0. mín
Double header
Þess má til gamans geta að í Lengjudeild kvenna mætast einnig Völsungur og Grótta í dag. Sá leikur hefst kl. 16:00 á Vivaldi-vellinum á Seltjarnesi. Hvetjum alla til að mæta á völlinn hvort sem að það sé á Húsavík eða Seltjarnarnesi.
0. mín
Gengi liðanna
Heimamenn í Völsungi hafa aðeins verið að vakna til lífsins undanfarið. Þeirra fyrsti sigur í sumar kom í síðasta heimaleik gegn Njarðvík en í síðustu umferð heimsóttu þeir ÍR í Breiðholtið og gerðu ævintýralegt 4-4 jafntefli þar sem að Dagbjartur Búi skoraði stórbrotið jöfnunarmark. Völsungar sitja þó enn í botnsætinu en sigur í dag myndi jafnvel koma þeim af fallsvæðinu.
Seltyrningar hafa átt kaflaskipt mót. Þeir hafa unnið 4 leiki en tapað 5 og sitja í 8.sæti deildarinnar. Þeir voru hársbreidd frá því að slá Fylki út úr bikarnum um daginn en mættu þeim svo aftur í síðustu umferð og eftir að hafa leitt 2-0 í hálfleik töpuðu þeir leiknum 2-5. Þá klæjar eflaust að bæta upp fyrir það.
Held að það sé óhætt að setja gamla góða "6 stiga leikur" stimpilinn á þennan leik.
0. mín
Góðan daginn og velkomin í beina textalýsingu frá GPG-vellinum á Húsavík þar sem að heimamenn í Völsungi taka á móti Gróttu frá Seltjarnarnesi í 11.umferð Lengjudeildar karla.


