SKÝRSLAN: Ótrúlegt jafntefli í Breiðholtinu
Hvað réði úrslitum?
Það sem réði úrslitum í dag var sá sterki karakter sem Völsungur sýndi eftir að hafa lent undir með útileikmann í marki. Þeir börðust allan leikinn og náðu í mikilvægt stig.
Bestu leikmenn
1. Anton Fannar Kjartansson
Anton Fannar var frábær fyrir Leikni í dag. Hann var með mark og stoðsendingu og skapaði mikinn usla allan lekinn.
2. Elfar Árni Aðalsteinsson
Elfar var flottur í dag. Hann skoraði gott skallamark og tók mikinn þátt í uppspilinu. Hann hélt einnig vel í boltann og sótti nokkar aukaspyrnur.
Atvikið
Tvö stór atvik í dag. Ekki á hverjum degi sem skorað er beint úr horni, hvað þá tvisvar. Einnig þarf að minnast á þegar Jochum meiddist og útileikmaðurinn Tómas Bjarni þurfti að setja á sig hanskana.
Hvað þýða úrslitin?
Úrslitin þýða að Völsungur færist einu sæti ofar. Tvö dýrmæt stig í súginn fyrir Leikni sem sitja nú í 5. sæti.
Vondur dagur
Það var enginn sem átti vondan dag. Leiknismenn spiluðu vel en allt kom fyrir ekki. Völsungar sýndu alvöru þrautseigju og fara sáttir í rútuna norður.
Dómarinn - 5
Gunnar var full spjaldaglaður. Hann hafði ekki góða stjórn á leiknum og tók nokkrar vafasamar ákvarðanir.


