Fotbolti.net
Besta deildin
@fotboltinet Gylfi Már Þórðarson
Besta karla
HS Orku völlurinn
Keflavík
Keflavík
0 - 0
KR
KR
Dómari: Gunnar Freyr Róbertsson
0. mín
Þriðja liðið
Gunnar Freyr Róbertsson mundar flautuna í kvöld og honum til aðstoðar eru Guðmundur Ingi Bjarnason og Ronnarong Wongmahadthai. Fjórði dómari er Guðmundur Páll Friðbertsson og dómaraeftirlitsmaður er hinn ógleymanlegi Gylfi Þór Orrason.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
0. mín
Daníel Freyr spáir í spilin
Daníel Freyr Kristjánsson, leikmaður Lyngby, hefur lagt spilin á borðið og höfðu þau þetta að segja um leik kvöldins: Keflavík 0 - 4 KR (17:00 á sunnudag) KR halda áfram skemmtilegasta bolta í Evrópu og Dóri á stórleik í markinu og verður með stoðsendingu. Daníel Freyr spáir í 12. umferð Bestu deildarinnar
Mynd: Lyngby
0. mín
Jason Daði í KR
KR-ingar eru búnir að tryggja sér þjónustu Jasons Daða Svanþórssonar fyrir komandi átök í Bestu deildinni en hann er genginn til liðs við þá frá Grimsby Town. Jason Daði í KR (Staðfest)
Mynd: KR
0. mín
Keflavík
Eftir prýðisgóða byrjun á mótinu hefur aðeins hallað undan fæti hjá Keflvíkingum en liðið hefur ekki sigrað í þremur leikjum í röð. Eftir slæm töp gegn ÍBV og FH réttu Keflvíkingar úr kútnum og náðu í gott stig gegn Val á Hlíðarenda í síðustu umferð.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
0. mín
KR
Níu sigrar og tvö jafntefli í tólf leikjum væri alla jafna nógu góður árangur til að tróna á toppnum en KR-ingar sitja 9 stigum á eftir Víkingum í öðru sæti deildarinnar sem hafa leikið einum leik meira. Eftir tap einmitt gegn Víkingum komust KR-ingar aftur á sigurbraut í síðustu umferð með 5-3 sigri á ÍA.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
0. mín
Í fyrri leik liðanna á Meistaravöllum fóru KR-ingar með sigur 3-2 í stórskemmtilegum leik. Arnór Ingvi Traustason skoraði fyrsta mark leiksins og kom KR í 1-0 forystu en Stefán Ljubicic svaraði með tveimur mörkum í síðari hálfleik. Á þremur mínútum undir lok leiks skoruðu svo Stefán Árni Geirsson og Alexander Rafn Pálmason sitt markið hvor og tryggðu KR stigin þrjú.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
0. mín
Verið velkomin til leiks á HS Orku völlinn
Í dag taka Keflvíkingar á móti KR í 12. umferð Bestu deildar karla.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.