Fotbolti.net
@fotboltinetSnæbjört Pálsdóttir
EM U19 kvenna - Riðill B
Bilino Polje Stadium
32 gráður og sól
Austurríki
Austurríki
3 - 0
Ísland
Ísland
Denise Lueger 28'1 - 0Ronja Leidler 45'2 - 0Tina Krassnig 93'3 - 0
Dómari: Tatyana Sorokopudova
Leik lokið!
Austurríki tekur þennan leik 3-0! Stelpurnar okkar áttu alveg sína sénsa en Austurríki var betra liðið í dag. Næsti leikur stelpnanna okkar verður gegn Spáni á miðvikud. nk. klukkan 15:00
96. mín
Ingibjörg tekur hornið sjálf en ekkert kemur úr því
96. mín
Ingibjörg sleppur ein í gegn en setur boltann beint í Vivien
Austurríki
93. mín
MAAAARK!

Tina Krassnig

Þær Austurrísku eru algerlega að gera útum þennan leik, Frizberg, nær boltanum af Sóleyju og laumar honum á Krassnig sem á síðan flott skot fram hjá Herdísi Höllu í markinu
90. mín
A.m.k. 6 mínútur í uppbótartíma
90. mín
Líf nær að setja boltann í markið! en flaggið fer á loft
90. mín
Willimek brýtur á Líf, Rebekka Sif tekur aukaspyrnuna sem er heldur stutt
88. mín
Keckeis með hornið en sem fyrr ná þær ekki að nýta það að neinu viti
88. mín
Helga Rut kemur í veg fyrir hættulegt skot
86. mín
Keckeis með annað horn en ekkert kemur úr því
86. mín
Sóley með aðra frábæra tæklingu og nær að renna sér fyrir hættulega fyrirgjöf
84. mín
Keckeis tekur hornið en það fer í pakkann og frá
84. mín
Frábær tækling frá Sóley Eddu sem kemur í veg fyrir skyndisókn
Austurríki
83. mín
InnTina Krassnig
ÚtKatie Richter
Austurríki
82. mín
InnPiia Willimek
Út Sophie Hoke
80. mín
Ingibjörg kemur sér í frábæra stöðu en nær ekki að stýra boltanum á markið
Austurríki
77. mín
Gult spjald

Katie Richter

Ísland
76. mín
InnAnna Heiða Óskarsdóttir
ÚtFreyja Stefánsdóttir
Ísland
76. mín
InnVédís Ösp Einarsdóttir
ÚtJónína Linnet
Austurríki
76. mín
InnTeresa Frizberg
Út Valentina Illinger
75. mín
Fanney Lísa gerir vel, böðlast inn í teignum og skilur tvær frá Austurríki eftir, missir boltann þó aðeins of langt frá sér og kemur boltanum ekki á samherja
74. mín
Brotið á Ingibjörgu, Helga Rut tekur þetta stutt
73. mín
Þjálfarateymið hjá Spáni er mætt í stúkuna að fylgjast með liðunum en Ísland á sinn næsta leik gegn þeim
71. mín
Vatnspása
Það er mjög heitt í Bosniú og því nauðsynleg vatnspása sem liðin fá
70. mín
Annað horn sem Ingibjörg tekur, það fer yfir allan pakkann og út fyrir endalínu
69. mín
Fanney Lísa tekur horn, inn á nær stöngina en þær ná ekkert að gera úr þessu horni
68. mín
Helga Rut!
Rennir sér fyrir skot hjá Lueger og kemur í veg fyrir mark
66. mín
Herdís Halla!
Grabovac með hættulegt skot sem Herdís Halla nær að verja í stöngina og út, Á síðan aðra frábæra vörslu af stuttu færi!
66. mín
Maja Keckeis tekur spyrnuna en ekkert kemur úr þessu horni
66. mín
Jónína Linnet verst vel, horn sem Austurríki fær
Ísland
64. mín
InnRebekka Sif Brynjarsdóttir
ÚtSunna Rún Sigurðardóttir
Ísland
64. mín
InnFanney Lísa Jóhannesdóttir
ÚtBerglind Freyja Hlynsdóttir
61. mín
Kerschbaumer brýtur á Ingibjörgu, Sóley Edda tekur spyrnuna en engin mætt þar sem spyrnan endar, markspyrna
58. mín
Keckeis tekur spyrnuna en sóknarbrot dæmt á Illinger
57. mín
Lueger reynir fyrirgjöf en Helga Rut kemst fyrir þetta en boltinn út fyrir endalínu
55. mín
Richter tekur spyrnuna, en fer beint í vegginn, boltinn berst svo til Keckeis sem á fínast skot en framhjá
54. mín
aukaspyrna á stórhættulegum stað!
Jónína Linnet brýtur á Lueger við vítateigshornið
48. mín
Berglind Freyja reynir skotið en Vivien ver þetta
46. mín
Freyja sparkar seinni hálfleiknum af stað
45. mín
2-0 fyrir Austurríki í hálfleik
45. mín
Lueger brýtur á Helgu Rut
Austurríki
45. mín
MAAAARK!

