Leik lokið!
Fjörugum leik lokið!
Ég þakka fyrir mig, skýrsla og viðtöl væntanleg síðar í dag.
93. mín
Stoppar skyndisókn
Gísli Alexander Ágústsson
92. mín
Senur á Leiknisvelli!
Tryggvi Grani Jóhannsson (stoðsending: Xabier Cardenas Anorga)
Xabier kemst upp að endamörkum og kemur með fasta sendingu með jörðinni á Tryggva sem klárar vel.90. mín
4 mín í uppbót
89. mín
Horn fyrir Völsung
Boltinn kemur inn á teiginn en það er hreinsað frá.
89. mín
Peysutog á miðjum velli
Árni Elvar Árnason
86. mín
Sparkar í Bogdan
Tryggvi Grani Jóhannsson
85. mín
5 mínútur eftir
Fáum við spennandi mínútur í lokin?
82. mín
InnTryggvi Grani Jóhannsson
ÚtJuan Guardia Hermida
Sóknarsinnuð skipting
80. mín
InnViktor Andri Pétursson
ÚtDagur Ingi Hammer Gunnarsson
80. mín
InnAron Skúli Brynjarsson
ÚtDagur Ingi Hammer Gunnarsson
80. mín
HÆTTA!
Leiknismenn að spila vel og það kemur baneitruð sending inn á teiginn sem enginn kemst í.
76. mín
Peysutog
Aron Bjarki Kristjánsson
74. mín
Þetta lá í loftinu!
Dagur Ingi Hammer Gunnarsson (stoðsending: Anton Fannar Kjartansson)
Anton með sniðuga sendingu á Dag Inga sem klárar vel í fjær.72. mín
Tómas að verja vel!
Axel í góðu færi en skýtur beint á markið og Tómas ver með fætinum.
70. mín
InnÁrni Elvar Árnason
ÚtMarko Veselinovic
Marko meiddist við brotið
70. mín
Of seinn í tæklinguna
Marko Veselinovic
69. mín
Axel!
Axel kemst í gegn og tekur skot sem Tómas ver vel með fætinum.
67. mín
Annað mark beint úr horni!
Gísli Alexander Ágústsson
Gísli tekur spyrnuna og boltinn flýgur inn! Mér sýndist Xabier skalla boltann og í netið en boltinn var á leiðinni í markið. Ég skrái því markið á Gísla. Set stórt spurningamerki á markmanninn.66. mín
Leiknismenn vinna horn
65. mín
Völsungar vilja víti!
Elfar fellur við í teignum. Mér fannst lítið í þessu.
63. mín
InnJóhann Kanfory Tjörvason
ÚtÞorsteinn Emil Jónsson
63. mín
InnGísli Alexander Ágústsson
ÚtRúrik Gunnarsson
58. mín
InnDavíð Leó Lund
ÚtGestur Aron Sörensson
58. mín
InnFernando Jimenez Arranz
ÚtAndri V. Bergmann Steingrímsson
55. mín
Annað horn fyrir Völsung
Brot dæmt fyrir Leiknismenn eftir hornið.
54. mín
Horn fyrir Völsung
Boltinn flýgur yfir allan pakkann og ekkert verður úr þessu.
53. mín
Traðkar ofan á leikmann
Bogdan Bogdanovic
48. mín
Völlarar leiða!
Alvöru kollspyrna!
Elfar Árni Aðalsteinsson (stoðsending: Elmar Örn Guðmundsson)
Elmar sendir háa fyrirgjöf inn á teiginn og Elfar Árni skallar boltann niður í jörðina og inn.Völlarar leiða!
47. mín
Shkelzen að gera vel
Shkelzen kemst í fínt skotfæri en skotið er langt framhjá.
46. mín
Leiknismenn byrja með boltann í seinni
46. mín
InnTómas Bjarni Baldursson
ÚtJochum Magnússon
Tómas Bjarni er að koma inn á í markið
Jochum gat ekki haldið leik áfram. Þetta verður áhugavert.
45. mín
Flautað til hálfleiks
Leiknismenn sóttu svo sannarlega í sig veðrið eftir að hafa lent undir. Völsungar duttu aðeins niður um gír eftir að hafa komist yfir.
45. mín
1-1!
Allt jafnt á nýjan leik!
Anton Fannar Kjartansson
Anton Fannar fær sendinguna, hann er óvaldaður við markmannsteiginn og þarf aðeins að pota boltanum í autt markið.1-1!
45. mín
Of seinn í tæklingu
Elmar Örn Guðmundsson
45. mín
7 mínútur í uppbót enda miklar tafir
39. mín
Einn á auðum sjó!
Gestur í frábæru færi inni á teignum en skotið er framhjá.
37. mín
Leiknismenn að fá horn
Boltinn kemur inn á teiginn en það er hreinsað frá.
34. mín
Hlaup og skot
Bogdan tekur djúpt hlaup, fær boltann inni á teignum en skotið er yfir úr þröngu færi.
32. mín
Aukaspyrna fyrir Leikni á ágætum stað
Rúrik tekur óvænt skot beint úr aukaspyrnunni en Jochum ver þægilega.
28. mín
DAUÐAFÆRI!
Dagur gerir vel og kemst á milli tveggja manna inni á teignum en skotið er beint á Jochum í markinu.
Leiknismenn að banka.
Leiknismenn að banka.
25. mín
Jafn leikur
Þrátt fyrir markið hafa þessar fyrstu 25 verið frekar jafnar. Bæði lið eru að spila vel og að skapa sér færi.
20. mín
Gott færi og horn
Dagur Ingi í góðu færi inni á teignum en Jochum ver í horn. Ekkert verður úr horninu.
18. mín
InnAron Bjarki Kristjánsson
ÚtSteinþór Freyr Þorsteinsson
Steinþór hefur lokið leik
17. mín
Steinþór liggur eftir og fær aðhlynningu
15. mín
Gott spil og skot
Shkelzen og Dagur spila vel saman, sóknin endar í ágætis skoti rétt fyrir utan teig sem Jochum ver.
12. mín
Völsungur leiða!
Mark beint úr horni!
Gestur Aron Sörensson
Gestur Aron skýtur úr hornspyrnunni, boltinn smellur í tréverkinu og inn. Óverjandi fyrir Ólaf í markinu.Völsungur leiða!
11. mín
Völsungur að fá horn
8. mín
Þetta er komið aftur í gang
5. mín
Jochum situr eftir og fær aðhlynningu
Þetta lítur ekki vel út þar sem það er ekki varamarkmaður á bekknum. Leikurinn er einnig stopp.
3. mín
Boltinn er í netinu en brot dæmt
Daði finnur Dag inni á teignum og er við það að komast í boltann en Jochum er fyrri til og aukaspyrna dæmd.
2. mín
Völsungur fær fyrsta horn dagsins
Boltinn kemur inn á teiginn en Ólafur kýlir frá.
1. mín
Völsungur byrjar með boltann
Fyrir leik
10 mín í leik
Það er allt að verða klárt í Breiðholtinu og liðin halda til búningsherbergja.


