Fotbolti.net
Besta deildin
Ívar Björgvinsson
Besta karla
ELKEM völlurinn
ÍA
ÍA
0 - 2
Fram
Fram
0 - 119' Atli Þór Jónasson0 - 223' Atli Þór Jónasson (víti)
Dómari: Pétur Guðmundsson
Leik lokið!
Framarar vinna hér þægilegan sigur
Sannfærandi úrslit eftir sterka byrjun gestanna. Skýrsla og viðtöl væntanleg síðar í kvöld. Takk fyrir mig.
92. mín
Hætta á teignum!
Hætta í teig Fram í fyrsta sinn í óralangan tíma. Þrisvar með afar skömmu millibili ná Framarar að hreinsa boltanum burt og í það þriðja bjargaði Kennie á línu.
90. mín
Fjórar mínútur í uppbótartíma.
Fram
86. mín
InnSimon Tibbling
ÚtFreyr Sigurðsson
84. mín
Þreföld skipting sem kemur seint í leiknum. Spurning hvort hún skili einhverju.
ÍA
83. mín
InnAron Kristinn Zumbergs
ÚtJón Gísli Eyland Gíslason
ÍA
83. mín
InnBaldvin Þór Berndsen
ÚtRúnar Már S Sigurjónsson
ÍA
83. mín
InnGabríel Snær Gunnarsson
ÚtViktor Jónsson
81. mín
Fram fær horn
Hafa haldið boltanum á vallarhelmingi Skagans nánast allan tímann síðustu tíu mínúturnar.
77. mín
Frábær sending frá Má Ægissyni á teiginn sem Vuk kemst í en skallar fram hjá markinu. Framarar vinna boltann strax aftur og halda vel í hann.
Fram
76. mín
InnBjarni Páll Linnet Runólfsson
ÚtFrederico Bello Saraiva
Fram
76. mín
InnVuk Oskar Dimitrijevic
ÚtRóbert Hauksson
74. mín
Framarar eru að gera vel að halda í boltann og róa leikinn vel niður. Heimamenn ná engan veginn að skapa neina hættu.
70. mín
Lítið um færi í síðari hálfleiknum.
65. mín
Viktor Freyr leggst niður eftir smá samstuð í sókn Skagamanna. Heimamenn hafa aðeins verið að þjarma að Fram svo hann er nú líklegast bara að hægja á tempóinu.
Set 99% líkur á að hann klári leikinn.
61. mín
Kominn smá hiti í leikinn sem hlýtur að fá Skagamenn aðeins á tærnar.
Fram
57. mín
InnJakob Byström
ÚtAtli Þór Jónasson
Markaskorarinn fer útaf.
56. mín
Már Ægisson!
Fær dauðan bolta inni í teig ÍA en einhvern veginn setur hann boltann yfir markið úr afbragðsstöðu. Atli Þór var í baráttunni rétt áður en náði ekki skoti á markið en Már fékk frábært tækifæri til að klára leikinn þarna.
ÍA
55. mín
Gult spjald

Haukur Andri Haraldsson

Keyrir inn í Frey og nær ekki til boltans.
51. mín
Atli Þór liggur eftir og fær aðhlynningu. Virðist eitthvað í kálfa vera að hrjá hann.
49. mín
Frábær sending inn fyrir frá Rúnari sem Steinar eltir en Viktor kemur út úr markinu og skallar boltann útaf.
46. mín
Heimamenn hefja síðari hálfleik
ÍA
46. mín
InnSteinar Þorsteinsson
ÚtÓmar Björn Stefánsson
Lárus með alvöru peppræðu fyrir varamennina sem eiga greinilega að breyta leik heimamanna hér í síðari hálfleiknum.
ÍA
46. mín
InnGísli Eyjólfsson
ÚtÍsak Máni Guðjónsson
45. mín
Hálfleikur
Framarar leiða mjög sanngjarnt en þeir róuðust þó heldur betur seinasta korterið og Skagamenn sýndu smá lífsmark hér síðustu mínútur.
45. mín
Einni mínútu bætt við.
45. mín
Myndir frá Hafliða Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

43. mín
Besta sókn Skagamanna til þessa!
Frábærlega spilað upp hægri kantinn þar sem Markús var allt í öllu og endar á að koma með frábæra sendingu á milli Viktors og varnarlína Framara sem bæði Ísak Máni og Ómar Björn rétt svo missa af.
Fram
41. mín
Gult spjald

Frederico Bello Saraiva

Reynir að ná til boltans en virðst sparka í fótinn á Ómari í staðinn.
37. mín
Lárus Orri segir Ómari og Markús að víxla um kanta. Spurning hvort það blási einhverju lífi í sóknarleik heimamanna.
34. mín
Fyrsta ógn Skagamanna í ansi langan tíma endar með vinstri fótar skoti frá Rúnari langt fyrir utan teig sem fer lengst fram hjá markinu.
31. mín
Skemmtilegir taktar!
Fred keyrir upp völlinn dansandi fram hjá gulum treyjum og tekur laufléttan einn tveir við Atla og síðan litla fintu og er kominn í fínasta færi en Jón Sölvi grípur skot hans.
28. mín
Framarar líklegir!
Atli Þór kemur með góða sendingu inn á teiginn sem Róbert laumar á fjærstöngina en boltinn lekur framhjá.
26. mín
Framarar með öll völd á vellinum
Skagamenn hafa lítið sem ekkert komist áleiðis og gestirnir í leit að þriðja markinu.
Fram
23. mín
ATLI MEÐ TVÖ!

