Fotbolti.net
@fotboltinetSnæbjört Pálsdóttir
EM U19 kvenna - Riðill B
BH Training Centre
Spánn
Spánn
4 - 0
Ísland
Ísland
Celia Segura 19'1 - 0 Rosalía Domínguez 23'2 - 0 Rosalía Domínguez 30'3 - 0 Alba Cerrato 43'4 - 0
Dómari: Deborah Bianchi (ITA)
Leik lokið!
Spánverjarnir taka þetta 4-0
Sanngjarn 4-0 sigur hjá Evrópumeisturunum. Settu 4 í fyrri hálfleik og hvíldu lykilmenn í þeim seinni. Því miður fyrir okkar stelpur þá er möguleiki þeirra á að komast uppúr riðlinum nú enginn en þær eiga sinn síðasta leik á laugardaginn gegn Sviss upp á heiðurinn.
91. mín
Gurtubay með horn en Berglind Freyja nær að skalla þetta frá
90. mín
A.m.k. 3 mínútur í uppbótartíma
90. mín
Líf með fínast bolta fram á við, þar er Elísa mætt í hlaup en López kemur út úr teignum og kemur þessu frá
88. mín
Nákvæmlega sama uppskrift hér! Jónína verst, annað horn sem Gurtubay tekur, bara copy paste af hinu!
87. mín
Jónína Linnet verst vel, horn sem Gurtubay tekur sem fyrr en ekkert sem kemur úr þessu
86. mín
Gurtubay tekur horn, aftur er það stutt, þær ná síðan fyrirgjöfinni á fjær en stelpurnar ná að skalla þetta frá
81. mín
Gurtubay tekur hornið, það er stutt og vel útfært, Domínguez fær sendinguna út og á fyrirgjöf á fjær Redruello nær skallanum en framhjá
80. mín
Rivas reynir að komast framhjá Sóleyju en hún er nautsterk, horn sem Spánn fá
77. mín
Gurtubay tekur sjálf hornið en ekkert kemur úr því
76. mín
Gurtubay komin í hörkufæri en Líf fer að krafti fyrir og boltinn út fyrir endalínu
76. mín
Domínguez brýtur á Edith, Helga Rut tekur spyrnuna en hún er ekki alveg nógu föst
73. mín
Ingibjörg er að koma að krafti inn í leikinn, á hér sprett upp hægri kantinn en nær þó ekki að setja hann fyrir
72. mín
González reynir að finna Santiago en Helga Rut verst henni vel og kemur í veg fyrir þessa sókn
Spánn
71. mín
InnElene Gurtubay
Út Irune Dorado
Spánn tekur enga sénsa og skiptir Dorado út, hún er tæp eftir brotið
69. mín
Hrafnhildur Salka brýtur svo á Dorado og vatnspásan tekur svo við enda er mjög heitt í Bosníu um þessar mundir
68. mín
Redru brýtur á Edith, aukaspyrna sem Helga Rut tekur
Spánn
64. mín
Inn Lucia Rivas
Út Adriana Folgado
62. mín
Escot með lúmkst skot en Herdís er á tánum og hendir sér á þennan bolta
Ísland
61. mín
InnHrafnhildur Salka Pálmadóttir
ÚtRagnheiður Þórunn Jónsdóttir
Ísland
61. mín
InnElísa Bríet Björnsdóttir
ÚtFreyja Stefánsdóttir
61. mín
Dorado reynir skot af löngu færi en þáð er hátt yfir
59. mín
Sóley Edda með frábæran varnarleik og kemur í veg fyrir að Dorado komist í skotfæri
56. mín
Það er allt annað tempó á leiknum núna, þær spænsku auðvitað 4-0 yfir og skiptu út nokkrum af sínum bestu mönnum í hálfleik, meðal annars fyrirliðanum
51. mín
Fínasta sókn hjá stelpunum okkar, líklega þeirra flestu sendinar í leiknum hingað til, Spánn kemst þó inn í og nær að breika á þær en Jónína hárrétt staðsett!
49. mín
Sóley Edda tekur spyrnuna, fínasti bolti inn á teiginn en Redruello fyrst á boltann og nær að skalla boltann frá
48. mín
Líf sterk og nær í fyrstu hornspyrnu stelpnanna
46. mín
Freyja sparkar seinni hálfleiknum aftur af stað!
Spánn
46. mín
Inn Natalia Escot
ÚtCelia Segura
Ísland
46. mín
InnBerglind Freyja Hlynsdóttir
ÚtAnna Heiða Óskarsdóttir
Sóknarsinnaðri skiptingar hjá Íslandi
Ísland
46. mín
InnIngibjörg Magnúsdóttir
ÚtRebekka Sif Brynjarsdóttir
Sóknarsinnaðri skiptingar hjá Íslandi
Spánn
46. mín
Inn Paula Redruello
Út Ainoa Gómez
Spánn
46. mín
Inn Iris Ashley Santiago
Út Alba Cerrato
45. mín
Spánn leiðir 4-0
Hin Ítalska Deborah flautar hér til hálfleiks, þar sem þær spænsku leiða 4-0, þær hafa haft algjöra yfirburði á vellinum
45. mín
Freyja finnur Rebekku í fínni stöðu hún reynir skotið en yfir markið, fínasta tilraun hjá henni!
45. mín
Fínasta sókn hjá stelpunum, Líf með skemmtilega hælsendingu inn á Freyju sem er komin í góða stöðu, setur hann fyrir en þær spænsku ná að hreinsa frá
Spánn
45. mín
Gult spjald

