Leik lokið!
Jafntefli í skemmtilegum leik
95. mín
Aukaspyrna
Aukaspyrnan inn í teig, skallað frá og flautað af.
95. mín
Þrjú brot
KR brýtur þrisvar á Þórsurum rétt utan teigs og við þriðja brot er flautað
94. mín
Horn KR
Fer aftur fyrir
93. mín
Víti ??
Sigurpáll tekur Sigfús niður um leið og hann ver. Ekkert dæmt
92. mín
Bekkur
Einhver á bekknum hjá Þór
90. mín
viðbótartími 4 mín
90. mín
Dómgæsla
Þór vinnur boltann og eiga kost á hrarðri sókn en þá flautar dómarinn við litla hrifningu
88. mín
Gabríel rekinn af velli
Gabríel Hrannar Eyjólfsson
Fær sitt seinna gula.87. mín
Liggur á Þór
KR ætlar að sækja sigurmarkið og reyna skot af löngu færi en yfir
86. mín
InnElvar Baldvinsson
ÚtKristófer Kristjánsson
Tvöföld skipting hjá Þór
86. mín
InnHermann Helgi Rúnarsson
ÚtChristian Jakobsen
Tvöföld skipting hjá Þór
84. mín
KR jafnar
Gabríel Hrannar Eyjólfsson
Gabríel fær boltann inni í teig og hamrar honum yfir Aron Birki og upp í þaknetið. Þórsarar voru einum færri þarna83. mín
Spjald fyrir mótmæli
Sigurður Heiðar Höskuldsson
Siggi búinn að fá nóg af dómgæslunni80. mín
horn KR og færi Þór
KR fær horn frá hægri og á meðan lítur út fyrir að Cosic brjóti á Greko og allt verður vitlaust. Ekkert dæmt. Þórsarar hreinsa frá og Kristófer vinnur boltann og brunar með hann upp. Sendir á Grego inni í teig en KR kemst fyrir skotið
79. mín
InnFannar Daði Malmquist Gíslason
ÚtSverrir Páll Ingason
78. mín
Horn KR
KR fær horn frá vinstri og spilar úr því. Fyrirgjöf svo aftur fyrir
77. mín
Aukaspyrnan
KR spilaði úr aukaspyrnunni og skjóta en Þórsarar komast upp völlinn í kjölfarið en Sigfús hangir of lengi á boltanum.
77. mín
Aukaspyrna KR
Aukaspyrna utan teigs vinstra megin. Þórsurum finnst KR ingar fá full mikið fyrir lítið
75. mín
Gult spjald
Gabríel Hrannar Eyjólfsson
Gabríel fær að líta gula spjaldið.74. mín
Aukaspyrna
KR spilar úr henni
73. mín
Rigning
Það er kominn dágóður skúr hér og rignir inn á tölvuna þannig að það ég þarf að flýja innar skúrinn og sé ekkert lengur.
71. mín
3 - 2
Aron Sigurðarson
KR minnka muninn úr frekar vafasamri vítaspyrnu þar sem Þórsarinn var að stökkva upp í skalla með hendur aðeins frá líkamanum en boltinn fer yfir hann og KR ingur skallar beint í hendina. Hönd í eðlilegri stöðu70. mín
Víti
Skallað í hendi Þórsara og dæmt víti
69. mín
Frábær tækling
KR ingar eru við það að sleppa í gegn eftir klafs en Ási nær að komast fyrir
68. mín
Dauðafæri
Fyrirgjöf frá vinstri beint á Arnór Ingva sem er við fjærstöngina. Hann hittir boltann vel en Aron er vel á verði og ver stórkostlega.
64. mín
InnHjalti Sigurðsson
ÚtGaldur Guðmundsson
64. mín
InnAmin Cosic
ÚtHrafn Tómasson
61. mín
Skot og horn
Eiður leggur hann á Arnór sem á skot í varnarmann og í horn. Úr horninu verður ekkert.
60. mín
Skot
Orri Hrafn með skot en beint á Aron Birki
58. mín
Aukaspyrna Þór
Luke Rae tekur Birgi Ómar niður rétt utan teigs vinstra megin. Einar tekur spyrnuna á fjær en yfir allan pakkann
57. mín
Hættulegt færi
Akoto á góða fyrirgjöf frá hægri á fjærstöng þar sem Arnór kemur og skallar naumlega framhjá
57. mín
InnBirgir Ómar Hlynsson
ÚtVilhelm Ottó Biering Ottósson
54. mín
Atlaga
KR gerir núna harða atlögu hvað eftir annað á mark Þórs. Aron Birkir bjargaði tveimur skotum í sömu sókninni og Þór kom boltanum í burtu en KR vinnur hann jafnharðan og hefur nýja atlögu.
