Fotbolti.net
Besta deildin
Sigurður Bibbi
Besta karla
VÍS völlurinn
Á Þórsvellinum er strekkingur að sunnan þannig að þeir sem spila í átt að Boganum eru undan vindi.
Þór
Þór
3 - 3
KR
KR
Ágúst Eðvald Hlynsson 2'1 - 0Einar Freyr Halldórsson 10'2 - 0Aron Birkir Stefánsson 14'3 - 03 - 130' Galdur Guðmundsson3 - 271' Aron Sigurðarson (víti)3 - 384' Gabríel Hrannar Eyjólfsson88' Gabríel Hrannar Eyjólfsson
Dómari: Jóhann Ingi Jónsson
Myndir: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

SKÝRSLAN: Þrautseigju jafntefli í líflegum leik á Þórsvellinum

Hvað réði úrslitum?

Vindurinn réði úrslitum í þessum leik. KR lá í sókn eiginlega allan tímann en Þórsarar fengu eiginlega stoðsendingu frá vindinum í tveimur mörkum, samt ekki Birki Má. Þór spilaði með vindi í fyrri og KR í seinni.

Bestu leikmenn

1. Aron Birkir

Fékk þessa stórkostlega hugmynd að láta vaða af 60 metra færi og framkvæma það og það heppnaðist. Auk þess varði hann vel í nokkrum dauðafærum.

2. Aron nafni hans Sigurðarson

Aron skoraði úr vítaspyrnu og dró vagninn í pressu KR-inga. Var mjög ógnandi og lét mikið til sín taka.

Atvikið

Öll mörk Þórs voru eiginlega atvik. Misskilningur hjá KR, beint úr horni og beint úr aukaspyrnu af eigin vallarhelming.

Hvað þýða úrslitin?

Úrslitin hafa meiri þýðingu fyrir Þór þar sem þeir komu sér upp fyrir FH í 8 stig og nálguðust KA. KR situr sem fyrr í öðru sætinu.

Vondur dagur

Hræðilegur dagur fyrir Sigurpál Sören sem fékk traustið í markinu. Átti tvö mörk af þremur, reyndar tvö draumamörk, og það þriðja var misskilningur á milli hans og varnarmanns.

Dómarinn - 4

Dómarinn réði engan veginn við þennan leik. Bar fullmikla virðingu fyrir gestaliðinu og dæmdi aukaspyrnur sem ekki voru dæmdar í hina áttina. Vítið var vafasamt og svipuð vafasöm atvik hinum megin fengu að "slæda". Hann hefur oft eða kannski alltaf átt betri dag.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.