SKÝRSLAN: Sá stóri sá um Skagamenn
Hvað réði úrslitum?
Framarar mættu miklu betur í leikinn og komust nokkuð snemma í 0-2 forystu og gerðu síðan bara vel í að halda henni út allan leikinn. Skagamenn komust varla í færi í leiknum og má segja að þetta hafi verið þægilegur sigur gestanna hér í kvöld.
Bestu leikmenn
1. Atli Þór Jónasson
Skorar einu mörk leiksins og fyrra markið var sérstaklega glæsilegt. Atli var allt í öllu í sóknarleik Fram í dag og á þetta fyllilega skilið.
2. Róbert Hauksson
Framherjaparið var ansi vel spilandi í dag en Róbert leggur upp fyrra mark Alta og sækir síðan vítið sem leiddi að seinna markinu og hann fær því annað sætið.
Atvikið
Fyrra mark leiksins var stórkostlegt. Virkilega góð sókn hjá Fram sem endar með ansi skemmtilegum þríhyrningi hjá Atla og Róberti en síðan klárar Atli færið einnig mjög vel.
Hvað þýða úrslitin?
Úrslitin þýða ansi mikið en Fram er komið með sjö stiga forskot á Blika sem eru sæti fyrir neðan. Bil er farið að myndast sem þýðir það að Fram er komið æi algjört dauðafæri á að tryggja sér Evrópusæti í fyrsta sinn í ansi mörg ár. En hvað varðar ÍA, þá þýða úrslitin það að veika von þeirra fyrir leik um að vera í baráttu um Evrópusæti, er algjörlega horfin. Liðið er núna í 6. sæti með 15 stig, 12 minna en Fram og Keflavík og Stjarnan andandi í hálsmálið á þeim fyri neðan. Nú snýst tímabil ÍA um að berjast um sæti í efri hluta mótsins.
Vondur dagur
Fyrirliði Skagamanna, Rúnar Már var ekki góður í vörninni og var í basli með Atla, sérstaklega fyrsta hálftímann. Einnig sem fyrirliði tekur hann ábyrgð á miklu andleysi Skagamanna í byrjun þessa leiks sem á endanum varð til þess að liðið fékk núll stig í kvöld.
Dómarinn - 6
Pétur dæmdi þennan leik ágætlega en sleppti tveimur til þremur nokkuð augljósum spjöldum og fær því strangheiðarlega sexu í einkunn.



