Leik lokið!
Hornspyrnan fer rakleiðis aftur fyrir
94. mín
Grindvíkingar fá horn
Síðasti sénsinn til að fá mark í leikinn.
93. mín
Gult spjald
Breki Þór Hermannsson
Stoppar snögga aukaspyrnu Grindavíkur.90. mín
Það eru fjórar mínútur í uppbótartíma. Fáum við sigurmark?
88. mín
InnAndri Karl Júlíusson Hammer
ÚtRafael Alexandre Romao Victor
87. mín
Grindvíkingar fá tveir á einn hraðaupphlaup en laus sending frá Val sem Fall kemst inn í og stoppar frábæra stöðu heimamanna.
86. mín
Frábær sprettur upp allan kantinn frá Sergine Fall sem sækir hornspyrnu hinum megin.
85. mín
Lárus Orri lætur vaða!
Fyrir utan teiginn og Marvin ver vel og Grindvíkingar fá hornspyrnu.
83. mín
InnGunnar Jónas Hauksson
ÚtGuðmundur Páll Einarsson
83. mín
InnBirkir Eydal
ÚtGuðmundur Arnar Svavarsson
82. mín
Gult spjald
Arnór Gauti Úlfarsson
82. mín
Rafael Victor!
Þá kemur loksins færi!
Vel varið frá Marvin.
Vel varið frá Marvin.
81. mín
Grindvíkingar hafa haldið meira í boltann síðustu 15 mínútur en lítið hefur verið um færi.
79. mín
InnMikael Máni Þorfinnsson
ÚtRúnar Ingi Eysteinsson
79. mín
InnLárus Orri Ólafsson
ÚtStefán Jón Friðriksson
75. mín
Skemmtilegir taktar
Breki Þór klobbar Sindra Þór og kemst í þröngt færi en skýtur fram hjá markinu.
73. mín
DAUÐAFÆRI VESTRI!!
Damir með sjaldséð mistök og tapar boltanum en Breki kemst einn gegn Hjörvari en lætur hann verja frá sér og síðan tekur Konstantin frákastið og klikkar einnig.
72. mín
InnValur Þór Hákonarson
ÚtGunnleifur Orri Gunnleifsson
72. mín
Konstantin með laumu!
Lætur vaða fyrir utan teiginn og boltinn fer rétt fram hjá nærstönginni.
70. mín
20 mínútur eftir
Lítið að frétta þessa stundina en nú hlýtur annað liðið að ætla að sækja sigurinn.
67. mín
InnJohannes Selvén
ÚtÞórður Gunnar Hafþórsson
67. mín
InnSergine Modou Fall
ÚtChriss-Albin Mörfelt
65. mín
Gult spjald
Edson Eduardo Dias Gomes
Stoppar skyndisókn og tekur Rafael niður.58. mín
VESTRI VILL VÍTI!!
Breki Þór fer niður í teignum eftir tæklingu frá Arnóri og gestirnir tryllast.
Arnar Ingi dæmir þó ekki víti en Breki virtist vera búinn að missa boltann útaf.
Arnar Ingi dæmir þó ekki víti en Breki virtist vera búinn að missa boltann útaf.
54. mín
Ingi af löngu færi!
Vinnur boltann langt utan að velli og lætur bara vaða en boltinn fer rétt yfir markið.
Skemmtileg tilraun.
Skemmtileg tilraun.
51. mín
Besta færi Grindavíkur í leiknum
Vel gert hjá Haraldi og Gunnleif í aðdragandanum en Ingi Þór fær frábært færi en á afleitt skot yfir markið.
50. mín
Gult spjald
Marko Valdimar Stefánsson
Var ósáttur við aukaspyrnu sem Vestri fékk en hefur farið yfir strikið og uppsker spjald.46. mín
Seinni hálfleikur kominn af stað
46. mín
InnSindri Þór Guðmundsson
ÚtHeiðar Snær Ragnarsson
45. mín
Hálfleikur
Gestirnir með yfirhöndina
Vestri hefur verið sterkari aðilinn og þá sérstaklega síðustu tíu múnúturnar en staðan er engu að síður markalaus.
Tökum okkur 15 mínútna hlé.
Tökum okkur 15 mínútna hlé.
45. mín
Konstantin með frábært skot!
Fyrir utan teiginn sem Hjörvar þarf að hafa sig allan við að verja og tekst það.
45. mín
Damir reynir skot frá miðju sem heppnast ekki og Ray bölvar þessu á hliðarlínunni.
44. mín
ENN BETRA FÆRI!!!
Aftur vikrilega vel spilað hjá Vestra en Breki rennir boltanum á Duah eftir frábæra takta hjá Mörfelt en Duah nær á ótrúlegan hátt að skjóta fram hjá markinu nánast inni í markteignum.
41. mín
Langbesta færi leiksins!!
Frábært spil hjá Vestra en þeir tættu vörn Grindavíkur í sig. Virkilega góð hreyfing hjá Konstantin sem rennir boltanum á Þórð Gunnar sem er einn gegn Hjörvari en skýtur yfir markið við vítapunktinn.
39. mín
Grindavík fær sitt fyrsta færi
Rafael Victor á skalla sem fer fram hjá markinu. Leikurinn hefur aðeins opnast, Grindvíkingar komnir aðeins ofar á völinn, en lítið um færi enn.
34. mín
Þórður Gunnar!
Með skot úr góðri stöðu sem stefndi í fjærhornið en enginn annar en Damir hendir sér fyrir boltann á ögurstundu.
30. mín
Hálftími liðinn
Ingi Þór liggur aðeins eftir og Grindvíkingar taka stutt samtal við Ray á hliðarlínunni. Virðist vera í lagi með Inga sem er staðinn upp.
27. mín
Damir heldur áfram að hreinsa þessu burt
Vestramenn hafa verið að sækja meira og komist í fínar stöður en allt stoppar allt sem kemur í átt að teig Grindavíkur.
20. mín
Vestramenn hafa haldið mun meira í boltann á meðan Grindvíkingar reyna að beita skyndisóknum.
14. mín
Aukaspyrna gestanna
Guðmundur Arnar með fasta spyrnu úr góðri stöðu sem fer þó í vegginn.
11. mín
Fyrsta hronspyrna leiksins er heimamanna
Tekin stutt en gengur engan veginn upp og Vestramenn hreinsa.
7. mín
Fyrsta skot leiksins
Kemur frá Þórði Gunnari en það er laust og langt fram hjá markinu.
6. mín
Bæði lið þreifa fyrir sér þessar fyrstu mínútur og skiptast á að halda aðeins í boltann.
1. mín
Úbsadeisí!
Arnór Gauti nálægt því að skora ansi skrautlegt sjálfsmark á fyrstu mínútu leiksins. Er með boltann við endalínu og ætlar líklega að gefa hann yfir á Damir en skýtur boltanum hreinlega í hornspyrnu, þvert fyrir markið.
1. mín
Leikur hafinn
Gestirnir hefja leik!
Fyrir leik
Stemning í fjölmiðlaboxinu
Ég sit hér með Gu'jóni Þorsteinssyni, lýsanda hjá Livey, og Daða Berg Jónssyni, leikmanni Víkings sem sjá um að lýsa saman leiknum á Livey.


