Leik lokið!
Þetta er búið, takk fyrir mig. Skýrsla og viðtöl á leiðinni.
89. mín
MAAAARK!
Aron Elí Sævarsson (stoðsending: Trausti Þráinsson)
Horn fyrir Aftureldingu, beint á Aron sem skallar beint í markið.88. mín
Ari Hrafn með skot í hliðarnetið.
87. mín
Trausti fær boltann rétt fyrir framan markið í hnéð og yfir markið.
85. mín
Horn fyrir Aftureldingu sem er skölluð burt.
84. mín
Róbert keyrir upp hægri kantinn en hann er stoppaður. Afturelding vill skora fleiri.
83. mín
InnEinar Breki Sverrisson
ÚtBjarki Rúnar Jónínuson
83. mín
InnMarko Panic
ÚtJordan Adeyemo
78. mín
Birkir rennir boltanum en Ómar grípur hann.
77. mín
MAAAARK!
Óðinn Bjarkason (stoðsending: Trausti Þráinsson)
Trausti með hornið og Óðinn skallar hann inn.76. mín
Nálæggtttt
Boltinn skoppar inn í teignum, Róbert tekur hjólarann, skotið blokkað en boltinn dettur aftur á hann og hann skýtur framhjá.
75. mín
InnKristinn Ásgeir Þorbergsson
ÚtAtli Rafn Guðbjartsson
75. mín
InnHilmar Óli Viggósson
ÚtHarley Bryn Willard
75. mín
Birkir keyrir upp hægri kantinn en Sigurður Óli nær að setja pressu á hann.
73. mín
InnAri Hrafn Haraldsson
ÚtSævar Atli Hugason
70. mín
Afturelding vill bara meira og meira, þeir hætta ekki.
67. mín
MAAAARK!
Róbert Agnar Daðason (stoðsending: Bjartur Bjarmi Barkarson)
Þetta verður bara verra og verra fyrir gestina. Bjartur fær boltann og sendir svo á Róbert sem er með galopið markið og skorar.66. mín
Birkir kemur með sendingu inn í teig á Georg en Ómar grípur skallan.
62. mín
InnRóbert Agnar Daðason
ÚtJoacim Emil Godhei Holtan
62. mín
InnGunnar Bergmann Sigmarsson
ÚtAxel Óskar Andrésson
61. mín
Hvð ertu að gera
Stefan Dabetic
Jæja þá er það heimskulegasta sem ég hef séð frá leikmanni gerst. Dabetic er í baráttu við Bjart sem fellur og Dabetic ákveður að traðka á hausnum hans Bjarts þegar hann er niðri.59. mín
Geggjað mark
Óðinn Bjarkason (stoðsending: Trausti Þráinsson)
Skyndisókn hjá Aftureldingu, Trausti sendir á Óðinn sem er alveg galopin. Óðinn er rétt fyrir utan teiginn, lætur vaða beint í fjær hornið.58. mín
Bræðurnir Birkir og Aron Elí eru búnir að skipta um kant.
55. mín
InnMarkús Máni Jónsson
ÚtNikola Kristinn Stojanovic
55. mín
Trúðamark aftur
Joacim Emil Godhei Holtan
Hvað er að gerast Ægir? Dabetic er að trúðast inn í teig og Holtan bara tæklar boltann af honum og inn í markið. Ægir er að gefa mörkin á silfurfati.53. mín
Dauðafæri
Axel með skalla, alveg einn, en hann skýtur framhjá.
49. mín
MAAAARK!
Joacim Emil Godhei Holtan
Varnarmaður Ægis kemur með afleita sendingu, ætlar greinilega að koma boltanum burt, Sævar tekur boltann og vippar honum yfir Ómar, Sigurður Óli tæklar boltann en beint í Holtan sem skorar.48. mín
Dauðafæri
Skyndisókn fyrir Aftureldingu. Birkir með sendingu fram fyrir markið á Holtan sem skýtur beint á Ómar Castaldo.
47. mín
Hætta
Birkir kemur með sendingu inn í boxið beint á Óðinn sem skýtur beint á Holtan sem er fyrir og boltinn fer yfir markið.
46. mín
Seinni hálfleikur
Ægismenn byrja.
45. mín