54. mín
Skot
KR leikur boltanum fyrir utan teig Þórs og Aron á skot yfir
52. mín
Luke með skot í bak á Þórsara og aftur fyrir. Horn frá vinstri sem Þórsarar hreinsa í burtu
50. mín
Aukaspyrna KR
KR fær aukaspyrnu rétt utan teigs vinstra megin. Aron tekur en beint í lúkurnar á Aroni Birki
48. mín
Færi
Að því sögðu bruna Þórsarar upp og Sigfús nær fínu skoti í utanverða stöngina úr ágætis færi
46. mín
Pressan hjá KR var töluverð í fyrri hálfleik en þá gátu heimamenn losað um með því að senda fram með vindi. Nú hafa þeir hann ekki og það gæti verið erfitt næstu 45 mínútur að vera Þórsari
46. mín
Seinni hálfleikur hafinn
45. mín
InnEiður Gauti Sæbjörnsson
ÚtSigurður Breki Kárason
KR skipti í hálfleik
45. mín
Í hálfleik
Tvær fréttir:
Atli Sigurjóns verður væntanlega vonandi hugsanlega kannski með í næsta leik.
og
Þór er búið að skora þrjú en ekki ein stoðsending.
Atli Sigurjóns verður væntanlega vonandi hugsanlega kannski með í næsta leik.
og
Þór er búið að skora þrjú en ekki ein stoðsending.
45. mín
viðbótartími 1 mínúta
44. mín
Færi - Þór
Þórsarar vinna boltann við vítateig KR og spila honum fyrir markið þar sem Kristófer á skot yfir.
42. mín
Horn Þór
Þórsarar fá horn frá hægri. Vilhelm mætir aftur og tekur stutt en dæmt brot á Þórsarar inni í teig
40. mín
Fyrirgjöf
KR kemst upp vinstra megin og senda fyrir en Aron hirðir boltann
39. mín
Horn frá hægri KR
Þórsarar vinna boltann og reyna strax skot en full laust.
39. mín
Horn
KR fær horn eftir að Þórsarar bjarga á línu
35. mín
Skyndisókn Þór
Sigfús fær boltann á eigin vallarhelmingi og brunar upp með Bjarna sér á vinstri hlið. Sigfús sendir of seint og KR vinnur boltann
32. mín
Mikil viðbótar tölfræði fyrir áskrifendur

31. mín
Aukaspyrna
Þór fær aukaspyrnu út við hliðarlínu mitt á vallarhelmingi KR. Einar tekur og setur boltann beint á Sigurpál
30. mín
KR minnkar muninn
Galdur Guðmundsson
KR kemst upp hægra megin, sá ekki hver átti stoðsendinguna, og Galdur vinnur boltann rétt á undan Aroni en Þórsarar vilja meina að Aron hafi verið búinn að ná boltanum.30. mín
Dauðafæri
Kristófer kemst inn í sendingu KR við eigin vítateig og rekur boltann upp apllan völlinn og á gott skot en Sigurpáll ver vel
27. mín
Horn KR
KR á horn frá vinstri sem ekkert verður úr
26. mín
Dauðafæri
Eftir stutt spil KR inni í teig fær Aron boltann við markteig óvaldaður en setur hann yfir markið
23. mín
Horn Þór
Horn frá hægri. Vilhelm tekur og snýr að marki og Sigurpáll á fullt í fangi með þennan bolta en nær að slá hann út.
18. mín
Góð nýting
KR hefur verið með boltann meira og minna en ekki skapað neitt færi. Þórsarar hafa hins vegar komist þrisvar yfir miðju í almennilegar sóknir og skorað þrjú mörk. Eitt reyndar án þess að fara yfir miðju
17. mín
Aukaspyrna KR
KR á aukaspyrnu rétt utan teigs hægra megin. Boltinn berst á fjærsvæðið en Aron á ekki í vandræðum með laust skot.
14. mín
MARKVÖRÐUR ÞÓRS ER AÐ SKORA FRÁ EIGIN VALLARHELMINGI!
Aron Birkir Stefánsson
Þórsarar fá aukaspyrnu á miðjum eigin vallarhelming og Aron Birkir lætur vaða yfir Sigurpál sem stendur eins og KRingar vilja vel fyrir utan teig. Frábært skot10. mín
MARK BEINT ÚR HORNI
Einar Freyr Halldórsson
Horn frá vinstri. Einar snýr boltanum inn að marki og yfir Sigurpál.5. mín
Horn - KR
Horn frá vinstri. Þórsarar hreinsa frá og fá svo útspark eftir að stungusending fer aftur fyrir
2. mín
Strax mark - HRIKALEGA KLAUFALEGT HJÁ KR!!!
Ágúst Eðvald Hlynsson
Þórsarar senda boltann upp hægri kantinn og Finnur Tómas bíður eftir honum. Ágúst setur pressu á Finn sem á arfaslaka sendingu til baka framhjá Sigurpáli í markinu og í stöngina. Ágúst hélt áfram hlaupinu og hirti frákastið einn í heiminum og renndi honum í markiðFyrir leik
Byrjað
Þá er þetta komið af stað. Þórsarar spila undan vindi í fyrri hálfleik og vona að veðurguðinn slaki á í seinni hálfleik.
Fyrir leik
Treyjur Þórsara
Í dag spila Þórsarar í treyjum til stuðnings "Gedda" sem er að keppast að því að koma heilsunni í lag. Þessar treyjur voru seldar á Akureyri, og víðar, og rann allur hagnaður til Gedda og fjölskyldu. Frábært framtak hjá framtakssömum Þórsurum og sýndi hvernig Þórsfjölskyldan heldur saman.
