Fotbolti.net
@fotboltinetÍvar Björgvinsson
Lengjudeild karla
Grindavíkurvöllur
Bongóblíða
Grindavík
Grindavík
0 - 0
Vestri
Vestri
Dómari: Arnar Ingi Ingvarsson

SKÝRSLAN: Markaþurrð í Grindavík

Hvað réði úrslitum?

Lokaður leikur í dag þar sem tvö afbragðsfæri hjá Vestra fara forgörðum. Annars var afar lítið um stór atvik og markalaust jafntefli í annað sinn í röð hér í Grindavík.

Bestu leikmenn

1. Chriss-Albin Mörfelt

Var lang hættulegasti leikmaður Vestra í dag, bjó til hættulegustu færi Vestra og heilt yfir mjög flottur.

2. Hjörvar Daði Arnarsson

Átti nokkrar flottar vörslur hér í dag og hélt hreinu í annað sinn í röð og var mjög öruggur í sínum aðgerðum.

Atvikið

Dauðafæri Emmanuel Duah í lok fyrri hálfleiks, fékk boltann í markteig Grindavíkur en tókst á einhvern ótrúlegan hátt að setja boltann framhjá.

Hvað þýða úrslitin?

Eftir þetta jafntefli sitja heimamenn enn í 10. sæti með 10 stig eftir 11 leiki á meðan Vestri eru í 4. sæti með 21 stig eftir 13 leiki. Grindavík heimsækja Njarðvíkinga í alvöru grannaslag í næstu umferð á meðan er Vestri á leið í alvöru ferðalag til Aserbaídsjan og mæta þar Qarabag.

Vondur dagur

Erfitt að nefna einhvern einn eftir þennan tíðindalitla leik en Duah og Þórður Gunnar eru eflaust svekktir með að hafa klúðrað sitthvoru dauðafærinu.

Dómarinn - 7

Nokkuð vel dæmt bara í heldur rólegum leik.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.