Leik lokið!
Keflvíkingar sigra KR 3-2
Frábær sigur Keflvíkinga staðreynd. Skýrsla og viðtöl innan skamms
93. mín
93 mínútur á klukkunni
og stuðningsmenn Keflvíkinga óska eftir því að Gunnar flauti til leiksloka. Hann verður ekki við þeirri beiðni... ennþá
90. mín
KEFLVÍKINGAR KOMAST YFIR!
Alpha Conteh
Á lokamínútu venjulegs leiktíma skorar Alpha Conteh fyrir Keflavík! Skömmu fyrir það kom Eiður Orri Ragnarsson sér í góða stöðu úti í teignum hægra megin og á gott skot að marki sem er varið á línu. Boltinn berst út til Alpha Conteh sem gerir engin mistök og skýtur glæsilegu skoti í markvinkilinn fjær! Eru Keflvíkingar að fara að sigra KR í fyrsta sinn í áraraðir?88. mín
Eldsnöggur Galdur!
Galdur Guðmundsson fær stungusendingu og er sneggri en allir aðrir. Ásgeir Orri lokar ágætlega á hann og Galdur skýtur framhjá.
88. mín
InnGyrðir Hrafn Guðbrandsson
ÚtLuke Morgan Conrad Rae
Síðasta skipting KR
85. mín
Lúmskur Aron
Aron Sigurðarson fær boltann fyrir utan teig Keflavíkur og á skemmtilegt skot sem lendir ofan á markneti Keflavíkur. Þarna mátti litlu muna
82. mín
Stórhætta við mark KR
Axel Ingi kemst framhjá manninum sínum og á skot sem fer af varnarmanni KR og hátt í loft upp. Halldór fer út í boltann en missir af honum, boltinn dettur niður í markteignum og ná KR-ingar að hreinsa frá. Þarna mátti litlu muna
80. mín
InnStefán Árni Geirsson
ÚtEiður Gauti Sæbjörnsson
Tvöföld breyting KR
80. mín
InnSigurður Breki Kárason
ÚtArnór Ingvi Traustason
Tvöföld breyting KR
78. mín
Galdur með góðan sprett
Galdur Guðmundsson átti góðan sprett fyrir KR. Stakk Axel Inga, bakvörð Keflavíkur, af og skapaðist hætta við mark Keflavíkur sem Marin Brigic náði að losa.
75. mín
Halldór Snær!
Frábær markvarsla Halldórs!
Eftir horn barst boltinn til Alpha Conteh fyrir utan teig sem lúðrar boltanum að marki. Halldór skutlar sér og ver glæsilega í horn! Allt uppá 10 þarna hjá Halldóri.
68. mín
InnAxel Ingi Jóhannesson
ÚtAnton Kralj
Tvöföld breyting
68. mín
InnDagur Ingi Valsson
ÚtSindri Snær Magnússon
Tvöföld breyting
68. mín
Keflvíkingar verja á línu
Eftir horn verja Keflvíkingar á línu! KR-ingar halda boltanum, Ástbjörn keyrir á teiginn og fellur við. Gunnar Freyr flautar en dæmir Ástbjörn brotlegan. Fyrir hvað veit ég ekki.
67. mín
Aftur Arnór Ingvi!
Var grunsamlega frír fyrir utan vítateig Keflavíkur, tekur gott skot sem Ásgeir varði vel í horn
64. mín
Allt mjög rólegt þessa stundina
KR með boltann í öftustu varnarlínu og Keflvíkingar bíða átekta
63. mín
InnBirgir Steinn Styrmisson
ÚtMichael Osei Akoto
Fyrsta skipting KR
59. mín
InnEiður Orri Ragnarsson
ÚtMarin Mudrazija
Fyrsta skipting dagsins
Markaskorari Keflavíkur tekur sér sæti á bekkinn
58. mín
Fyrir peysutog
Michael Osei Akoto
55. mín
Þessi leikur helst jafn!
Eiður Gauti Sæbjörnsson
Eiður Gauti Sæbjörnsson jafnar! Einföld uppskrift, frábær bolti frá hægri, beint á pönnuna á Eið sem á fastan skalla í netið! Allt jafnt!52. mín
Keflvíkingar komast yfir!
Marin Mudrazija
Það kemur hornspyrna frá hægri, og verður mikill darraðadans í teignum. Ég sá illa hvað gerðist nákvæmlega en það endaði á því að Marin setti hælinn upp í loft og boltinn endaði í horninu fjær! Keflvíkingar leiða 2-1!50. mín
Fyrsta færi seinni hálfleiks
Orri Hrafn á góðan sprett og á skot sem Ásgeir ver vel. Fyrstu 5 verið nokkuð rólegar
46. mín
InnGaldur Guðmundsson
ÚtAmin Cosic
Skipting í hálfleik
46. mín
Aron Sig sparkar seinni af stað
45. mín
Engu bætt við
Frábær leikur hingað til, KR hafa verið mun meira með boltann en lykilsendingar hafa verið að klikka. Keflvíkingar hafa verið hættulegir þegar þeir hafa hætt sér upp völlinn.
Tökum okkur korters pásu!
44. mín
Arnór Ingvi!
Frábært skot Arnórs Ingva sem stefndi beint upp í skeytina nær en Ásgeir var vel á verði og varði í horn!
Upp úr horninu varð mikill darraðadans sem endaði með skoti rétt yfir mark Keflavíkur. KR-ingar vilja skora fyrir hlé!
44. mín
Eiður Gauti aleinn á vítapunktinum!
Luke Rae með fínasta bolta inn á teig og fer boltinn beint á tánna á Eiði Gauta sem hittir ekki boltann. Þarna hefði hann átt að gera betur!
42. mín
Fyrsta gula í dag
Ástbjörn Þórðarson
Ástbjörn tekur það á sig fyrir brot á miðjum vallarhelmingi Keflavíkur39. mín
Aftur Davíð Helgi