Fyrir leik
Byrjunarliðin
KR - ingar gera fjórar breytingar. Þeir skipta um markmann og fær Sigurpáll Sören traustið en Halldór Snær sest á bekkinn. Ásbjörn Þórðarson og Amin Cosic fara einnig á bekkinn ásamt Eiði Gauta. Í þeirra stað koma þeir Gabríel Hrannar, Sigurður Breki og Galdur.
Fyrir leik
Byrjunarliðin
Þórsarar gera tvær breytingar á sínu liði. Ragnar Óli kemur inn í stað Affi sem er í leikbanni. Einnig kemur Sigfús Fannar inn í stað Fannars Daða
Fyrir leik
KR skora að mínu alltaf 3 mörk eða meira á eftir, stuðullinn á yfir 3 er 1,75 á Epic. Yfir 4,5 mörk í leiknum er á 1,95 sem er einnig gott veðmál.
— Kristalkúlan (@kristalkulan) July 2, 2026
Fyrir leik
Tvær breytingar hjá Þór
Siggi Höskulds, þjálfari Þórs, gerir tvær breytingar á sínu liði frá leiknum gegn Val. Yann Emmanuel Affi tekur út leikbann og Fannar Daði Malmquist tekur sér sæti á bekknum. Inn í liðið koma þeir Ragnar Óli Ragnarsson og Sigfús Fannar Gunnarsson.
Fyrir leik
KR gerir fjórar breytingar - Sigurpáll í markinu
Óskar Hrafn, þjálfari KR, gerir fjórar Breytingar á sínu liði frá leiknum gegn Keflavík. Sigurpáll Sören Ingólfsson stendur vaktina á milli stanganna og Halldór Snær Georgsson tekur sér sæti á bekknum. Þeir Eiður Gauti Sæbjörnsson, Ástbjörn Þórðarson og Amin Cosic taka sér sömuleiðis sæti á bekknum. Inn í liðið koma þeir Galdur Guðmundsson, Gabríel Hrannar Eyjólfsson og Sigurður Breki Kárason.


Fyrir leik
Fara Akureyrarliðin saman niður?
Í Innkastinu var rætt um slæmt gengi hjá Akureyrarliðunum Þór og KA í Bestu deildinni.
Fyrir leik
Þórsarar spila í sérstökum treyjum
Fyrir leik
Amin Cosic að kveðja
Amin Cosic, leikmaður KR, mun að öllum líkindum spila sinn síðasta leik fyrir KR áður en hann heldur út til Viking Stavanger í Noregi.
Verðmiðinn á Amin er sagður vera um 80 milljónir króna og yrði það raunin væri hann einn dýrasti leikmaður sem keyptur hefur verið frá Íslandi.

Verðmiðinn á Amin er sagður vera um 80 milljónir króna og yrði það raunin væri hann einn dýrasti leikmaður sem keyptur hefur verið frá Íslandi.

Fyrir leik
Byrjunarliðin
Byrjunarliðin eru ekki komin inn en Þórsarar verða að gera breytingu vegna leikbanns hjá Affi. Líklegt þykir að Þórsarar verði í 5 manna varnarlínu og reyni þannig að halda aftur af markaóðum vesturbæingum.
Fyrir leik
Staðan í deildinni
Enn og aftur er leikur þar sem mikið er undir hjá báðum liðum.
Annars vegar er það heimaliðið sem hreinlega má ekki við því að tapa. Verður helst að hirða 3 stig til að koma sér upp að hlið KA og upp fyrir FH.
Hins vegar er það K.R. sem er í harðri baráttu við Fram um annað sætið og að vera vel birgt af stigum ef Víkingar misstíga sig.
Annars vegar er það heimaliðið sem hreinlega má ekki við því að tapa. Verður helst að hirða 3 stig til að koma sér upp að hlið KA og upp fyrir FH.
Hins vegar er það K.R. sem er í harðri baráttu við Fram um annað sætið og að vera vel birgt af stigum ef Víkingar misstíga sig.
Fyrir leik
Umferðin framundan
fimmtudagur 2. júlí
17:00 Þór-KR (VÍS völlurinn)
19:15 Víkingur R.-KA (Víkingsvöllur)
föstudagur 3. júlí
19:15 FH-Stjarnan (Kaplakrikavöllur)
laugardagur 4. júlí
14:00 ÍA-Breiðablik (ELKEM völlurinn)
16:00 ÍBV-Valur (Hásteinsvöllur)
mánudagur 6. júlí
19:15 Keflavík-Fram (HS Orku völlurinn)
17:00 Þór-KR (VÍS völlurinn)
19:15 Víkingur R.-KA (Víkingsvöllur)
föstudagur 3. júlí
19:15 FH-Stjarnan (Kaplakrikavöllur)
laugardagur 4. júlí
14:00 ÍA-Breiðablik (ELKEM völlurinn)
16:00 ÍBV-Valur (Hásteinsvöllur)
mánudagur 6. júlí
19:15 Keflavík-Fram (HS Orku völlurinn)





