Fotbolti.net
Hafþór Örn Laursen
Hafþór Örn Laursen
2. deild karla
BIRTU völlurinn
Haukar
Haukar
4 - 1
Kári
Kári
Sigurður Hrannar Þorsteinsson (víti) 20'1 - 0Sigurður Hrannar Þorsteinsson 25'2 - 02 - 157' Jón Þór FinnbogasonGabríel Aron Sævarsson 67'3 - 1Daði Snær Ingason 90'4 - 1
Dómari: Hreinn Magnússon

SKÝRSLAN: Haukar tróna á toppnum

Hvað réði úrslitum?

Haukar voru frábærir í dag, stóðu sig mjög vel í fyrri hálfleik en róuðu sig aðeins í seinni hálfleik. Manni fannst Káraliðið smá bitlaust í fyrri hálfleik en náðu sér í seinni hálfleik og ógnuðu soldið.

Bestu leikmenn

1. Sigurður Hrannar Þorsteinsson

Skorar tvö mörk, leitaði að þrennunni vel og lengi, og er jafn markahæsti leikmaður deildarinnar eftir þennan leik með 9 mörk.

2. Daði Snær Ingason

Fyrirliðinn var allt í öllu í dag, stóð sig frábærlega í dag.

Atvikið

Kannski þegar Hreinn dæmir aukaspyrnu fyrir Kára þegar Haukar voru í dauðafæri. Leikmaður Hauka tæklar boltann í markmann Kára sem lendir á honum, boltinn lendir svo á öðrum leikmanni Hauka sem skýtur honum inn. Millísekúndunni áður en hann fer inn flautar Hreinn svo.

Hvað þýða úrslitin?

Haukar sitja í efsta sæti með 23 stig eftir 11 umferðir. Kár situr í 3. sæti með 17 stig, stigataflan óbreytt.

Vondur dagur

Það var enginn sem átti eitthvern slæman dag í liðunum en set spurningarmerki á Hrein. Ég er mikill aðdáandi að láta leikinn fljóta og rúlla en þarna voru nokkur dæmi um það að hann lét einhver brot Kára slæda en síðan gera Haukar það sama og hann dæmir brot. stórfurðulegt að mínu mati

Dómarinn - 3

Hreinn ekki upp á sitt besta. Maður hefur séð hann betri í sumar. Margt furðulegt sem hann dæmir og dæmir ekki á.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.