KR-ingar fara upp vinstri kantinn og slur Ásgeir Páll sig illa. Að mér sýndist Aron Sigurðarson keyrir inn á teig en yfirvegaður Davíð Helgi spyrnir boltanum í burtu af tánni á honum. Vel gert.
34. mín
Frábær varnarleikur!
Davíð Helgi Aronsson sýnir frábæra takta!
KR vinna boltann hátt á vellinum og tekur Luke Rae boltann glæsilega með sér með fyrstu snertingu. Hann geysist af stað frá miðlínu með Eið Gauta sér til aðstoðar til hægri gegn Davíði einum Keflvíkinga. Davíð nær að trufla Luke og kemur boltanum í horn. Fyrsta flokks varnarvinna hjá hinum 19 ára gamla Davíði.
32. mín
Amin Cosic í góðri stöðu
Amin Cosic fær boltann á vinstri kantinum og tekur menn á og keyrir inn í boxið. Þar reynir hann fyrirgjöf en varnarmaður Keflvíkinga, að mér sýndist Marin Brigic, hreinsar í horn.
Ekkert kom úr horninu
27. mín
Jónas Guðni!
Stuðningsmenn KR syngja fallega til Jónasar Guðna Sævarssonar, yfirmanns knattspyrnumála hjá Keflavík, en hann lék einnig með KR við góðan orðstír. Gaman að þessu!
26. mín
Leikurinn aðeins að jafnast út
Eftir mikla pressu KR-inga eftir jöfnunarmarkið hafa Keflvíkingar unnið sig aftur inn í leikinn. Að því sögðu þá eru KR enn meira með boltann.
19. mín
Aukaspyrna á vænlegum stað
Alpha Conteh átti ágætis sprett og vinnur aukaspyrnu fyrir Keflavík á vænlegum stað. Muhamed Alghoul tekur spyrnuna í slánna! Frábær spyrna og KR-ingum bjargað af tréverkinu!
18. mín
Pressa KR eykst
Eftir mark Keflavíkur fer leikurinn eingöngu fram á vallarhelmingi Kelfavíkur. Ekkert færi enn þó.
16. mín
Veik köll um víti
Einhverjir KR-ingar í stúkunni vilja víti þegar Eiður Gauti fellur í teignum en Gunnar Freyr dómari gefur aukaspyrnu í hina áttina þar sem boltinn fór í höndina á honum þegar hann féll til jarðar. Mér þótti lítið í þessu og tel að Gunnar hafi gert rétt.
11. mín
Keflvíkingar svara strax
Marin Mudrazija (stoðsending: Muhamed Alghoul)
Hlutirnir eru fljótir að gerast. Muhamed Alghoul á flottan bolta fyrir, beint á pönnuna á Marin Mudrazija sem skallar boltann glæsilega í netið. Allt orðið jafnt!10. mín
Slæm mistök Ásgeirs Orra
Arnór Ingvi Traustason
Aukaspyrna á miðjum vallarhelmingi Keflavíkur, boltanum er spyrnt inn á vítateig Keflavíkur hvar Ásgeir kemur askvaðandi út í teiginn en missir af boltanum. Boltinn fellur fyrir Arnór Ingva sem setur boltann örugglega í netið. 0-19. mín
Sindri Snær með afleita sendingu
Keflvíkingar reyna að spila frá marki en það endar með því að Sindri Snær á skelfilega sendingu, beint á Arnór Ingva sem tekur snertingu og hleður í skot, beint á Ásgeir Orra í markinu.
6. mín
Fyrsta skot Keflavíkur
Það á Stefan Ljubicic. Ásgeir Páll tekur innkast við hornfána, kastar á Mudrazija sem kemur boltanum á Alpha Conteh. Hann gefur boltann fyrir og Stefan tekur boltann á lofti og skýtur framhjá. Fínt skot, en hættulítið.
3. mín
Fyrsta sókn KR
Amin Cosic fær boltann á vinstri kantinum og kemur boltanum á Arnór Ingva sem á skot fyrir utan teig en framhjá. Lítil hætta af því
2. mín
Fyrsta hornspyrnan er komin
og hún er Keflvíkinga. Stefan Ljubicic reyndi fyrirgjöf sem Akoto sparkaði hátt í loft upp og endaði fyrir aftan endamörk.
Spyrnuna tók Muhamed Alghoul og hún var góð. Halldór Snær markvörður gerði vel í að kýla boltann frá marki.
1. mín
Það eru Keflvíkingar sem hefja leik
Muhamed Alghoul sparkar þessu af stað. Keflvíkingar leika að Sláturhúsinu en KR að Hringbrautinni
0. mín
Þetta er að hefjast
Liðin eru komin út á völl og fyrirliðar heilsast
0. mín
Leikið fyrir bæði lið
Arnór Ingvi Traustason, Ástbjörn Þórðarson og Stefan Ljubicic eiga það sameiginlegt að hafa leikið fyrir bæði lið. Reyndar hefur verið ansi mikill samgangur á milli félaganna í gegnum tíðina og hafa t.d. Beitir Ólafsson, Haukur Ingi Guðnason, Baldur Sigurðsson og fleiri leikmenn leikið með báðum liðum. Gaman að því
0. mín
Kristalkúlan hefur talað
Ég geri mér grein fyrir að ég er að leika mér að eldinum en ég hef farið á flesta leiki á heimavelli Keflavíkur í sumar og línan yfir/undir 4 mörk finnst mér og há fyrir grasið þar sem fótboltinn er öðvrisi og leikstíl Keflvíkinga. Undir 4 á Epic er 1.9 í Kef-KR
— Kristalkúlan (@kristalkulan) June 28, 2026
0. mín
Oddsborgarar!
Gunni Odds, fyrrum leikmaður beggja liða, er sjóðheitur á grillinu að græja Oddsborgara sem undirritaður getur staðfest að séu með betri vallarborgurum landsins og þó víða væri leitað!