Atli Þór Jónasson

Tekur fasta spyrnu niðri í vinstra hornið sem Jón Sölvi er þó ekki langt frá að verja.
22. mín
Framarar fá víti!
Israel kemur með bolta inn fyrir vörnina sem hvorki Erik Tobias né Jón Sölvi elta í fyrstu og á endanum kemur Jón Sölvi út og tekur Róbert niður.
Fram
19. mín
Frábært spil hjá framherjunum tveimur!

Atli Þór Jónasson (stoðsending: Róbert Hauksson)

Atli fær háan bolta sem hann skallar á Róbert sem skilar honum í fyrsta í hlaupaleiðina hans Atla sem tekur virkilega vel á móti honum og klárar vel í nærhornið.
Virkilega vel spilað á þröngu svæði hjá stóru mönnunum.
16. mín
Róbert Hauksson!
Fær langa sendingu frá Þorra úr vörninni og kemur sér fram fyrir Rúnar Má en skýtur hátt yfir markið með vinstri fæti.
14. mín
Israel með góða sendingu í fyrsta á Fred sem kemur sér í færi en skýtur á nærstöngina þar sem Jón Sölvi sá auðveldlega um þetta í markinu.
10. mín
ÍA í færi!
Fyrsta færi þeirra eftir hraða sókn sem Ægir reynir að stoppa en leikurinn fær að fljóta og Viktor endar á að setja boltann yfir úr þröngu færi.

Pétur tekur Ægi og gefur honum viðvörun en hann hefði líklega átt að sýna honum gula spjaldið fyrir þetta.
9. mín
Framarar aftur!
Freyr með góða sendingu inn fyrir á Atla sem missir af honum en boltinn fer beint á Róbert sem skýtur í Erik Tobias og aftur fyrir.
8. mín
Fred í færi!
Vel spilað hjá Fram og Már kemur með góðan bolta utarlega í teiginn sem Fred skallar í varnarmann og aftur fyrir.
5. mín
Framarar fá tvær hornspyrnur í röð sem Israel tekur en báðar ná ekki yfir fyrsta mann.
4. mín
Fyrsta hornspyrnan er gestanna
Taka aukaspyrnuna stutt og Fred kemur síðan með góðan bolta á fjær sem Viktor Jóns skallar aftur fyrir.
3. mín
Heimamenn hafa varla snert boltann enn sem komið er og fá aukaspyrnu á fínum stað.
1. mín
Leikur hafinn
Gestirnir byrja með boltann
Fyrir leik
Styttist í að þetta hefjist!
Bæði lið komin í búningskelfana eftir upphitun og allt að verða klárt. Aðeins um veðurfarið: það er skýjað á Skaganum en fínasta hitastig og allt bendir til þess að þetta verði veisla!
Fyrir leik
Liðin mættust í fyrstu umferðinni
Sá leikur var þvílík skemmtun en leikar enduðu 3-3 eftir jöfnunarmark frá Kennie Chopart í uppbótartíma. Markús Páll skoraði einnig sín fyrstu mörk fyrir ÍA í þeim leik en hann skoraði tvö mörk gegn sínu uppeldisfélagi og fagnaði vel og innilega.
Mynd: Fótbolti.net - Helgi Gunnarsson

Fyrir leik
Stórkostleg skemmtun endaði með tapi
ÍA heimsótti KR í Vesturbæinn í síðustu umferð og enduðu leikar 5-3 í stórskemmtilegum leik. Skagamenn byrjuðu leikinn af gífurlega miklum krafti og komust tvisvar yfir í fyrri hálfleiknum og jöfnuðu síðan í 3-3 í síðari hálfleik áður en liðið fékk á sig tvö mörk. ÍA er í 6. sæti en með sigri fer liðið upp fyrir Val í töflunni.
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Fyrir leik
Framarar töpuðu illa í síðasta leik
Framarar töpuðu 0-5 fyrir Víkingum á heimavelli í síðustu umferð sem verða að segjast vera ansi slæm úrslit en fram að því var liðið á fljúgandi siglingu. Liðið er í 3. sæti deildarinnar og hefur unnið sex af síðustu átta leikjum.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Dómarateymið
Pétur Guðmundsson fær það hlutverk að dæma leikinn og honum til aðstoðar verða þeir Eðvarð Þór Eðvarðsson og Antoníus Bjarki Halldórsson. Fjórði dómari er Stefán Ragnar Guðlaugsson og dómaraeftirlitsmaður er Viðar Helgason.
Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Fyrir leik
Verið velkomin á Akranes!
Hér verður þráðbein textalýsing á leik ÍA og Fram í 12. umferð Bestu deildar karla sem fer fram á ELKEM vellinum.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.