Celia Segura

Dómarinn heldur sömu línu og Segura fær verðskuldað spjald fyrir tæklingu á Jónínu
45. mín
A.m.k. 4 mínútur í uppbótartíma
Ísland
45. mín
Gult spjald

Líf Joostdóttir Van Bemme

Er alltof sein í Moreno
Spánn
43. mín
Þetta var algjör óþarfi!

Alba Cerrato (stoðsending: Martina González)

González á frábæra sendingu inn fyrir á Cerrato, sú tekur boltann með sér og setur boltann svo fastann í nærhornið framhjá Herdísi
42. mín
Líf brýtur á Nerea, Ainoa tekur aukaspyrnuna stutt og spila úr þessu
39. mín
Rebekka Sif heppin að sleppa við gult spjald, var alltof alltof sein að fara í Dorado og var ekki nálægt boltanum
Ísland
36. mín
InnSunna Rún Sigurðardóttir
ÚtArnfríður Auður Arnarsdóttir
Donni neyðist til að gera sína fyrstu breytingu, vonandi er ekkert alvarlegt að hrjá hana Aufí
35. mín
Aufí er sest niður og fær aðhlynningu, stelpurnar ná að taka smá vatnspásu á meðan
Spánn
30. mín
MAAAARK!

Rosalía Domínguez (stoðsending: Emma Moreno)

Moreno, fer framhjá Önnu Heiði og Aufí, setur boltann svo út á Domínguez sem tekur frábært skot framhjá Herdís Höllu í markinu,
29. mín
Líf brýtur á Moreno á miðjum velli, Dorado tekur spyrnuna stutt
24. mín
Beint í vatnspásu eftir markið, ágæt fyrir okkar stelpur að hægja aftur á leiknum og flæðinu
Spánn
23. mín
Flóðgáttirnar brostnar

Rosalía Domínguez (stoðsending: Adriana Folgado)

Nákvæmlega sama uppskrift og síðast nema bara frá hinum kantinum! Bolti frá Segura á Folgado í hlaupinu í hornið, sú á síðan fyrirgjöfina Domínguez sem leggur hann í markið
23. mín
Segura tekur hornið, barátta í teignum, Irune nær svo til boltans reynir skot en beint í íslensku stelpurnar
22. mín
Sóley Edda í baráttu við Segura, horn
21. mín
ÚFFF
Gómez með rosalega fyrirgjöf finnur Cerrato aleina en hún setur boltann framhjá og yfir úr svona tveggja metra færi!
Spánn
19. mín
MAAAARK!