Ronja Leidler

Þetta var nú algjör óþarfi, stelpurnar okkar hafa verið að leita að jöfnunarmarki en fá þetta í andlitið, fyrirgjöf sem Herdís Halla er of sein út í og Ronja Leidler setur boltann í autt mark
45. mín
a.m.k. 7 mínútur í uppbótartíma enda hafa verið miklar tafir hérna í fyrri hálfleik
Ísland
45. mín
InnIngibjörg Magnúsdóttir
ÚtEdith Kristín Kristjánsdóttir
44. mín
Edith meiðist hér illa á úlnlið, vonandi ekki brotinn. Lítur allavega ekki vel út. Sendi batakveðjur til Bosníu og Hersagóvínu
43. mín
Sóley Edda tekur aukaspyrnuna, Helga nær ekki til boltans en Berglind hins vegar nær frákastinu en þrumar í varnarmann
Austurríki
42. mín
Gult spjald

Sophie Hoke

Austurríki
38. mín
InnElla Herbst
ÚtAnna Osl
Ísland
35. mín
Gult spjald

Ragnheiður Þórunn Jónsdóttir

Sparkar fætinum hátt upp í hálsinn á Leidler
33. mín
Anna Osl, lendir illa og þarf að fá aðhlynningu
Austurríki
28. mín
MAAAARK!

Denise Lueger

Þetta kom eiginlega bara uppúr engu! Þær falla báðar inn í teignum Jónína og Helga boltinn rúllar og eftirleikurinn er auðveldur fyrir Denise Lueger sem er fyrst á boltann og setur hann framhjá Herdís Höllu
27. mín
Kerschbaumer reynir að finna Illinger inn fyrir en sendingin aðeins of föst
25. mín
Helga Rut með góða varnarvinnu, kemur í veg fyrir góða sókn hjá Austurríki
25. mín
Sunna Rún brýtur, Austurríki taka þetta stutt niður í vörnina
23. mín
Anna Osl hefur leikinn að nýju, mér sýnist það hafa verið skipt um aðstoðardómara
20. mín
Eitthvað vesen á dómurunum hér, sýnist aðstoðardómarinn vera í einhverju veseni með búnaðinn. Smá hlé sem stelpurnar fá til að drekka og kæla sig niður
18. mín
Sóley Edda tekur hornið en Vivien nær á síðustu stundu að kýla boltann af línunni
17. mín
Sóley Edda með fínasta kross þar sem Edith lúrir en Vivien nær þessum
14. mín
Edith komin ein í gegn en flaggið fer á loft
13. mín
Ragnheiður brýtur á Valentinu á miðjum vallahelmingi Íslands, fín aukaspyrna en ekkert kemur þó úr henni
12. mín
Sunna með hornið en Vivien í markinu nær að kýla boltann frá
11. mín
Berglind finnur Ragnheiði inn í teignum en varnarmaður kemst í þetta
10. mín
Anna Osl tekur horn fyrir Austurríki en það endar ofan á marknetinu
7. mín
Berglind nælir í horn, Sunna tekur það sem fyrr tekur það stutt á Berglindi sem þrumar boltanum í varnarmann
5. mín
Sunnar Rún tekur hornið en Austurríki skallar frá
4. mín
Berglind Freyja fær fínustu sendingu inn á teiginn en Anna Osl hreinar útfyrir endalínu, Horn!
4. mín
Það heyrist vel í íslenskum áhorfendum sem virðast vera þeir einu á vellinum. stúkurnar eru annars tómar
1. mín
Austurríki hefur leik og bombar boltanum fram til að pressa svo á íslensku vörnina
0. mín
Þetta fer að hefjast!
Íslensku stelpurnar syngja þjóðsönginn, styttist að leikurinn hefjist Hægt er að horfa á leikinn í beinu streymi á UEFA tv
0. mín
Hvernig hefur leið Íslands verið
Fyrsta umferð: Voru í 3. sæti í riðli A1 í Portúgal 1-2 vs Danmörku, 0-3 vs Portúgal, 5-0 vs Kosovo Önnur umferð: Voru sigurvegarar í riðli A3 sem spiluð var í Serbíu 1-1 vs Finnlandi, 3-2 vs Danmörku, 3-0 vs Serbíu Markahæst er Berglind Freyja Hlynsdóttir með 3 mörk
Mynd: KSI
0. mín
Dómarateymi dagsins
Á flautunni í dag er Tatyana Sorokopudova og henni til halds og trausts verða Aleksandra Mostowska og Angela Domazetovska aðstoðardómarar. Fjórði dómari er svo Merima Celik
0. mín
Fyrsti leikur U19 á EM
Verið hjartanlega velkomin í beina textalýsingu frá fyrsta leik U19 landsliðsins, þar sem þær mæta Austurríki Leikurinn hefst á slaginu 15:00!
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.