Fyrir leik
Byrjunarliðin komin inn!
Völsungur gerir eina breytingu á liði sínu eftir 2-2 jafntefli við Gróttu. Dagbjartur Búi Davíðsson er utan hóps í dag og í hans stað er Modoumatarr Mbye. Leiknir gerir tvær breytingar á liði sínu eftir frábæran 2-1 sigur á ÍR. Eiríkur Örn Beck og Kári Steinn Hlífarsson eru báðir utan hóps og inn fyrir þá koma Bogdan Bogdanovic og Þorsteinn Emil Jónsson.


Fyrir leik
Bongó í Breiðholti!
Veðrið er eins og best verður á kosið í Breiðholti í dag. Við megum búast við viðburðaríkum og spennandi leik!


Fyrir leik
Fyrri viðureign liðanna
Liðin áttust við í 1. umferð og lauk þeim leik með 1-1 jafntefli á Húsavíkurvelli. 0-1 Dagur Ingi Hammer Gunnarsson ('15), 1-1 Tómas Bjarni Baldursson ('84).


Fyrir leik
Dómaratríóið
Gunnar Oddur Hafliðason er aðaldómari í dag. Honum til aðstoðar eru Þráinn Jón Elmarsson og Mikael Ívan Axelsson. Eftirlitsmaður er Viðar Helgason.


Fyrir leik
Völsungur
Völsungur fékk Gróttu í heimsókn í síðustu umferð og gerðu liðin 2-2 jafntefli í fjörugum leik. Í 10. umferð heimsótti Völsungur ÍR í Breiðholti. Sá leikur var æsispennandi og skemmtilegur og endaði með 4-4 jafntefli. Völlarar sitja á botni deildarinnar með 7 stig eftir 11 umferðir og sárvantar stig. Þeim var spáð 12. sæti fyrir tímabilið.


Fyrir leik
Leiknir
Leiknismenn fengu erkifjendur sína ÍR í heimsókn í síðustu umferð og unnu þann leik 2-1. Mörk Leiknis skoruðu þeir Þorsteinn Emil Jónsson og Shkelzen Veseli. Í 10. umferð héldu Leiknismenn til Njarðvíkur en töpuðu þar naumlega 1-0. Leiknismenn eru í 6. sæti eftir 11 umferðir og í harðri baráttu um umspilssæti. Vert er að hafa í huga að Leiknismönnum var spáð 9. sæti fyrir tímabilið.


Fyrir leik
Leiknisvöllur heilsar!
Verið velkomin í þessa þráðbeinu textalýsingu frá Leiknisvelli í Breiðholti. Leikið verður kl. 16:00 og þetta er 12 umferð Lengjudeildar karla.