Fyrir leik
Sjaldan verið betra veður í Grindavík!
Það er sannkölluð bongóblíða suður með sjó á þessum fallega degi. Sannkölluð veisla fram undan í þessum landsbyggðarslag.
Fyrir leik
Byrjunarliðin komin inn
Ray Anthony gerir eina breytinu frá jafnteflinu gegn Ægi í síðsutu umferð en Stefán Jón kemur inn fyrir Sindra Þór.
Badu gerir nokkrar breytingar en hann er líklega að hvíla menn fyrir Evrópueinvígið gegn Qarabag þar sem þeir spila á fimmtudag í næstu viku í Aserbaídsjan. Þess má geta að Guðmundur Arnar Svavarsson er með fyrirliðabandið í dag.
Badu gerir nokkrar breytingar en hann er líklega að hvíla menn fyrir Evrópueinvígið gegn Qarabag þar sem þeir spila á fimmtudag í næstu viku í Aserbaídsjan. Þess má geta að Guðmundur Arnar Svavarsson er með fyrirliðabandið í dag.
Fyrir leik
Liðin mættust í fyrstu umferðinni
Liðin skiptu stigunum á milli sín í þeim leik en þar enudðu leikar 1-1 á Kerecisvellinum á Ísafirði. Ingi Þór Sigurðsson kom gestunum yfir á 19. mínútu en Sergine Fall jafnaði metin á 58. mínútu og þar við sat.


Fyrir leik
Vestri tapað einum af síðustu sex
Eftir aðeins brösuga byrjun á tímabilinu hefur Vestri farið á smá flug og er komið í 4. sæti deildarinnar. Í síðustu umferð gerði liðið 1-1 jafntefli við Þrótt í Laugardalnum eftir að hafa leitt leikinn mest allan leikinn. Þetta er síðasti leikur liðsins áður en ærið verkefni gegn Qarabag frá Aserbaídsjan bíður þeirra í forkeppni Evrópudeildarinnar.


Fyrir leik
Grindavík vann síðast leik 17. maí
Það var eini sigur liðsins í Lengjudeildinni í ár til þessa en hann kom gegn Völsungi á Stakkavíkurvelli. Liðið hefur gert sex jafntefli og tapað þremur leikjum en það hefur skilað níu stigum í tíu leikjum. Grindavík er í 10. sæti, einu stigi fyrir ofan fallsæti, en á þó frestaðan leik inni. Í síðustu umferð gerði liðið markalaust jafntefli við Ægi í leik sem þeir hefðu þó átt að vinna.


Fyrir leik
Þriðja liðið
Arnar Ingi Ingvarsson fær það hlutverk að dæma leik dagsins en honum til aðstoðar verða þeir Kristofer Bergmann og Rögnvaldur Þ Höskuldsson. Dómaraeftirlitsmaður er Þórður Ingi Guðjónsson.


Fyrir leik
Grindavík bíður okkur upp á Landsbyggðarslag!
Sæl öll og verið velkomin í beina textalýsingu fyrir leik Grindavíkur og Vestra í 12. umferð Lengjudeildar karla sem fer fram á Stakkavíkurvellinum.





Skýrsla og viðtöl væntanleg.
Ég þakka fyrir mig.