Celia Segura

Þetta var alltof auðvelt, Dominguez finnur Cerrato í hlaupinu, hún tekur hann með sér og setur hann faan niðri fyrir svo Segura sem kemur á hlupinu þarf ekki annað en setja tánna í boltann til að setja hann framhjá Herdísi í markinu
18. mín
Freyja komin í ágætis stöðu en flaggið fer á loft
17. mín
Gómez reynir skotið, fer í varnarmann en berst svo til Moreno sem reynir einnig skot á markið en framhjá!
15. mín
Freyja liggur eftir og fær aðhlynningu, vonandi er þetta ekkert alvarlegt
14. mín
Segura kemst á skrið upp kantinn, reynir fyrirgjöf en Cerrato er ekki mætt og boltinn út fyrir endalínu
13. mín
Domínguez fær boltann inn fyrir en flaggið góða fer á loft
12. mín
Gómez finnur Domínguez í hlaupinu, hún setur hann svo fyrir en Helga Rut kemst í boltann!
9. mín
Íslensku stelpurnar eru þéttar og eru að verjast vel, þær spænsku pressa grimmt
9. mín
Segura með horn fyrir Spán en spyrnan yfir allan pakkann og ekkert merkilegt kemur úr þessu
6. mín
Domínguez fær frábæra sendingu inn fyrir, er á undan Önnu Heiðu, setur boltann á Gómez sem reynir skotið en það er bæði kraftlítið og beint á Herdísi
3. mín
Segura fær boltann á hættulegum stað inn í teignum, reynir skotið en beint í varnarmann
1. mín
Þær spænsku sparka þessu af stað!
0. mín
Þetta fer að hefjast!
Stelpurnar syngja með þjóðsöngnum og þetta er allt eftir plani! Minni á að hægt er að horfa á leikinn í beinni útsendingu HÉR
0. mín
Sjö leikmenn í spænska hópnum eiga möguleika á þriðja Evrópumeistaratitlinum í röð en þær unnu bæði U17 EM árið 2024 og U19 EM í fyrra. Fyrirliðinn Ainoa Gómez og þær Laia López, Alba Cerrato, Celia Segura, Emma Moreno, Amaya García og Irune Dorado
0. mín
Svakaleg gæði í spænska liðinu
Spænska U19 ára kvennalandsliðið sló í fyrra tvö met í eigu Þjóðverja þegar liðið tryggði sér titilinn í sjöunda sinn og fjórða árið í röð.
0. mín
Byrjunarliðin klár!
Halldór Jón Sigurðsson, Donni eins og hann er alltaf kallaður, gerir 2x breytingar á byrjunarliðinu frá síðasta leik. Inn í liðið koma Rebekka Sif Þrastardóttir og Anna Heiða Óskarsdóttir. Á bekkinn setjast Sunna Rún Sigurðardóttir og Berglind Freyja Hlynsdóttir.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
0. mín
Spánn
Ríkjandi Evrópumeistarar Spánn gerðu óvænt 2-2 jafntefli gegn Sviss í fyrsta leik. Fyrirfram eru þær taldar sigurstranglegastar á lokamótinu og því voru það mjög óvænt úrslit að Sviss næði að stela af þeim stigi. Við getum því alveg átt von á mjög aggressívum Spánverjum í þessum leik en þær þurfa að sækja sigur, ætli þær sér að sigra riðilinn.
Mynd: UEFA
0. mín
Ísland
Stelpurnar okkar lutu í lægra haldi 3-0 fyrir liði Austurríkis í síðasta leik. Úrslitin segja þó ekki alla söguna en íslensku stelpurnar fengu urmul horna og áttu nokkur dauðafæri til að setja mark, allt kom þó fyrir ekki að þessu sinni! Þær eiga því inni að ná mörkum á þessu móti og vonandi fáum við að sjá það í dag.
Mynd: UEFA
0. mín
Dómarateymi dagsins
Á flautunni í dag er ítalski dómarinn Deborah Bianchi og henni til halds og trausts verða Liliya Dumbalakova frá Búlgaríu og hin tékkneska Tereza Hessova aðstoðardómarar. Fjórði dómari er svo Michaela Pachtová einnig frá Tékklandi
0. mín
U19 á lokamóti EM
Verið hjartanlega velkomin í beina textalýsingu frá öðrum leik U19 landsliðsins á lokamóti EM gegn ríkjandi Evrópumeisturum Spánar Leikurinn hefst á slaginu 15:00!
Mynd: KSI
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.