og skot í slána!
Darraðadans inni á teignum hjá Tindastól sem endar í skoti sem fer í slána og yfir.
76. mín
InnFreyja Aradóttir
ÚtÓlöf Freyja Þorvaldsdóttir
76. mín
InnSóley María Davíðsdóttir
ÚtRagnheiður Ríkharðsdóttir
75. mín
Horn fyrir KR
Tindastóll hreinsa frá.
74. mín
Pressa og færi!
Kara gerir vel í pressunni, vinnur boltann og nær fínu skoti sem er varið.
73. mín
Horn og færi
Valgerður í úrvals færi en skallar boltann yfir markið.
70. mín
Horn fyrir KR
Boltinn kemur inn á teiginn en það er skallað frá.
69. mín
InnEmilía Ingvadóttir
ÚtKarítas Ingvadóttir
Tvöföld breyting hjá KR
69. mín
InnValgerður Gríma Sigurjónsdóttir
ÚtInga Laufey Ágústsdóttir
66. mín
InnThelma Ósk Rúnarsdóttir
ÚtEmelía Björk Elefsen
Meiðsli
64. mín
Fyrsta gula spjald leiksins
Kara Guðmundsdóttir
63. mín
Kara að sýna lipra takta
Kara gerir vel, kemst upp að endamörkum og kemur boltanum út í teiginn en þar vantar KR-inga og Tindastóll hreinsar frá.
61. mín
Ragnheiður!
Rakel með sturlaða fyrirgjöf á Ragnheiði sem er í frábæru skallafæri en hittir ekki boltann.
57. mín
Færi
Katla í fínu færi rétt fyrir utan teig en skotið er laust og Sigríður grípur boltann.
54. mín
Fyrirgjöf og færi
Katla í fínasta færi inni á teignum en skotið er framhjá.
51. mín
Horn fyrir KR
Þær taka þetta stutt en ekkert verður úr þessu.
51. mín
Fyrstu 5 rólegar
Fyrstu 5 rólegar í byrjun seinni hálfleiks.
46. mín
Tindastóll byrja með boltann í seinni
46. mín
InnEmelía Björk Elefsen
ÚtÍris Ösp Elefsen
46. mín
InnÍris Grétarsdóttir
ÚtAnna Björk Kristjánsdóttir
KR gera eina breytingu í hálfleik
45. mín
Hálfleikur
Flautað til hálfleiks
Það er óhætt að segja að þessi leikur sé búinn. Tindastóll komast varla í færi en KR-ingar eru búnar að vera allt í öllu og er þetta því verðskuldað.
44. mín
Flugeldasýning í Vesturbænum
Inga Laufey Ágústsdóttir
Inga fær boltann inni á teignum, fyrra skotið hennar er varið en hún nær boltanum aftur og kemur honum í autt mark.43. mín
Gott mark!
Emma Björt Arnarsdóttir (stoðsending: Rakel Grétarsdóttir)
Rakel með góða fyrirgjöf á Emmu sem kemur boltanum í netið41. mín
Gott spil
Katla nær að snúa og kemur boltanum á Rakel sem skýtur yfir markið.
39. mín
Fyrirgjöf
Katelyn með góða fyrirgjöf en Josefine hittir ekki boltann og markspyrna niðurstaðan.
35. mín
Rangstaða
Rakel með fyrirgjöf á Ólöfu en það er flaggað.
32. mín
Horn fyrir KR
Fyrirgjöfin kemur inn á teiginn en það er hreinsað frá.
30. mín
Fínt færi
Ólöf í fínu færi en skotið er rétt framhjá markinu.
28. mín
Þetta var furðulegt
Ólöf Freyja Þorvaldsdóttir
Rakel sýnir góða takta og kemur með fyrirgjöf sem rúllar í stöngina, þar er Ólöf Freyja réttur maður á réttum stað og potar boltanum inn.25. mín
KR að stjórna þessum leik
Þetta hefur byrjað frábærlega fyrir KR-inga og þær líta út fyrir að bæta fleiri mörkum við.
19. mín
KR komnar í mjög góða stöðu eftir 20 mínútna leik.
Þær voru ekki lengi að bæta við!!
Ragnheiður Ríkharðsdóttir (stoðsending: Inga Laufey Ágústsdóttir)
Inga Laufey með góða fyrirgjöf á Ragnheiði sem kemur boltanum yfir markmanninn og inn.KR komnar í mjög góða stöðu eftir 20 mínútna leik.
17. mín
Fyrsta markið komið!
Katla Guðmundsdóttir
Klafs inni á teignum hjá Tindastól og boltinn skoppar til Kötlu sem klárar frábærlega í fjær.15. mín
Horn fyrir KR
En ekkert verður úr þessu.
13. mín
KR að fá sitt fyrsta horn
Boltinn kemur inn á teiginn en það er skallað frá.
11. mín
Fyrirgjöf og skot
Ragnheiður með góða fyrirgjöf á Kötlu sem skýtur yfir markið úr fínu færi.
8. mín
Kyla!
Kyla að verja vel eftir skalla úr horninu. Tindastóll fengu annað horn en ekkert varð úr því.
7. mín
Önnur aukaspyrna fyrir Tindastól á mjög góðum stað
Josefine tekur spyrnuna sem fer í varnarmann KR og í horn.
6. mín
Aukaspyrna fyrir Tindastól á ágætum stað
Boltinn kemur inn á teiginn en skallinn fer framhjá.
3. mín
Horn fyrir Tindastól
Boltinn kemur inn á teiginn en Kyla grípur boltann.
1. mín
KR sparka þessu í gang
KR byrja með boltann.
Fyrir leik
5 mín í leik
Það eru 5 mínútur í leik og liðin halda til búningsherbergja.
Fyrir leik
Vallaraðstæður dagsins
Vallaraðstæður dagsins eru fínar, það er smá gola í Vesturbænum en annars er allt eins og það á að vera. Gervigrasið er blautt og við megum búast við hröðum og viðburðaríkum leik.


Fyrir leik
Dómarateymið
Bríet Bragadóttir er dómari dagsins. Aðstoðardómarar eru þær Eydís Ragna Einarsdóttir og Ingibjörg Garðarsdóttir Briem.


Fyrir leik
Gengi Tindastóls síðustu leiki
Tindastóll sitja í neðsta sæti deildarinnar með aðeins 3 stig eftir 7 umferðir. Þær unnu þó sinn fyrsta sigur í síðustu umferð á FHL, sá leikur endaði 3-1. Í umferðinni fyrir það töpuðu þær mjög illa gegn HK, sá leikur fór 7-0 HK í vil.


Fyrir leik
Gengi KR síðustu leiki
KR sitja í 2. sæti með 16 stig eftir 7 umferðir og eru einu stigi á efir Haukum. KR fékk einmitt Hauka í heimsókn í síðustu umferð en gerðu þar svekkjandi 1-1 jafntefli. Í umferðinni fyrir það unnu þær sterkan 1-2 sigur á FHL.


Fyrir leik
Meistaravellir heilsa!
Verið velkomin í þessa þráðbeinu textalýsingu frá Meistaravöllum þar sem KR og Tindastóll eigast við í 12. umferð Bestu deildar kvenna. Von er á skemmtilegum leik í Vesturbænum.





