0. mín
Kári
Káramenn hafa verið spútník-lið 2. deildar í ár, þeir sitja í 3. sæti deildarinnar, en þeim var spáð 11. sæti fyrir tímabilið.
Kári hefur sigrað 4 leiki (KFG, KFA, Dalvík/Reynir og Þróttur V.), gert 5 jafntefli (Hvíti Riddarinn, Víkingur Ó., Selfoss, Fjölnir og Magni), og tapað einum leik gegn Kormáki/Hvöt.
Seinasti leikur Kára var gegn mögnuðum Magnamönnum síðastliðinn laugardag þar sem þeir gerðu 1-1 jafntefli.
Helsti markaskorari Kára á tímabilinu hefur verið Matthías Daði Gunnarsson, en hann hefur skorað 9 mörk og er því markahæsti leikmaður deildarinnar!
Næsti leikur Kára verður á Blönduósvelli gegn Kormáki/Hvöt í Gatorade-bikarnum, en fyrr í sumar gerðu Akurnesingar sér fýluferð og töpuðu sínum eina leik á tímabilinu þar 4-1.
29.04.26 13:00
Spáin fyrir 2. deild karla: 12. - 9. sæti

0. mín
Haukar
Haukamenn sitja í efsta sæti 2. deildar með 20 stig, stigi fyrir ofan Dalvík, og þremur fyrir ofan Kára sem situr í 3. sæti.
Haukar hafa sigrað 6 leiki (Magni, Fjölnir, KFG, KFA, Hvíti Riddarinn og Víkingur Ó), gert 2 jafntefli (Kormákur/Hvöt og Selfoss) og tapað 2 (Þróttur V., og Dalvík/Reynir).
Helsti markaskorari Hauka hefur verið Sigurður Hrannar Þorsteinsson með 7 mörk í 10 leikjum.
Næsti leikur Hauka eftir þennan er fyrsti leikur þeirra í Gatorade-bikarnum gegn KFR á Hvolsvelli, en þeir komast beint inn í 16-liða úrslit eftir að Höttur, mótherji Hauka í 32-liða úrslitum drógu sig úr keppni.


0. mín
Dómaramál
Dómari kvöldsins er Hreinn Magnússon, en á fánunum verða Nour Natan Ninir og Heimir Árni Erlendsson. Dómaraftirlitsmaður er Ólafur Ingi Guðmundsson.

0. mín
Gott kvöld kæru lesendur og verið hjartanlega velkomin í þráðbeina textalýsingu frá BIRTU-vellinum, þar sem Haukar og Kári munu etja kappi í sannkölluðum toppbaráttuslag í 11. umferð í 2. deild karla!