45. mín
ÞÞÞ ekki að flækja þetta, sjáumst eftir korter.
45. mín
MAAAARK!
Bjarki Rúnar Jónínuson
Hár bolti frá Arnari á Holtan sem missir hann til Bjarka. Bjarki keyrir inn í teig Aftureldingar, kemst framhjá Hoti og Trausta, skýtur svo í neðra vinstra hornið, Arnar Daði var ekki nálægt þessum.41. mín
Óðinn kemur með háan bolta en Ómar Castaldo kemst í hann.
37. mín
MAAAARK!
Sævar Atli Hugason (stoðsending: Sævar Atli Hugason)
Birkir rennur boltanum fram fyrir markið, beint á Holtan sem skýtur svo beint inn í markið. Ég afsaka þetta, skrifaði markið fyrst á Holtan en það var rangt, tek þetta á mig.35. mín
Trausti fær boltann við D bogann, lætur vaða en skotið er langt yfir.
34. mín
Adeyemo sleppur í gegn en Andi Hoti setur pressu á hann og Adeyemo missir boltann.
30. mín
Færi
Trausti kemur með sendingu inn í boxið, varnarmaður Ægis nær ekki að koma boltanum burt. Boltinn endar á Holtan en skotið hans er blokkað. Boltinn dettur á Georg sem skallar yfir markið.
29. mín
Birkir Már kemur með fyrirgjöf inn í boxið en Dabetic kemur boltanum burt.
28. mín
Willard ætlar að setja Adeyemo í gegn en sendingin er ekki góð.
27. mín
Trausti tekur aukaspyrnu, ætlar að vaða á markið en boltinn endaði á KFC bílaplaninu.
25. mín
Holtan kemst framhjá vörn Ægis, kemur með fyrirgjöf en hún er of há.
23. mín
Andi Hoti með skalla úr horni, beint á Ómar Castaldo.
18. mín
Horn fyrir Aftureldingu, Axel skallar en varnarmaður Ægis sem er á línunni sparkar boltanum burt.
17. mín
En eitt annað færið
Aron Elí kemur með háan beint á Georg sem sendir fyrir markið á Holtan en varnarmaður Ægis er á undan.
16. mín
Hættaaa
Sigurður Óli kemur með háa sendingu inn í teig, Axel Óskar skallar boltann beint á Willard sem kemst í 1v1 gegn Arnari Daða, en Arnar varði.
15. mín
Dauðafæri
Ægir missir boltan á Holtan sem lætur ekki vaða en sendir á Trausta sem skýtur beint á Ómar.
14. mín
Holtan er að sleppa í gegn en ÞÞÞ dæmir peysutog á hann.
13. mín
Ægir er að reyna að koma sér í færi en vörn Aftureldingar er þétt.
9. mín
Hætta!
Bjarki Rúnar kemur með afletia sendingu til baka á Ómar sem Holtan nær í, rennir boltanum til Óðins sem er ekki nægilega fljótur í hann og missir af honum.
9. mín
Hár bolti inn á teiginn en Trausti nær ekki að pota í boltann og koma honum á markið.
9. mín
???
Dominos var að mæta, skorar Birkir?
8. mín
Hætta
Georg sleppur í gegn og kemur með sendingu fram fyrir markið, Ómar ver sendinguna og Dabetic kemur boltanum úr teignum.
5. mín
Stojanovic með skalla en hann er beint á Arnar Daða.
4. mín
Willard er á hægri kantinum kemur með sendingu inn í boxið en það er enginn þarna til þess að taka við boltanum.
2. mín
Trúðaaaamark
Joacim Emil Godhei Holtan
Sigurður Óli kemur með afleita sendingu til baka á Ómar. Holtan og Ómar fara báðir í boltann og hann skoppar upp í loftið og dettur beint fyrir framan markið þar sem Holtan er og hann skorar í autt markið.1. mín
Georg Bjarnason kemur með sendingu fram fyrir markið en varnarmenn Ægis sparka boltanum burt.
1. mín
Mosfellingar byrja.
0. mín
0. mín
Dómaratríóið
Þórður Þorsteinsson Þórðarson er dómari kvöldsins, Mikael Ívan Axelsson og Tryggvi Elías Hermannsson verða með flöggin.


0. mín
Sjens til þess að komast upp úr fallsæti
Núna er Ægir í 11. sæti sem er fallsæti með 8 stig. Aðeins Völsungur er fyrir neðan þá með 6 stig, en Völsungur er búin að ná í 4 stig í síðustu tveimur leikjum, sem getur verið áhyggjuefni fyrir Ægi. Með sigri í dag getur Ægir komist yfir Grindavík sem er í 10 sæti, en Grindavík á samt leik inni.

0. mín
Sjens til þess að komast í annað sæti
Afturelding er statt í fjórða sæti með 19 stig en þeir eiga leik inni og með sigri geta þeir komist í annað sætið með 22 stig. Núna eru Vestri, Fylkir og Þróttur fyrir ofan Aftureldingu. En þessi þrjú lið töpuðu öll stigum í síðustu umferð. Kemst þá Afturelding með sigri yfir Vestra og Fylki, en það myndi muna einu stigi mill Aftureldingar og Þróttar.

0. mín
Lengjudeildin heilsar!
Heil og sæl kæru lesendur og verið velkomin á Malbikstöðina að Varmá, þar sem heimamenn í Aftureldingu fá Ægi í heimsókn.