0. mín
Um hálftími í leik
Liðin eru komin út á völl að hita upp. Það er kalt í Keflavík í dag, um 10 gráður sem er vel undir meðaltalinu í Sunny Kef, skýjað og um 2-3 m/s. Þó það sé kalt þá eru þetta samt sem áður fyrirtaks aðstæður til knattspyrnu.
0. mín
Byrjunarliðin
Þau eru komin inn og má sjá í flipanum hér að ofan
0. mín
Þriðja liðið
Gunnar Freyr Róbertsson mundar flautuna í kvöld og honum til aðstoðar eru Guðmundur Ingi Bjarnason og Ronnarong Wongmahadthai. Fjórði dómari er Guðmundur Páll Friðbertsson og dómaraeftirlitsmaður er hinn ógleymanlegi Gylfi Þór Orrason.

0. mín
Daníel Freyr spáir í spilin
Daníel Freyr Kristjánsson, leikmaður Lyngby, hefur lagt spilin á borðið og höfðu þau þetta að segja um leik kvöldins:
Keflavík 0 - 4 KR (17:00 á sunnudag)
KR halda áfram skemmtilegasta bolta í Evrópu og Dóri á stórleik í markinu og verður með stoðsendingu.

0. mín
Jason Daði í KR
KR-ingar eru búnir að tryggja sér þjónustu Jasons Daða Svanþórssonar fyrir komandi átök í Bestu deildinni en hann er genginn til liðs við þá frá Grimsby Town.

0. mín
Keflavík
Eftir prýðisgóða byrjun á mótinu hefur aðeins hallað undan fæti hjá Keflvíkingum en liðið hefur ekki sigrað í þremur leikjum í röð. Eftir slæm töp gegn ÍBV og FH réttu Keflvíkingar úr kútnum og náðu í gott stig gegn Val á Hlíðarenda í síðustu umferð.

0. mín
KR
Níu sigrar og tvö jafntefli í tólf leikjum væri alla jafna nógu góður árangur til að tróna á toppnum en KR-ingar sitja 9 stigum á eftir Víkingum í öðru sæti deildarinnar sem hafa leikið einum leik meira.
Eftir tap einmitt gegn Víkingum komust KR-ingar aftur á sigurbraut í síðustu umferð með 5-3 sigri á ÍA.

0. mín
Í fyrri leik liðanna á Meistaravöllum fóru KR-ingar með sigur 3-2 í stórskemmtilegum leik.
Arnór Ingvi Traustason skoraði fyrsta mark leiksins og kom KR í 1-0 forystu en Stefán Ljubicic svaraði með tveimur mörkum í síðari hálfleik. Á þremur mínútum undir lok leiks skoruðu svo Stefán Árni Geirsson og Alexander Rafn Pálmason sitt markið hvor og tryggðu KR stigin þrjú.

0. mín
Verið velkomin til leiks á HS Orku völlinn
Í dag taka Keflvíkingar á móti KR í 12. umferð Bestu deildar karla.







